Forsíða > Prentvænt

Eldri fréttir

Skólaráðsfundur
1. september 2017
Það verður aukaskólaráðsfundur miðvikudaginn 6. september kl. 15:30.
Meira >>>

Fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema í Menntaskólanum við Sund
31. ágúst 2017
Haldinn verður fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema í Menntaskólanum við Sund þriðjudaginn 5. september kl. 19:45 í Matsal skólans. Tilgangur fundarins er að skapa góð tengsl við foreldra og forráðamenn nýnema, að kynna skólann og starfsemi hans í vetur og svara fyrirspurnum. Fyrst verður sameiginlegur fundur þar sem kynnt verður þriggja...
Meira >>>

Fundir með umsjónarkennurum
16. ágúst 2017
Skólasetning verður kl. 09:00 18. ágúst. Að henni lokinni munu nemendur í þriggja anna kerfinu eiga fundi með umsjónarkennurum sínum.  Hér að neðan má sjá staðsetningu þessara funda og upplýsingar um umsjónarkennara. 1. námsár félagsfræðabraut Brynhildur Einarsdóttir FÉL-BRE Stofa 20 Gunnvör Rósa Eyvindardóttir FÉL-GRE Stofa 21 Sigrún...
Meira >>>

Skólasetning 2017
14. ágúst 2017
Skólinn verður settur föstudaginn 18. ágúst kl. 9:00 í íþróttasal skólans - Hálogalandi.   ·        Nýnemar: o   Að lokinni skólasetningu verður sérstök kynning fyrir nýnema um...
Meira >>>

Skrifstofan lokuð vegna sumarleyfa
23. júní 2017
Vegna sumarleyfa verður skrifstofa skólans lokuð frá og með 28. júní til og með 7. ágúst 2017.  Skrifstofan opnar aftur 8. ágúst 2017 kl. 10:00.
Meira >>>

Innritun nýnema og greiðsla skólagjalda.
16. júní 2017
Alls voru 200 nýnemar innritaðir í MS skólaárið 2017 - 2018, 104 á félagsfræðabraut og 96 á náttúrufræðibraut. Skólinn býður þau velkomin í MS og óskar þeim velfarnaðar í námi. Tölvupóstur hefur verið sendur til nýnema með upplýsingum um að með greiðslu skólagjalda staðfesti nemandinn skólavist sína í MS og að greiðsla skólagjalda sé nú pappírslaus....
Meira >>>

Formleg afhending píanós og vígsla
7. júní 2017
Eldri starfsmenn Menntaskólans við Sund færðu skólanum píanó að gjöf. Hér má sjá Sigurð Ragnarsson fyrrum rektor afhenda Má Vilhjálmssyni núverandi rektor píanóið formlega 30. maí sl. Kennararnir Hjördís Alda Hreiðarsdóttir og Unnur...
Meira >>>

Myndir frá útskrift
7. júní 2017
...
Meira >>>

Frá útskrift 2017
31. maí 2017
  Menntaskólinn við Sund brautskráði 142 nemendur 27. maí  síðastliðinn og fór athöfnin fram í Háskólabíó. Af félagsfræðabraut útskrifuðust 26 nemendur af félagsfræðakjörsviði og 61 nemandi af hagfræðikjörsviði.  Af náttúrufræðibraut útskrifuðust 39 nemendur af líffræðikjörsviði...
Meira >>>

Endurtektarpróf
30. maí 2017
Endurtektarpróf fyrir þriðja bekk verða haldin miðvikudaginn 31. maí kl. 10:00.
Meira >>>

Lokað á skrifstofu
29. maí 2017
Skrifstofa skólans verður lokuð vegna starfsmannafunda mánudaginn 29. maí frá kl. 09:00-12:00 og þriðjudaginn 30. maí frá kl. 09:00-10:00.
Meira >>>

Brautskráning stúdenta 2017
25. maí 2017
Útskriftarathöfn Menntaskólans við Sund árið 2017 fer fram laugardaginn 27. maí kl. 10:30 í Háskólabíó.  Útskriftarnemendur skulu mæta á staðinn hálftíma fyrir athöfn.
Meira >>>

Prófsýning 23. maí 2017
22. maí 2017
Prófsýning verður þriðjudaginn 23. maí fyrir nemendur í 3. bekk kl. 11:30-12:30 og fyrir 4. bekk frá kl. 12:30-13:30, sjá skipulag hér fyrir neðan.  Fjórði bekkur fær einkunnir sínar afhentar kl. 12:30-13:30 hjá umsjónarkennara:  4. D stofa 20 4. G stofa 21 4. H stofa 28 4. I stofa 17 4. S stofa 31 4. T stofa...
Meira >>>

Námsmatssýning
16. maí 2017
Föstudaginn 19. maí verður námsmatssýning fyrir nemendur í nýja þriggja anna kerfinu. Námsmatssýningin stendur frá kl. 12:00-13:00.  Hér að neðan má sjá staðsetningu hverrar námsgreinar. Danska stofa 15 Eðlisfræði stofa 41 Efnafræði stofa 2 Enska stofa 31 Fatahönnun stofa 54 Félagsfræði stofa 1 Franska stofa 25 Hagfræði stofa...
Meira >>>

Lok vorannar og matsdagar
12. maí 2017
...
Meira >>>

Píanó
2. maí 2017
Eldri starfsmenn MS komu í síðustu viku og færðu skólanum þetta fína píanó að gjöf.  Formleg afhending verður síðar. Nú verður aldeilis hægt að taka lagið!
Meira >>>

Afhending matseinkunna
28. apríl 2017
Afhending matseinkunna matsnemenda fer fram þriðjudaginn 2. maí kl. 14:00 á skrifstofu skólans.
Meira >>>

KOLOR komst áfram
26. apríl 2017
Þessar stelpur úr 3. G, þær Ástrós, Katrín, Þórunn og Sara, komust áfram í keppni Ungra frumkvöðla.  Þær eru nemendur í fyrirtækjasmiðjunni og stofnuðu fyrirtækið KOLOR. Hápunktur keppninnar var í dag í Háskólanum í Reykjavík þar sem fyrirtækin 15 sem komust áfram héldu fyrirlestur fyrir...
Meira >>>

Valdagurinn 25. apríl 2017
24. apríl 2017
Minnum á stóra valdaginn á morgun 25. apríl 2017.  Allir nemendur í nýju kerfi hafa fengið sendar upplýsingar og valeyðublöð í tölvupósti. Þær upplýsingar má líka nálgast á skrifstofu skólans og hér.
Meira >>>

Páskar 2017
6. apríl 2017
Skrifstofa skólans verður lokuð um páskana frá 10. til 19. apríl. Skrifstofan opnar aftur miðvikudaginn 19. apríl. Skrifstofan verður einnig lokuð á Sumardaginn fyrsta 20. apríl. Matsdagar eru í báðum kerfum 19. og 21. apríl. Reglubundin kennsla fellur því niður frá 10. til 23. apríl og hefst aftur samkvæmt stundaskrá mánudaginn 24. apríl.
Meira >>>

Umsjónarfundur 6. apríl
4. apríl 2017
Í fundargatinu á fimmtudaginn 6. apríl 2017 kl. 12:30 er umsjónarfundur og þar munu umsjónarkennarar ræða við nemendur um námið á viðkomandi námslínu, kynna valblaðið fyrir nemendum og undirbúa þau fyrir stóra valdaginn sem verður þriðjudaginn 25. apríl. Skipulag umsjónartíma er hér fyrir neðan. 1. námsár Félagsfræðabraut Björg Ólínudóttir...
Meira >>>

Kjörsviðsverkefnið
4. apríl 2017

Meira >>>

Úrslit kosninga
4. apríl 2017
Í lok síðustu viku var kosið í miðhóp og formennsku nefnda í Skólafélagi Menntaskólans við Sund, SMS, fyrir skólaárið 2017-2018.  Eftirtaldir nemendur hlutu kosningu: Miðhópur Ármaður Árni Freyr Baldursson Ritari Bergur Leó Björnsson Gjaldkeri Gísli Gautur Gunnarsson   Formaður skemmtinefndar Ása...
Meira >>>

Miðannarmat birt
31. mars 2017
Miðannarmatið eða stöðumat vorannar 2017 fyrir nemendur á 1. og 2. námsári er nú aðgengilegt í Innu. Hægt er að sjá miðannarmatið undir einkunnablaði vinstra megin á forsíðunni eftir innskráningu í Innu. Mjög mikilvægt er að skoða niðurstöðurnar með foreldrum sínum. Bent er á að námsráðgjafar geta veitt góð ráð um skipulag og vinnubrögð í náminu.
Útskýring...
Meira >>>

MS nemendur á Vörumessu í Smáralind
30. mars 2017
Laugardaginn 1. apríl munu nemendur í áfanganum Fyrirtækjasmiðjan kynna og selja vörur sínar í Smáralind.  Tilefnið er Vörumessa Ungra frumkvöðla þar sem um 300 framhaldsskólanemar kynna 63 örfyrirtæki sem þeir hafa lært að stofna.  Vörumessan í Smáralind verður opin frá kl. 11:00-18:00.  Fyrirtækin frá MS eru tíu...
Meira >>>

Miðannarmat vorannar
27. mars 2017
Miðannarmat vorannar fyrir 1. og 2. námsár mun birtast nemendum á einkunnablaði 31. mars 2017.  Miðannarmatið er stöðumat í hverri námsgrein og byggir á raunmætingu, virkni, verkefnum, samræðum og prófum nemanda fyrstu 5 vikur vorannar. 
Meira >>>

Valgreinaval fyrir skólaárið 2017-2018
20. mars 2017
Valgreinaval fyrir skólaárið 2017-2018 fer fram á Námsnetinu 11.-22. mars 2017.
Nemendur í þriðja bekk í eldra kerfi skulu velja tvær valgreinar fyrir næsta skólaár og tvær til vara. Valgreinalýsingar að finna á Námsneti og einnig hér 
Meira >>>

Forvarnir í MS - foreldrakvöld í kvöld kl. 19.30
14. mars 2017
Skólinn býður nú upp á sérstakt foreldrakvöld þar sem boðið er upp á kynningu á forvarnastefnu skólans, fyrirlestur um aðkallandi málefni (kannabis) og að auki boðið upp á umræðuhópa með fræðurum Hins hússins sem hafa mjög góða innsýn í heim nemenda og hvað er efst á baugi á líðandi stundu, þetta eru úrvals einstaklingar og hægt að ræða við þau opinskátt....
Meira >>>

Opið hús 13.3.17
13. mars 2017

Meira >>>

Árshátíðarvikan 22.- 24.febrúar
21. febrúar 2017
22. og 23. febrúar verða óhefðbundnir skóladagar en skyldumæting báða dagana. 22. febrúar verður þemadagur sem nemendafélagið skipuleggur.  Nemendur skrá sig í hinar ýmsu smiðjur á þátttökulista sem hanga á upplýsingatöflu fyrir framan Bjarmaland.
Það verða tvær lotur: sú fyrri kl. 09:45-11:30 og sú seinni  kl. 12:30-14:00. 23. febrúar...
Meira >>>

Lokun skrifstofu
21. febrúar 2017
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 22. febrúar til og með 24. febrúar vegna starfsmannaferðar. 
Meira >>>

Námsmatssýning vetrarönn 2016-2017
15. febrúar 2017
Vetrarönn í nýju kerfi er nú að ljúka.  Opnað verður fyrir einkunnablöð vetrarannar í INNU miðvikudaginn 15. febrúar kl. 20:00. Námsmatssýning verður fimmtudaginn 16. febrúar kl. 12:30-13:10.
Hér að neðan má sjá staðsetningu námsgreina. Danska stofa 15 Eðlisfræði stofa 41 Efnafræði stofa 2 Enska stofa 31 Fatahönnun stofa...
Meira >>>

Matsdagar 13.-17. febrúar
10. febrúar 2017
Vetrarönn hjá nemendum í nýju kerfi lýkur í næstu viku, 13.-.17. febrúar.  Þá eru matsdagar og fellur venjuleg kennsla niður en einhverjir nemendur eiga að mæta í skólann vegna Njáluferðar eða sjúkraprófa og sérstakra verkefna. Hér má sjá skipulag matsdaga:  
Meira >>>

Nemendakönnun
8. febrúar 2017
Nemendakönnun stendur nú yfir á Námsnetinu til 14. febrúar fyrir nemendur í nýja kerfinu á 1. og 2. námsári. Með þessari könnun sem nær til vetrarannar gefst nemendum kostur á að meta nám og kennslu í skólanum og leggja þar með sitt af mörkum til að bæta skólastarfið.

Verðlaun: Þeim hópi sem nær hlutfallslega mestri þátttöku verður boðið í bíó...
Meira >>>

Kjörsviðsverkefnið
3. febrúar 2017

Meira >>>

Gettu betur í kvöld
30. janúar 2017
Fyrri umferð Gettu betur hefst í kvöld og keppir MS við ME kl. 20:30 á Rás 2. 
Meira >>>

Námskeið fyrir foreldra um seiglu nemenda
26. janúar 2017
Þann 24. janúar var haldið námskeið fyrir foreldra nemenda Menntaskólans við Sund þar sem rætt var um hvernig foreldrar geta stutt nemendur í að takast á við ögranir og komast yfir hindranir með því að efla með þeim seiglu. 
Kennarar á námskeiðinu voru Anna Sigurðardóttir og Björg Jóna...
Meira >>>

Frá foreldrafundi 17. janúar sl.
24. janúar 2017
Upplýsingaglærur frá foreldrafundi 17. janúar sl. er að finna hér
Meira >>>

Umsjónarfundur 26. janúar 2017
24. janúar 2017
Umsjónarfundur verður haldinn fimmtudaginn 26. janúar kl. 12:30 til 13:10. Umsjónarkennarar funda með umsjónarnemendum sínum á 1. námsári um valdaginn sem verður mánudaginn 30. janúar og á 2. námsári um námsferil sinn og námsval
Meira >>>

Námskeið um seiglu
18. janúar 2017
Foreldrum nemenda Menntaskólans við Sund er boðið á námskeið um seiglu nemenda þeim að kostnaðarlausu á matsal skólans þriðjudaginn 24.janúar 2017 frá kl. 19.30 til 21.30   Á námskeiðinu verður rætt um hvernig foreldrar geta aðstoðað börn sín við að takast á við ögranir og komast yfir hindranir með því að efla með þeim seiglu.Nauðsynlegt...
Meira >>>

Frá heimsókn starfsfólks Flensborgar
13. janúar 2017

Meira >>>

Innritun
11. janúar 2017
Ekki verða fleiri nemendur innritaðir í Menntaskólann við Sund á þessu skólaári.   Við bendum áhugasömum á Menntagátt í vor fyrir innritun skólaárið 2017-2018.
Meira >>>

Foreldrafundur
11. janúar 2017
Haldinn verður fundur með foreldrum og forráðamönnum nemenda á fyrsta námsári þriðjudaginn 17. janúar 2017 kl. 19:45.  Áætlaður fundartími er tvær klukkustundir.  Markmiðið með fundinum er að efla samstarf forráðamanna og skólans.  Dagskráin er tvíþætt, fyrst er sameiginlegur fundur á sal og síðan fjórskiptur fundur eftir námslínum nemenda...
Meira >>>

Jöfnunarstyrkur
4. janúar 2017
Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu?

Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is
Hægt er að skrá umsókn á Innu eða netbankanum!

Umsóknarfrestur vegna vorannar 2017 er til 15. febrúar næstkomandi!

Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd

Meira >>>

Valgreinabreytingar á vorönn
4. janúar 2017
Hægt er að sækja um breytingar á valgreinum á vorönn til 10. janúar.  Það þýðir að síðasti dagurinn til að skila inn beiðni um breytingu er mánudagurinn 9. janúar.
Meira >>>

Afgreiðslutímar skrifstofu skólans
20. desember 2016
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 22. desember 2016 til 3. janúar 2017.  Þá opnar skrifstofan kl. 09:00.  Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá 4. janúar 2017.
Meira >>>

Gettu betur
16. desember 2016
MS keppir við ME í Gettu betur 30. janúar 2017.  Keppninni verður útvarpað á Rás 2.  Nánari upplýsingar á Facebook síðu Gettu betur.  
Meira >>>

Matsdagar í desember
16. desember 2016
Matsdagar í desember - sjúkrapróf og sérstök verkefni Tími Föstudagur 16. des Stofa Mánudagur 19. des Stofa Þriðjudagur 20. des Stofa   SER: Íslenska-fornbókmenntir kl. 08:20 21         8.10               US+EKS: STÆR2HA/HR 5 JGT+Nína+Sólrún:...
Meira >>>

INNA LOKUÐ
15. desember 2016
Lokað hefur verið fyrir Innu en hún verður opnuð aftur 19. desember kl. 20:00 þegar einkunnir í haustmisserisprófum 3. og 4. bekkjar verða birtar.
Meira >>>

Stofuskipti vegna prófa
1. desember 2016
Vegna prófa hjá nemendum í þriðja og fjórða bekk verður breyting á stofuskipan hjá nemendum á fyrsta og öðru námsári.  Prófin fara fram í Loftsteini (stofur 15-20) og í Jarðsteini  (stofur 12, 13 og 14).  Allir námshópar á fyrsta og öðru námsári fá tölvupóst um breytingar á stofu.  Hér að neðan má sjá plan yfir stofubreytingar...
Meira >>>

Próf hjá 3. og 4. bekk
1. desember 2016
Haustpróf verða haldin hjá 3. og 4. bekk frá og með 2. desember til og með 15. desember.  Sjúkrapróf verða 16. desember og einkunnabirting og prófsýning 20. desember. Við hvetjum  nemendur að kynna sér vel prófreglur og ráðleggingar um prófundirbúning. Sjá hér.
 

Meira >>>

Sjálfsmatsskýrsla 2015-2016
30. nóvember 2016
Sjálfsmatsskýrsla fyrir skólaárið 2015-2016 er komin út. Sjá hér.
Meira >>>

Desember
24. nóvember 2016
Á fullveldisdag Íslendinga, fimmtudaginn 1. desember verður kennt samkvæmt stundaskrá í nýja kerfinu á 1. og 2. námsári. Í eldra kerfinu á 3. og 4. námsári verða kennarar til viðtals fram að hádegi en eftir hádegi fellur kennslan niður. Próf verða haldin í eldra kerfinu frá 2. til 19. desember í Loftsteini stofum 15-20 og Jarðsteini í stofum 12-14 og...
Meira >>>

Niðurstöður nemendakönnunar
21. nóvember 2016
Sjá nánar hér
Meira >>>

Vetrarönn
17. nóvember 2016
Vetrarönn í nýju þriggja anna námskerfi MS hófst nú í byrjun þessarar viku.  Búið er að afgreiða óskir um stundatöflubreytingar. Hér má nálgast bókalistann.
Meira >>>

Kjörsviðsverkefni
17. nóvember 2016

Meira >>>

Námsmatssýning í nýju kerfi
8. nóvember 2016
             10. nóvember. 2016,  kl. 10:00-12:00   Danska                                    &...
Meira >>>

INNA lokuð
4. nóvember 2016
Búið er að loka Innu vegna einkunnaskráningar á haustönn og stundatöflugerðar fyrir vetrarönn. Opnað verður fyrir einkunnir í Innu miðvikudagskvöldið 9. nóvember kl. 20:00. Einkunnasýning er fimmtudaginn 10. nóvember kl. 10:00-12:00. Óskir um stundatöflubreytingar verða leyfðar frá 10. nóvember til mánudagsins 14. nóvember kl. 15:00.
Meira >>>

Njáluferð
2. nóvember 2016
Ferð 3. bekkinga og íslenskukennara á Njáluslóðir var farin í dag og gekk vel.
Meira >>>

Nemendakönnun
2. nóvember 2016
Mat á gæðum náms og kennslu haustönn 2016 Nemendakönnun hjá nemendum á 1. og 2. námsári fer nú fram í öllum áföngum. Könnunin er á Námsnetinu og stendur yfir til 9. nóvember. Við hvetjum alla nemendur til þátttöku í að meta nám og kennslu í skólanum og leggja þar með sitt af mörkum til að bæta skólastarfið.   Verðlaun: Þeim hópi sem nær...
Meira >>>

Varnir gegn brotthvarfi. Hvers ábyrgð?
25. október 2016
...
Meira >>>

Aðalfundur foreldraráðs
20. október 2016
Aðalfundur Foreldraráðs MS verður haldinn í Bjarmalandi (það er salurinn rétt innan við eldri inngang skólans) miðvikudaginn 26. október kl. 20:00-21:45. Dagskrá fundarins: 1. Almenn aðalfundarstörf (sjá nánar í fundarboði sem var sent öllum foreldrum). 2. Kvíði og samfélagsmiðlar, Anna Steinsen markþjálfi og ráðgjafi verður með erindi til foreldra. 3....
Meira >>>

Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna
19. október 2016
Tveir nemendur í 4. X komust áfram í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna.  Þetta eru þeir Baldur Þór Haraldsson og Orri Steinn Guðfinnsson.  Við óskum þeim til hamingju með árangurinn.
Meira >>>

Valdagurinn 17. október
12. október 2016
Nemendur á fyrsta námsári þurfa að velja námslínu innan sinnar brautar.  Nemendur á félagsfræðabraut hafa val um hagfræði-stærðfræðilínu eða félagsfræði-sögulínu en nemendur á náttúrufræðibraut velja á milli eðlisfræði-stærðfræðilínu eða líffræði-efnafræðilínu.  Allir fyrstaárs nemendur hafa fengið sendan póst með valeyðublaði og upplýsingar...
Meira >>>

Matsdagar í nýju kerfi
12. október 2016
Nú standa yfir matsdagar hjá nemendum á fyrsta og öðru námsári, það er að segja frá 12. - 14.október. Matsdagar tilheyra nýju námskerfi í MS.  Skólaárinu er skipt upp í þrjár annir sem eru kenndar við haust, vetur og vor.  Á hverri önn eru 10 matsdagar og fellur þá niður hefðbundin kennsla en dagarnir eru nýttir til að meta vinnu nemenda,...
Meira >>>

Umsjónarfundur 6. október fyrir nemendur á 1. og 2. námsári
4. október 2016
Næsta fimmtudag 6. október kl. 12:30-13:10 munu umsjónarkennarar hitta umsjónarnemendur sína á 1. og 2. námsári.   Á fundi nemenda á fyrsta námsári verður fjallað um val þeirra á námslínu en valdagurinn er 17. október.   Á fundi  nemenda á 2. námsári verður fjallað um uppbyggingu námsins á viðkomandi námslínu og hvaða áfanga...
Meira >>>

Prentun, Office pakki og einkadrif
29. september 2016
Ágæti nemandi Til þess að komast í prentun í MS, Office pakkann og einkadrifið þitt þarft þú að lesa tölvupóst frá Agnari Guðmundssyni kerfisstjóra tölvumála þann 15. september 2016. Þar eru nákvæmar leiðbeiningar til þín. Gangi þér vel.  
Meira >>>

Fræðslufundur um Námsnetið
26. september 2016
Fræðslufundur fyrir nemendur um Námsnetið verður haldinn fimmtudaginn 29. september kl. 12:30-13:10 í Bjarmalandi.  Forráðamenn eru velkomnir á fundinn.  Jóhann G. Thorarensen  verkefnisstjóri sér um fræðsluna.  
Meira >>>

Prófundirbúningur - prófkvíði
19. september 2016
Námskeið  verður haldið miðvikudaginn 21.september kl.14:50 - 16:00 í st. 20.  Fjallað verður um birtingaform kvíða, kvíðastjórnun og prófundirbúning.   
Meira >>>

Námstækninámskeið
19. september 2016
Námstækninámskeið verður haldið fimmtudaginn 22. september í stofu 20 kl. 12.30. Farið verður yfir skipulag, forgangsröðun, markmið og glósutækni.
Meira >>>

Jöfnunarstyrkur
9. september 2016
Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna jöfnunarstyrks á skólaárinu 2016-2017. Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn í gegnum sitt svæði í heimabankanum sínum og/eða Innu, vefkerfi framhaldsskólanna. Umsóknarfrestur vegna haustannar 2016 er til 15. október næstkomandi! !
Kynntu þér reglur um námsstyrki...
Meira >>>

Fundur með nemendum á 1. og 2. námsári um kosningu tengla
7. september 2016
Fundur verður haldinn í fundargatinu fimmtudaginn 8. september 2016 kl. 12:30 - 13:10 með nemendum á hverri braut á 1. námsári og hverri námslínu á 2. námsári. Tilgangur fundarins er að nemendur kjósi tengla og varatengla fyrir sína braut eða námslínu. Kosnir verða 1-5 tenglar og 1-5 varatenglar eftir fjölda nemenda á hverri námsbraut eða námslínu....
Meira >>>

Fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema
5. september 2016
Fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema í Menntaskólanum við Sund   Haldinn verður fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema  í Menntaskólanum við Sund þriðjudaginn 6. september nk. kl. 19:45 í Matsal skólans. Áætlaður fundartími er ein og hálf klukkustund.   Tilgangur fundarins er að skapa góð tengsl við foreldra...
Meira >>>

Samvinna nemenda í stærðfræði.
2. september 2016
Ileana Manolescu stærðfræðikennari og nemendur á fjórða námsári í valáfanganum Samvinna nemenda í stærðfræði bjóða yngri nemendum stuðning í stærðfræði.   Stuðningstímarnir eru á þriðjudögum kl. 14:50 til 17:00 í Loftsteini í stofum 17-19. Hægt er að skrá sig í stuðning í stærðfræði í eina önn í einu og...
Meira >>>

Mötuneytið Kattholt
23. ágúst 2016
Matsalan Kattholt hefur aftur tekið til starfa.  Matseðill mánaðarins mun birtast á allra næstu dögum.  Allar upplýsingar um mötuneytið má finna hér. 
Meira >>>

Nýnemahátíð
22. ágúst 2016
Í morgun fóru allir nýnemar skólans út í Viðey ásamt rektor, kennslustjóra, félagsmálafulltrúum og fulltrúum nemendafélagsins.  Þar verður glens og gaman til kl. 13:00, tónlistaratriði, leikir og grillaðar pulsur.  Þessi vika verður svo helguð nýnemunum með ýmsum uppákomum til að bjóða þá velkomna í skólann.
Meira >>>

Skólasetning
12. ágúst 2016
Skólasetning verður 19. ágúst kl. 09:00 í íþróttasal skólans, Hálogalandi.  Eftir það hefst kennsla samkvæmt stundaskrá.  Stundatafla haustannar verður aðgengileg nemendum í INNU 17. ágúst.
Meira >>>

Nýtt skólaár
10. ágúst 2016
...
Meira >>>

Lokað vegna sumarleyfa
30. júní 2016
Skrifstofa skólans er lokuð vegna sumarleyfa frá 1. júlí - 7. ágúst 2016.  Skrifstofan opnar aftur 8. ágúst 2016.
Meira >>>

Leiðbeiningar fjármálastjóra vegna greiðslu skólagjalda 2016-2017
22. júní 2016
Greiðsla skólagjalda 2016-2017 Skjal þetta var sent í tölvupósti til allra nemenda og forráðamanna (yngri en 18 ára). Sem liður í grænum skrefum hefur skólinn ákveðið að hætta útsendingu greiðsluseðla til nemenda skólans. Kröfur birtust í heimabanka greiðanda þann 15.6.2016 hjá eldri nemendum og 20.6.2016....
Meira >>>

Greiðsluseðlar til nýnema
20. júní 2016
Rafrænir greiðsluseðlar hafa verið sendir til þeirra nýnema sem fengu skólavist í MS skólaárið 2016-2017. Krafan birtist í heimabanka elsta forráðamanns nemandans.
Meira >>>

Innritun lokið
20. júní 2016
Innritun nýnema fyrir skólaárið 2016-2017 er lokið.  Niðurstöður eru birtar á Menntagátt.
Meira >>>

Bókalistar
15. júní 2016
Bókalistar fyrir skólaárið 2016-2017 eru nú aðgengilegir.  Þá má nálgast hér.
Meira >>>

Myndir frá útskrift 2016
15. júní 2016
Þann 28. maí 2016 voru 126 stúdentar brautskráðir frá Menntaskólanum við Sund.  Athöfnin fór fram í Háskólabíó.  Hæstu einkunn á stúdentsprófi fékk Eydís Embla Lúðvíksdóttir en næst hæstu einkunn fékk Ottó Axel Bjartmarz.  Fjölmargir nemendur náðu frábærum árangri að þessu sinni...
Meira >>>

Gjaldskrá 2016-2017
15. júní 2016
Gjaldskrá fyrir skólaárið 2016-2017 hefur verið birt og má nálgast hér.
Meira >>>

Skólagjöld eldri nemenda 2016-2017
8. júní 2016
Greiðsluseðlar skólagjalda fyrir skólaárið 2016-2017 munu birtast í heimabanka nemenda þann 15. júní.  Hjá nemendum sem eru yngri en 18 ára við stofnun kröfu birtist greiðsluseðillinn hjá elsta forráðamanni. Skólagjöldin eru 35.000 kr.  Engir greiðsluseðlar á pappír verða sendir út í ár.  Allir skráðir nemendur við skólann hafa fengið...
Meira >>>

Skóladagatal 2016-2017
31. maí 2016
Hér birtast skóladagatöl fyrir skólaárið 2016-2017.  Skólinn mun starfa eftir tveimur kerfum: hinu eldra og hinu nýja.
Í eldra kerfinu skiptist skólaárið í tvær annir en í hinu nýja skiptist það í þrjár annir.  Upphaf og endir skólaárs er hið sama. Fyrir nemendur á þriðja og fjórða námsári Dagatal 2016-2017eldra kerfi haust

Meira >>>

Próftafla endurtökuprófa 2. og 3. júní
27. maí 2016

Meira >>>

Endurtökupróf
25. maí 2016
Endurtökupróf fyrir nemendur á 2. og 3. námsári verða 2. -3. júní.  Nánari tímasetning prófa verður auglýst síðar. Engin endurtökupróf eru fyrir fyrsta námsár.  Ef nemandi er með undir 5 í áfanga þarf hann að endurtaka hann.  
Meira >>>

Útskrift
25. maí 2016
Útskrift verður laugardaginn 28. maí kl. 10:30 í Háskólabíó.  Stúdentsefni eiga að vera mætt fyrir kl. 09:45.
Meira >>>

Tilkynning til nemenda á 1. námsári og forráðamanna þeirra
25. maí 2016
  Því miður hefur orðið vart við að Inna gefi villandi upplýsingar til nemenda í nýju námskránni. Skólinn er að keyra tvær námskrár á sama tíma í Innu og því miður virðist kerfið í einhverjum tilfellum nota einkunnareglur eldri námskrár og skrá ,,lokið“ á áfanga í nýju námskránni með einkunnina 4. Skólinn vill ítreka að í nýju námskránni er alveg...
Meira >>>

Einkunnabirting og prófsýning
24. maí 2016
Einkunnir munu birtast á INNU eftir kl. 20:00 í kvöld.  Prófsýning verður á morgun 25. maí.  Sjá hér nánari staðsetningu námsgreina fyrir nemendur á 1., 2. og 3. ári og hvert útskriftarnemar eiga að sækja einkunnir sínar og sjá próf. Prófsýning vorönn 1.-3. bekk
Sækja...   Afhending...

Meira >>>

Prófsýning
23. maí 2016
Prófsýning fyrir nemendur á 1. - 3. námsári verður miðvikudaginn 25. febrúar kl. 12:30-14:00 og fyrir nemendur á 4. námsári  kl. 14:30-15:30 sem fá þá einnig afhent prófskírteini.  Eftir prófsýningu verður æfing fyrir  útskriftina í Hálogalandi.
Meira >>>

Sjúkrapróf 20. maí
19. maí 2016
Öll sjúkrapróf hefjast kl. 09:00.  Þeir sem taka fleiri en eitt sjúkrapróf verða saman í stofu nr. 2 og fá seinna prófið afhent þegar þeir hafa skilað inn því fyrra.  Munnleg próf verða samkvæmt samkomulagi við kennara.  Þeir sem enn eiga eftir að skila inn læknisvottorði skulu skila því á skrifstofu áður en þeir fara í prófið.
Listar...
Meira >>>

Styrkir úr Afreks- og hvatningarsjóði Háskóla Íslands 2016
11. maí 2016
Í júní verður úthlutað í níunda sinn styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði Háskóla Íslands til framhaldsskólanema sem ná afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Frá upphafi hafa 165 nýnemar við Háskólann hlotið styrki úr sjóðnum. Um er að ræða styrki að fjárhæð 300.000 kr. hver, auk þess sem styrkþegar fá skrásetningargjöld...
Meira >>>

Skemmri afgreiðslutími skrifstofu
4. maí 2016
Á meðan á prófum stendur verður skrifstofan með skemmri afgreiðslutíma.  Skrifstofan verður opin frá 08:00-14:00 til og með 20. maí.
Meira >>>

Prófatíð
29. apríl 2016
Vorprófin hefjast mánudaginn 2. maí.  Notkun síma er stranglega bönnuð í prófum og getur ógilt prófúrlausn.  Best væri að sleppa því að taka þá með inni í prófið, nóg er af geymsluskápum í skólanum.
Aðstaða til próflesturs innan veggja skólans verður í Þrísteini á fyrstu og annarri hæð (stofur 21-24) frá kl. 08:00-16:00 virka daga. Við...
Meira >>>

Þær unnu!
28. apríl 2016
Necklash stelpurnar stóðu sig frábærlega vel í harðri keppni Ungra frumkvöðla í gær og unnu verðlaunin um bestu markaðs- og sölumálin. Glæsilegur árangur hjá þeim!
Meira >>>

Necklash áfram
26. apríl 2016
Í fyrirtækjasmiðju ungra frumkvöðla komst MS fyrirtækið Necklash áfram í lokaumferð samkeppni Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi, um nemendafyrirtæki ársins sem fer fram í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 27. apríl.  Þetta eru nemendur úr 3.G.,...
Meira >>>

Niðurstöður nemendakönnunar haust 2015 og vor 2016
22. apríl 2016
Kærar þakkir fyrir þátttökuna.    
Meira >>>

KENNSLA FELLUR NIÐUR
20. apríl 2016
Kennsla fellur niður í dag eftir kl. 14:00 vegna starfsmannafundar.
Meira >>>

Frá fyrirtækjasmiðju MS 14.4
15. apríl 2016

Meira >>>

Vörumessa
13. apríl 2016
Nemendur í þriðja bekk á hagfræðikjörsviði kynna verkefni sín í fyrirtækjasmiðjunni.  Þetta verður lítil útgáfa af kynningu þeirra sem var í Smáralind liðna helgi.
Meira >>>

NJÁLUFERÐ
11. apríl 2016

Meira >>>

MS í Smáranum
8. apríl 2016
Helgina 9. – 10. apríl munu ungir frumkvöðlar frá átta framhaldsskólum kynna og selja vörur sínar í Smáralind. Þetta eru nemendur sem hafa lært að stofna eigin fyrirtæki og vinna að frumkvöðla- eða nýsköpunarhugmynd sinni. Þrettán fyrirtæki frá Menntaskólanum við Sund  (3.bekkur á hagfræðikjörsviði)...
Meira >>>

Skemmtileg stærðfræði
7. apríl 2016
Skemmtileg stærðfræði nefnist kjörsviðsverkefni þeirra Arons Óttarssonar, Jökuls Þ. Sverrissonar og Þorkels Helgasonar, nemenda á eðlisfræðikjörsviði. Um er að ræða app  til að þjálfa krakka í 2. – 3. bekk í stærðfræði. Þeir prófuðu appið á nemendum í Vogaskóla.  
Meira >>>

Lóa Steinunn forseti Euroclio
6. apríl 2016
Lóa Steinunn Kristjánsdóttir, sögukennari í MS, er nýr forseti Euroclio, alþjóðlegra samtaka sem sinna sögukennslu í Evrópu.  Sjá nánari umfjöllun hér. 
Meira >>>

Meira af kjörsviðsverkefnum
6. apríl 2016
Arnar Njáll Hlíðberg og Eggert Halldórsson, nemendur á eðlisfræðikjörsviði bjuggu til tæki til að kveikja í vatni sem kjörsviðsverkefni. Hér sjást þeir félagar með gripinn.
Meira >>>

Óvenjulegt kjörsviðsverkefni
1. apríl 2016
Þennan gervifót hannaði Eydís Embla Lúðvíksdóttir og skilaði inn sem kjörsviðsverkefni.
Meira >>>

Val á námsgrein fyrir kjörsviðsverkefni
1. apríl 2016
Dagana 4. - 6. apríl fer fram val hjá nemendum í 3. bekk á námsgrein fyrir kjörsviðsverkefni sem unnið er á 4. námsári.  
Námslýsingar má finna hér
Meira >>>

Páskafrí
18. mars 2016
Vegna páskafrís verður skrifstofa skólans lokuð frá og með 20. mars til 29. mars.
Skrifstofan opnar aftur 29. mars kl.09:00 og kennsla hefst skv. stundatöflu 30. mars að loknu páskafríi.
  Gleðilega páska!  
Meira >>>

Próftafla vorannar 2016
17. mars 2016
Endanleg útgáfa af próftöflu vorannar 2016 er tilbúin.  Hana má finna í skjalasafni nemenda og starfsmanna á námsnetinu og einnig hér.
Meira >>>

Konrektor kynnir doktorsritgerð
15. mars 2016

Meira >>>

Bókasafnið á nýjum stað
14. mars 2016
Bókasafn Menntaskólans við Sund var opnað á nýjum stað 9. mars sl.   Vegna byggingaframkvæmda var öllum safnkosti pakkað niður vorið 2015 og hefur skólinn því verið án bókasafns megnið af þessu skólaári.  Það var ærið verk fyrir fáar hendur að pakka upp safninu...
Meira >>>

Rokk aldarinnar
9. mars 2016
Leiklistarfélag skólans, Thalía, hefur sýnt söngleikinn Rokk aldarinnar í Hörpu.  Síðasta sýning í kvöld kl. 20:00.  Bráðskemmtileg og hressandi sýning sem hiklaust er hægt að mæla með fyrir unga jafnt sem aldna, aldurstakmark er þó 13 ára. Hægt er að kaupa miða í afgreiðslunni í Hörpu...
Meira >>>

Opið hús 9.mars
7. mars 2016
Miðvikudaginn 9.mars frá kl. 17:00-19:00 verður opið hús og kynning á skólanum fyrir grunnskólanemendur, aðstandendur þeirra og aðra áhugasama.
Meira >>>

Skíðaferð aflýst
7. mars 2016
Skíðaferð sem fyrirhuguð var í dag fyrir fyrsta bekk er aflýst vegna óveðurs í Bláfjöllum.
Meira >>>

Valgreinaval 2016
4. mars 2016
Hér að neðan má finna lýsingar á þeim valgreinum sem nemendur geta valið um. Nemendur sem eru nú á öðru og þriðja ári þurfa að velja tvær valgreinar fyrir næsta skólaár þegar þeir eru komnir á þriðja og fjórða ári.  Valið fer fram á Námsnetinu 5. - 16. mars. Þessir nemendur hafa fengið tölvupóst um þetta ásamt valgreinalýsingum....
Meira >>>

Bekkjartenglar - fundur
1. mars 2016
Bekkjartenglar í 1. bekk eru boðaðir á fund í fundargatinu næsta fimmtudag 3. mars kl. 11:15-11:55 í stofu 11 til að ræða um nýju námskrána og valdaginn sem verður í apríl. Gott væri ef tveir gætu komið úr hverjum bekk, bæði aðal- og varatengill. Konrektor, námskrárstjóri og sjálfsmatsstjóri verða á fundinum.  
Meira >>>

Sjálfsmat nemenda vorönn 2016
24. febrúar 2016
Niðurstöður úr sjálfsmati nemenda fyrir vorönn 2016 má sjá hér.
Meira >>>

SÍF með kynningu
23. febrúar 2016
Samband íslenskra framhaldsskólanema verður með kynningu fimmtudaginn 25. febrúar kl. 11:15 í Bjarmalandi.
Meira >>>

MORFÍS
22. febrúar 2016
Í kvöld mun Verslunarskóli Íslands mæta Menntaskólanum í Sund í átta liða úrslitum. Viðureignin fer fram kl. 20:00 í MS, í Kattholti (matsal) eða opna svæðinu í Þrísteini.  Umræðuefnið er Maður á að gera sitt besta, MS mælir með en VÍ á móti.  
Meira >>>

Matsdagur 16. febrúar
16. febrúar 2016
Í dag er matsdagur.  Þá fellur niður hefðbundin kennsla en einhverjir nemendur eiga að taka sjúkrapróf. Sjá nánar um skipulag matsdags í skránni hér fyrir neðan. Matsdagur
Sækja...

Meira >>>

MS mætir Kvennó í Gettu betur
11. febrúar 2016
Á morgun 12.febrúar mun MS mæta Kvennó í Gettu betur í beinni útsendingu hjá RÚV kl. 20:00.  Áfram MS!
Meira >>>

Árshátíð, vetrarfrí og matsdagur
10. febrúar 2016
Fimmtudaginn 11. febrúar fellur niður kennsla eftir hádegi vegna árshátíðar. 
Föstudaginn 12. febrúar og mánudaginn 15. febrúar er skólanum lokað vegna vetrarfrís. 
Þriðjudagurinn 16. febrúar er matsdagur og fellur þá niður hefðbundin kennsla en einhverjir nemendur verða kallaðir inn til próftöku í sjúkrapróf.  Skrifstofan verður...
Meira >>>

Frá Jafnréttisdegi
8. febrúar 2016
...
Meira >>>

Breyttur skilatími á kjörsviðsverkefni
5. febrúar 2016
Skiladagur lokauppkasts kjörsviðsverkefnis í fjórða bekk er nú 18. febrúar 2016. Sjá nánar allt um kjörsviðsverkefnið hér
Meira >>>

Stuðningstímar í íslensku
5. febrúar 2016
Nemendur í fyrsta bekk eiga þess kost að sækja stuðningstíma í íslensku á eftirfarandi tímum:   Vikudagar Tími Mánudagar 14.00-14.40 Mánudagar 14.50-14.30 Þriðjudagar 13.15-13.55 Föstudagar 14.40-15.30   Nemendur...
Meira >>>

Jöfnunarstyrkur
5. febrúar 2016
Umsóknarfrestur um jöfnunarstyrk vegna vorannar 2016 er til 15. febrúar næstkomandi.  Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn í gegnum sitt svæði í heimabankanum sínum og/eða INNU. Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu?

Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is
Lánasjóður...

Meira >>>

Nafnasamkeppni mötuneytis
1. febrúar 2016
Í síðustu viku stóð matsalan í MS fyrir samkeppni um nafn á mötuneytinu.  Í vinning var matarkort. Notendur matsölunnar, bæði nemendur og starfsmenn skólans, máttu setja inn tillögu að nafni í þartilgerðan kassa.  Um helgina voru miðarnir skoðaðir og það nafn sem kom oftast upp var Kattholt (gamla nafnið) en 15 miðar voru með því nafni af...
Meira >>>

Jafnréttisdagur MS 4. febrúar 2016
27. janúar 2016
Sameiginleg dagskrá í Hálogalandi hefst kl.10:30.   Tónlistaratriði: Reykjavíkurdætur, Erna Hörn 3I og Erlín 1E Free the Nipple: Adda Þóreyjardóttir Panelumræður: Er þörf fyrir femínistafélög í framhaldsskólum? Fulltrúar úr MS, Versló, Kvennó og MH Stjórnandi: Kristín Lilja Sigurðardóttir 3I   Að auki verða...
Meira >>>

Dagur með Ljóðstaf Jóns úr Vör
25. janúar 2016
Dagur Hjartarson íslenskukennari hjá MS vann til verðlauna í ljóðasamkeppni á dögunum og hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir þetta skemmtilega ljóð hér að neðan. Haust­lægð  haust­lægðin kem­ur að nóttu
og merk­ir tréð í garðinum okk­ar með svört­um plast­poka
eins og til að rata aft­ur  og hún rat­ar...
Meira >>>

Gettu betur - 16 liða úrslit 20. janúar
19. janúar 2016
Gettu betur lið MS vann Fjölbrautaskóla Húsavíkur í æsispennandi viðureign þann 12. janúar síðastliðinn og komst þar með í 16 liða úrslitin. Á miðvikudag, 20. janúar, kl. 20:30 mun MS mæta FAS (Fjölbrautaskóla Austur-Skaftafellssýslu) á Rás 2. Ef okkar lið sigrar...
Meira >>>

Drykkjarmál
15. janúar 2016
 Þessi léttu og skemmtilegu margnota bambusdrykkjarmál fást nú á skrifstofu skólans.  Kostar 1100 kr. stykkið. 
Meira >>>

Þátttaka MS-inga í alþjóðaverkefni Ungra frumkvöðla
14. janúar 2016
      Þrjú hundruð nemendur á Íslandi frá átta menntaskólum taka þátt í alþjóðaverkefni Ungra frumkvöðla, Juni­or Achievement, á vorönn 2016 og þar á meðal eru sextíu og tveir nemendur frá hagfræðikjörsviði Menntaskólans við Sund sem jafnframt er fjölmennasti hópurinn frá...
Meira >>>

Foreldrafundur 12. janúar
13. janúar 2016
Í gærkvöldi 12. janúar var haldinn fundur fyrir foreldra og forráðamenn nemenda á fyrsta námsári.  Glærur um efni fundarins er hægt að nálgast hér.
Meira >>>

Mötuneytið og matseðill vikunnar
13. janúar 2016
Mötuneyti MS hefur verið starfandi frá upphafi vorannar og er í öruggum höndum fyrirtækisins Krúsku.  Hægt er að kaupa klippikort á kr. 8000 fyrir 10 heitar máltíðir en í lausu kostar máltíðin 850 kr.  Að auki er hægt að kaupa samlokur, ávexti og drykki.
Hér má sjá matseðil mánaðarins.
Meira >>>

Kjörsviðsbreytingum lokið
12. janúar 2016
Frá og með deginum í dag 12. janúar 2016 er lokað fyrir breytingar á kjörsviði á þessu skólaári.
Meira >>>

Lestrarnámskeið
11. janúar 2016
Hvenær: Boðið verður upp á stuðning í lestri klukkustund á viku frá 18. janúar til 19. mars á vorönn 2016, alls 8 skipti. Hámarksfjöldi í hópi eru 28 nemendur. Nemendur geta valið á milli eftirfarandi tíma: Mánudagar klukkan 15:35-16:35. Fimmtudagar klukkan 16:40-17:40. ...
Meira >>>

Fundur með forráðamönnum
11. janúar 2016
Haldinn verður fundur með foreldrum og forráðamönnum nemenda á fyrsta námsári þriðjudaginn 12. Janúar 2016 kl. 19:45. Áætlaður fundartími er tvær klukkustundir. Markmiðið með fundinum er að efla samstarf forráðamanna og skólans.  Dagskráin er tvíþætt, fyrst er sameiginleg dagskrá á sal og síðan fundur með umsjónarkennurum. Fyrri...
Meira >>>

Skólabyrjun árið 2016
30. desember 2015
Kennsla hefst aftur á nýju ári mánudaginn 4. janúar kl. 08:55 samkvæmt stundaskrá sem birtist innan skamms á INNU.
Meira >>>

Niðurstöður nemendakönnunar haustið 2015
29. desember 2015
Niðurstöður nemendakönnunar fyrir haustið 2015 má sjá hér.
Meira >>>

Afgreiðslutími skrifstofu
18. desember 2015
Skrifstofa MS verður opin á næstunni eins og hér segir: 21.desember frá kl. 8:00-13:00
22. desember frá kl. 8:00-13:00
29. desember frá kl. 9:00-13:00.
Lokað verður frá 23. til 28. desember og frá 30. desember 2015 til 3. janúar 2016.
Skrifstofan opnar aftur eftir hátíðirnar mánudaginn 4. janúar 2016 kl. 8:00.

Meira >>>

Birting einkunna og prófsýning
17. desember 2015
Opnað verður fyrir einkunnir í INNU í kvöld 17. desember kl. 20:00.    Prófsýning verður á morgun 18.desember frá kl. 12:30-14:00 sjá nánar hér fyrir neðan.   Berlín (Lóa stofa 20)                         &nb...
Meira >>>

Sjúkrapróf
14. desember 2015
Þriðjudaginn 15. desember eru sjúkrapróf.  Þau hefjast öll kl. 09:00.  Þeir sem þurfa að taka fleiri en eitt próf munu sitja áfram í sinni stofu.
Meira >>>

Haustannarpróf 2015
30. nóvember 2015
Haustannarprófin 2015 hefjast miðvikudaginn 2. desember og standa til 14. desember. Sjúkrapróf verða haldin 15. desember. Einkunnir verða birtar í Innu þann 18. desember. Prófsýning verður 18. desember kl. 12:30-14:00. Próftafla hvers nemanda er í Innu en almenna próftaflan er á heimasíðunni Próftafla haust 2015 Sækja...
Við...

Meira >>>

Þátttökuverðlaun í nemendakönnun
27. nóvember 2015
Tveir bekkir, 3.D og 4.X, voru með 100% þátttöku í nemendakönnuninni og voru af því tilefni verðlaunaðir með
pitzuveislu í matsalnum.
Meira >>>

Valdagurinn
19. nóvember 2015
 
í dag er valdagurinn/guli dagurinn. Leifur kennslustjóri gengur í bekki og hvetur nemendur í fyrsta bekk að velja sér dýpkunarpakka. Sjá nánar um valdaginn hér
Meira >>>

Heimsókn borgarstjóra
16. nóvember 2015
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri heimsótti skólann í gær 17. nóvember og fundaði með stjórnendum og stjórn nemendafélagsins þar sem meðal annars var rætt um nýja námskrá, styttingu framhaldsskólans, skólabraginn og félagslíf nemenda. Þá fór borgarstjórinn í skoðunarferð um nýbygginguna sem taka á í notkun um áramótin.   ...
Meira >>>

Valdagur 19. nóvember 2015
12. nóvember 2015
19. nóvember er valdagur fyrir nemendur í fyrsta bekk.  Fyrir nemendur á félagsfræðabraut stendur valið á milli þess að læra meiri sögu og félagsfræði eða þá að einbeita sér að hagfræði og stærðfræði.  Nemendur á náttúrufræðibraut velja hinsvegar á milli líffræði og efnafræði eða þá eðlisfræði og stærðfræði.  Meðfylgjandi er eyðublað...
Meira >>>

Sjálfsmatsskýrsla 2014-2015
3. nóvember 2015
Sjálfsmatsskýrsla fyrir skólaárið 2014-2015 er komin út og má nálgast hana hér.
Meira >>>

Nemendakönnun
2. nóvember 2015
Nemendakönnun haustönn 2015 er á Námsnetinu frá 2. til 10. nóvember. Við hvetjum alla nemendur til þátttöku og leggja sitt af mörkum til að bæta skólastarfið. Verðlaun verða veitt þeim bekk sem nær hlutfallslega mestri þátttöku í könnuninni þ.e. pítzuveisla í mötuneyti MS.    
Meira >>>

Bekkjartenglar - fundur
29. október 2015
Í dag, fimmtudaginn 29. október kl. 11:15-11:55 verður haldinn árlegur fundur sjálfsmatshóps með bekkjartenglum allra bekkja. Þarna er vettvangur fyrir fulltrúa nemenda að koma á framfæri málefnum sem brenna á þeim og ræða skólastarfið. 
Fundurinn verður haldinn í stofu 11.    
Meira >>>

MS áfram í Boxinu
26. október 2015
Lið MS komst áfram í úrslit í Boxinu, framkvæmdakeppni framhaldsskólanema, og mun taka þátt í aðalkeppninni í HR laugardaginn 31. október kl. 9-17.  Liðið skipa þau:
 Arnar Njáll Hlíðberg, Þorkell Helgason, Eydís Embla Lúðvíksdóttir, Jökull Þorri Sverrisson og Sæmundur Ragnarsson.  Við óskum þeim til hamingju með árangurinn og góðs...
Meira >>>

Skiptiborð - 5807300
23. október 2015
Ekki er lengur hægt að ná sambandi við skiptiborð skólans með því að hringja í símanúmerið 5807310.  Það er ekki lengur í gildi.  Notið 5807300.
Meira >>>

Miðannarmatið
21. október 2015
Miðannarmatið eða stöðumat haustannar fyrir nemendur í 1. og  2. bekk er nú aðgengilegt í Innu. Hægt er að sjá miðannarmatið annaðhvort undir einkunnablaði eða miðannarmati vinstra megin á forsíðunni eftir innskráningu í Innu. Mjög mikilvægt er að skoða niðurstöðurnar með foreldrum sínum. Bent er á að námsráðgjafar geta veitt góð ráð um skipulag...
Meira >>>

Námstækninámskeið
20. október 2015
Miðvikudaginn 21.október verður örstutt námskeið á vegum námsráðgjafa þar sem fjallað verður um námstækni og námsaðferðir.
Mæting í stofu 20, kl. 15.35
Meira >>>

Íþróttahús ekki í útleigu í verkfalli
15. október 2015
Á meðan á verkfalli SFR stendur verður íþróttahús skólans lokað fyrir útleigu.
Boðaðir verkfallsdagar eru:
15. og 16. október
19. og 20. október
29. og 30. október
2. og 3. nóvember
12. og 13.nóvember
og ótímabundið verkfall frá 16. nóvember  
Meira >>>

Matsdagar og haustfrí
14. október 2015
15. og 16. október verða matsdagar í skólanum og fellur þá niður öll kennsla. Kennarar munu fara yfir vinnu nemenda og birta miðannarmat í kjölfarið 20. október n.k.  15. október mun jafnframt verða notaður fyrir sjúkrapróf og ættu nemendur að athuga á Námsneti hvort þeir hafi verið boðaðir í próf.  Mánudaginn 19. október er haustfrí. Hér...
Meira >>>

Próftafla haustprófa 2015
2. október 2015
Hér er hægt að nálgast próftöflu fyrir haustprófin 2015. Próftafla haust2015
Sækja...

Meira >>>

Tungumáladagurinn 29. september
1. október 2015
Sú skemmtilega hefð hefur skapast milli nágrannaskólanna, Vogaskóla og Menntaskólans við sund, að nemendur úr 3. og. 4. bekk MS fara yfir í Vogaskóla og kynna erlend tungumál (ensku, dönsku, frönsku og þýsku) fyrir yngstu nemendunum.  Í ár var sett upp hringekja með átta litlum hópum sem nemendur MS kenndu á víxl í 15 mínútna lotum. ...
Meira >>>

Þrísteinn lokaður í dag
1. október 2015
Vegna vatnstjóns verður byggingin Þrísteinn lokuð í dag og allir tímar þar falla niður.
Meira >>>

Námstækninámskeið
28. september 2015
Námsráðgjafar halda námstækninámskeið miðvikudaginn 30. september 2015 kl. 15:35 -16:15. Mæting í stofu 20.
Meira >>>

Námskeið um námsaðferðir
7. september 2015
Menntaskólinn við Sund býður upp á stutt námskeið í byrjun skólaárs um námsaðferðir. Námskeiðið er fyrir nemendur með lestrarerfiðleika og/eða stærðfræðierfiðleika (dyslexíu og dyscalculus) sem og annað sem getur haft áhrif á námsframvindu. Námskeiðið verður haldið miðvikudagana 16. september og 23. september kl. 15:35 – 16:15 í stofu 20 í Loftsteini....
Meira >>>

Jöfnunarstyrkur
4. september 2015
Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is. Hægt er að skrá umsókn á Innu eða í netbankanum! Umsóknarfrestur vegna skólaársins 2015-2016 er til 15. október næstkomandi! Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd
Meira >>>

Stoðtímar í stærðfræði
4. september 2015
Boðið verður upp á stoðtíma í stærðfræði fyrir 1. bekk í samstarfi við valfagið Samvinna í stærðfræði.  Þar eru nemendur í þriðja og fjórða bekk að leiðbeina yngri nemendum í umsjá Ileönu Manulescu stærðfræðikennara.  Kennsla fer fram á þriðjudagseftirmiðdögum frá kl. 14:50 - 17:00 í stofu 18.  Fyrsti stoðtíminn verður 15. september....
Meira >>>

Fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema í Menntaskólanum við Sund verður haldinn þriðjudaginn 1. september kl. 19:45.
25. ágúst 2015

Meira >>>

Skólasetning
13. ágúst 2015
Skólinn verður settur 18. ágúst kl. 09:00 á sal.  Kennsla hefst kl. 09:45.  Þennan dag verður kennt eftir sérstakri hraðstundatöflu sem nemendur fá afhenta í fyrstu kennslustund dagsins.  Stundatafla haustannar verður aðgengileg nemendum í INNU 17. ágúst. Nýnemar eru boðaðir í skólann á nýnemakynningu  17. ágúst kl. 15:00 og...
Meira >>>

Bókalistar: 3. bekkur, lífræn efnafræði, breyting, sjá facebook
30. júní 2015

Meira >>>

Bókalistar
24. júní 2015
Bókalistar fyrir skólaárið 2015-2016 hafa verið birtir á heimasíðu skólans.  Þið getið nálgast þá hér
Meira >>>

Sumarlokun skrifstofu MS
24. júní 2015
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með mánudeginum 29. júní.  Skrifstofan opnar aftur 5. ágúst n.k.   
Meira >>>

Framúrskarandi frönskunemar
22. júní 2015
Nýstúdentunum Kristjönu Rúnarsdóttur, Sturlu Sæ Erlendssyni, Adrien Eiríki Skúlasyni og Bryndísi Ingu Þorsteinsdóttur var boðið í  franska sendiherrabústaðinn 15. júní sl. til að taka á móti verðlaunum fyrir framúrskarandi árangur og ástundun í frönsku á stúdentsprófi. Frönskukennararnir Fanný Ingvarsdóttir og Petrína Rós Karlsdóttir eru væntanlega...
Meira >>>

Innritun 2015
19. júní 2015
Innritun í MS er nú lokið. Alls bárust skólanum 522 umsóknir um skólavist. Skólinn innritaði 260 nýja nemendur. Alls voru teknir inn níu bekkir á fyrsta námsár, fjórir á náttúrufræðibraut og fimm á félagsfræðabraut. Vegna mikillar aðsóknar þurfti óvenju háar einkunnir til að komast inn í skólann. Meðaleinkunn nemenda á félagsfræðabraut...
Meira >>>

Gleðjumst en berjumst
19. júní 2015
Menntaskólinn við Sund óskar landsmönnum öllum til hamingju með 100 ára kosningaafmæli kvenna. Jafnframt vonum við að jafnréttið hér á landi verði allra og nái til allra þátta þjóðlífsins. Fögnum því deginum en látum ekki hér staðar numið því margt er ógert í þessum málum.
Meira >>>

19. júní
18. júní 2015
Þann 19. júní eru 100 ár liðin frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt og er því fagnað með hátíðarhöldum um allt land. Af þessu tilefni verður skrifstofa skólans lokuð frá hádegi föstudaginn 19. júní.
Meira >>>

Myndir frá útskrift 2015
16. júní 2015
Hér er hægt að nálgast myndir frá brautskráningu í Háskólabíó 30. maí 2015 sem Hafsteinn Óskarsson tók. Ef myndirnar sjást ekki veljið þá vinstri hnapp efst í hægra horninu sem stjórnar stærð mynda á yfirlitssíðu. Myndir frá einkunnaafhendingu birtast strax en aðrar eru í möppunni Almennar myndir....
Meira >>>

Innritun
10. júní 2015
Úrvinnsla innritunar stendur yfir til 23. júní og er stjórnað af námsmatsstofnun. Skólinn getur engar upplýsingar gefið um stöðu innritunar fyrr en eftir 23. júní.  
Meira >>>

Skóladagatal
9. júní 2015
Skóladagatal fyrir skólaárið 2015-2016 hefur verið birt.  Samkvæmt því hefst kennsla 18. ágúst. Skóladagatal
Meira >>>

Endurtektarpróf
27. maí 2015
Próflota 1 þriðjudagur 2. júní kl. 09:00 Próflota 2 þriðjudagur 2. júní kl. 13:00 Próflota 3 miðvikudagur 3. júní kl. 09:00 CSI3v3       FJÁ3V3       LAN1F3       DAN1F3       JAR1M3     ...
Meira >>>

ÚTSKRIFT
27. maí 2015
Útskrift verður í Háskólabíói 30. maí kl. 10:30.
Meira >>>

LOKAÐ VEGNA FUNDA
26. maí 2015
Skrifstofa skólans verður lokuð vegna starfsmannafunda þriðjudaginn 26. maí frá  kl. 09:00-12:30 og miðvikudaginn 27. maí frá kl. 09:00-13:00. 
Meira >>>

EINKUNNIR OG PRÓFSÝNING
21. maí 2015
Opnað verður fyrir INNU í kvöld kl. 20:00 Prófsýningin verður á morgun föstudag 22. maí fyrir 1-3 bekk kl. 12:30 til 14:00 í Gnoðarvogi og kl. 14:30 til 15:30 fyrir 4 bekk. Nemendur eru hvattir til að mæta.  Sjá nánar hér fyrir neðan um fyrirkomulagið: Afhending einkunna 4 bekk
Sækja... Prófsýning vorönn...

Meira >>>

Sjúkrapróf
18. maí 2015
Öll sjúkrapróf haldin Gnoðarvogi og hefjast flest kl. 09:00. Nánari upplýsingar á töflu í anddyri skólans.  
Meira >>>

Útskrift
15. maí 2015
Útskrift stúdenta Menntaskólans við Sund fer fram í Háskólabíó laugardaginn 30. maí kl. 10:30.  Athöfnin tekur 1,5-2 klst.
Meira >>>

Aðstaða til próflestrar
8. maí 2015
Aðstaða til próflestrar er í skólanum í stofum 22-29 í Þrísteini alla virka daga frá 8.10-20.30 og laugardaga frá 8.00-16.00. Skólinn er lokaður á sunnudögum. Einnig er les- og vinnuaðstaða í tölvustofum og bókasafni virka daga frá 8-16 (15 á föstudögum). Nemendur eru hvattir til að undirbúa sig vel fyrir prófin.
Meira >>>

Prófatíð
30. apríl 2015
Prófatíminn hófst í dag, 30. apríl. Nemendur eru hvattir til að nýta tímann milli prófa vel til upprifjunar og undirbúnings. Prófreglur skólans má finna hér á síðunni. Þar er einnig að finna hagnýt ráð fyrir  fyrir nemendur í próflestri. Athugið að öll skrifleg próf eru í...
Meira >>>

Síðasti kennsludagur
24. apríl 2015
Síðasti kennsludagur á þessu skólaári verður 29. apríl.  Kennt verður til hádegis þann dag.
Meira >>>

Fyrirmyndardagurinn
17. apríl 2015
Í tilefni Fyrirmyndardagsins 17. apríl hefur skólinn fengið tvo gestastarfsmenn í heimsókn.  Þeim verður kynnt starfsemi stofnunarinnar og fá að fylgjast með völdum starfsmönnum við störf sín. Fyrirmyndardagurinn er hluti af átakinu Virkjum hæfileikana og þann dag er atvinnuleitendum með skerta starfgetu boðið að fylgjast með störfum í fyrirtækjum...
Meira >>>

Lokun bílastæðis við Gnoðarvog
14. apríl 2015
Vegna byggingarframkvæmda verður bílastæði skólans við Gnoðarvog lokað miðvikudaginn 15. apríl frá 08:00 - 16:00.
Meira >>>

MS á Vörumessu í Smáranum
10. apríl 2015
  Á föstudaginn 10. apríl og laugardaginn 11. apríl verða 42 hópar ungra frumkvöðla í Smáralind að kynna og selja vörur sínar. Þetta eru framhaldsskólanemendur sem hafa lært að stofna fyrirtæki og vinna að frumkvöðla- eða nýsköpunarhugmynd sinni. Nemendur á hagfræðikjörsviði MS verða með...
Meira >>>

Páskar
27. mars 2015
Páskafrí  nemenda hefst mánudaginn 30. mars og varir til og með 7. apríl.  Kennsla hefst aftur 8. apríl samkvæmt stundatöflu.  Skrifstofa skólans í Faxafeni 10 verður opin frá 10:00-14:00 mánudaginn 30. mars  og byggingin í Gnoðarvogi verður opin á sama tíma fyrir þá nemendur sem þurfa að skila af sér verkefnum í hólf kennara. ...
Meira >>>

Þriggja ára nám til stúdentsprófs
23. mars 2015
Allir nýnemar næsta haust verða innritaðir í þriggja ára nám til stúdentsprófs sem skipulagt er sem 206 F-einingar. Ein F-eining svarar til 6-8 klukkustunda vinnu nemenda í þrjá daga. Eldri nemendur skólans eiga rétt á að ljúka sínu námi skv. þeirri námskrá sem var þegar þeir hófu nám við skólann. Nýjar námsbrautir MS eru skipulagðar með þarfir...
Meira >>>

Valgreinaval
23. mars 2015
Valgreinaval fyrir skólaárið 2015-2016 stendur yfir núna og fer fram á Námsnetinu frá 20.-27.mars.  Nemendur velja fjórar valgreinar, tvær sem aðalval og tvær sem varaval.  Hægt er  að breyta vali á Námsnetinu til 4. apríl.  Sjá valgreinalýsingar hér
Meira >>>

Sólmyrkvi
20. mars 2015
Nemendur fylgjast með sólmyrkvanum
Meira >>>

Frá opnu húsi
20. mars 2015
Rúnar segir frá töfrum eðlisfræðinnar
Meira >>>

MS vann MR
18. mars 2015
MS  vann MR í Morfískeppni skólanna í gærkvöldi 17. mars með 18 stiga mun. Viðureignin fór fram í Þrísteini og var send út beint á youtube. Umræðuefnið var félagslegt taumhald sem MS mælti með en MR á móti.  Þar með er lið MS komið í undanúrslit.  Liðið skipa þau Kristín Lilja Sigurðardóttir, Sólrún Freyja Sen, Steinar Ingi...
Meira >>>

Opið hús fyrir 10. bekk
17. mars 2015
Opið hús verður í MS 18. mars frá klukkan 17-19. Kynning á náminu, verkum nemenda og félagsstarfi nemendafélagsins. Kennarar, námsráðgjafar og stjórnendur verða til viðtals. Dagskrá 18. mars 2015 kl. 17:00 – 19:00 ·       Andholt – teikningar af nýrri viðbyggingu MS. · &n...
Meira >>>

Próftafla vorprófa 2015
13. mars 2015
Endanleg útgáfa próftöflu fyrir vorpróf hefur verið gefin út.  Sjá hér að neðan og undir flokknum NÁMIÐ. Próftafla vor 2015
Meira >>>

Lokun skrifstofu
5. mars 2015
Skrifstofa skólans verður lokuð í dag milli kl.09:00-11:00 vegna vinnu við frágang eldri skjala til Þjóðskjalasafns.
Meira >>>

Forritunarkeppni framhaldsskólanna
4. mars 2015
Um keppnina Forritunarkeppni framhaldsskólanna er fyrir alla nemendur í framhaldsskólum sem hafa áhuga á hönnun, forritun og tölvum. Föstudaginn 13. mars mæta keppendur í HR þar sem fyrirkomulag er útskýrt og þeir fá úthlutað vinnuaðstöðu. Þar gefst einnig gott tækifæri til að kynnast öðrum keppendum. Laugardaginn 14. mars hittast keppendur kl....
Meira >>>

Stöðumat á vorönn
2. mars 2015
Stöðumat á vorönn birtist á einkunnablaði.  Ef fólk á erfitt með að finna það er hugsanlega betra að nota eldra viðmót INNU.
Meira >>>

Bílastæði við inngang Þrísteins
26. febrúar 2015
Bílastæði við inngang Þrísteins verða lokuð frá og með föstudeginum 27. febrúar.  Ástæðan er vinna við jarðvegsskipti og mun þetta ástand vara einhverja daga. Inngangurinn að Þrísteini verður notaður eftir sem áður. 
Meira >>>

Opið hús
23. febrúar 2015
Opið hús fyrir 10.bekk verður miðvikudaginn 18.mars frá kl. 17.00 - 18.30. 
Meira >>>

Góð skemmtun á árshátíðarmorgni
18. febrúar 2015

Meira >>>

Vetrarfrí 19. og 20. febrúar
18. febrúar 2015
Vegna vetrarfrís 19. og 20. febrúar og kynnisferðar starfsfólks til Kaupmannahafnar verður skólinn lokaður frá kl. 11:00 í dag 18. febrúar til og með 20. febrúar.  Hefðbundið skólastarf hefst aftur mánudaginn 23. febrúar. 
Meira >>>

KENNSLA FELLUR NIÐUR
16. febrúar 2015
Kennsla fellur niður  kl. 8.55-10.30  þriðjudaginn 17. febrúar vegna fundar Kennarasambands Íslands og Félags Framhaldsskólakennara um kjaramál.
Meira >>>

Aðstoð við heimanám
3. febrúar 2015
Aðstoð við heimanám  verður í stofu 11 alla þriðjudaga vorönn 2015 frá kl. 15:30 -16:30.  
Meira >>>

Stoðtímar í stærðfræði í febrúar
29. janúar 2015
Vekjum athygli á stoðtímum í stærðfræði fyrir nemendur í 1. bekk þar sem nýr almanaksmánuður, febrúar,  er að hefjast eftir helgi.   Greitt fyrir hvern almanaksmánuð í senn 1000 kr. Líka hægt að kaupa staka tíma kr. 500 fyrir næsta mánudag.  Kennsla fer fram á mánudögum í stofu 18 frá kl. 14:50-17:00, eftir því sem hentar hverjum....
Meira >>>

Jafnréttisdagur 28. janúar 2015
28. janúar 2015
Góðir gestir sóttu skólann heim í dag og fræddu okkur um fjölmargt sem er að gerast í jafnréttismálum. Nemendur sýndu jafnréttismálum áhuga og var góð þátttaka í málstofunum. Skólinn þakkar gestunum kærlega fyrir erindi og umræðufundi. Í hléi á milli málstofa flutti Sædís Ýr Jónasdóttir ræðu um femínisma, kvennabaráttu og jafnrétti og kallaðist ræða...
Meira >>>

Þrísteinn kl. 10:25
28. janúar 2015
Sædís Ýr Jónasdóttir 2. G flytur ræðu í tilefni jafnréttisdagsins. Kynnir verður Árni Freyr Hallgrímsson 4. G, ritari SMS.
Meira >>>

Jafnréttisdagur MS 28. janúar 2015
26. janúar 2015
Tilboð til bekkja um fræðsluerindi og umræður kl. 9:45 og 10.30.ATHUGIÐ: Kennsla fellur ekki niður og hver bekkur verður að fá samþykki kennara. Hver bekkur hefur kost á að velja eitt atriði og eitt til vara í samráði við kennara. Fyrstur velur, fyrstur fær. Kennari sendir tölvupóst til konrektors, sigurrose@msund.is.      ...
Meira >>>

Heimanám
20. janúar 2015
Skólinn mun bjóða nemendum aðstöðu til heimanáms tvisvar í viku í stofum 23 og 25,  mánudaga og fimmtudaga frá kl. 14:40-18:00. Þetta fyrirkomulag hefst fimmtudaginn 22. janúar.
Meira >>>

Námstækninámskeið
16. janúar 2015
Námstækninámskeið fyrir nemendur verður haldið  fimmtudaginn 22. janúar í fundargati  kl. 11.15 hjá námsráðgjöfum þriðju hæð í Gnoðarvogi.
Meira >>>

Jöfnunarstyrkur
16. janúar 2015
Umsóknarfrestur um jöfnunarstyrk vegna vorannar 2015 er til 15.febrúar næstkomandi! Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn í gegnum sitt svæði í heimabankanum sínum og/eða Innu, vefkerfi framhaldsskólanna. Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu?

Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is...
Meira >>>

Foreldrafundur 13. janúar
14. janúar 2015
Á foreldrafundi 13. janúar var kynning á námsbrautum skólans sem og niðurstöðum haustannarprófa í fyrsta bekk. Brautakynningin hefur verið sett á heimasíðuna undir ÞJÓNUSTA - Foreldraráð Menntaskólans við Sund - Efni af foreldrafundi janúar 2015. Fulltrúar úr stjórn foreldraráðs skólans mættu á fundinn og hvetja þeir alla foreldra og forráðamenn nemenda...
Meira >>>

Foreldrafundur
13. janúar 2015
Í kvöld er fundur með foreldrum og forráðamönnum nemenda á fyrsta námsári og hefst hann kl. 19:45. Á fundinn mæta fyrir hönd skólans stjórnendur, sviðstjórar og námsráðgjafar og umsjónarkennarar í 1. bekk. Einnig mætir fulltrúi úr stjórn foreldraráðs MS á fundinn. Dagskrá:
1. Kynning sviðstjóra á kjörsviðum innan námsbrauta.
Félagsfræðabraut,...
Meira >>>

Breytingar á valgreinum
8. janúar 2015
Lokafrestur til að skila inn umsóknum um breytingu á valgrein er til hádegis föstudaginn 9. janúar.  Umsóknir sem bárust í þessari viku hafa verið afgreiddar.  Því miður var ekki hægt að verða við óskum allra vegna plássleysis í hópum.  Hópar í valgreinunum Hobbitinn, Hringadróttinssaga og Harry Potter í kvikmyndum (HBK3v3) og Jóga...
Meira >>>

Stærðfræði í 2. bekk hagfræðikjörsviðs
30. desember 2014
Kennslubók í stærðfræði í 2. bekk hagfræðikjörsviðs: Lars-Eric Björk, Hans Brolin: Stærðfræði 363, Föll og deildun, úr Stærðfræði 3000 seríunni.
Meira >>>

Jólaleyfi og opnunartími skrifstofu
19. desember 2014
Jólaleyfi nemenda er frá 20. desember til 5. janúar en þann dag hefst kennsla kl. 12.30. Skrifstofa skólans í Faxafeni 10 verður opin mánudaginn 22. desember frá klukkan 8.00 til 16.00 og þriðjudaginn 30. desember frá klukkan 11.00 til 14.00. Lokað verður í Gnoðarvogi. Skrifstofa skólans opnar að loknu jólaleyfi 5. janúar kl. 8.00.
Meira >>>

Prófsýning og skrifstofuhald 19. desember
17. desember 2014
Prófsýning fer fram í kennslustofum skólans við Gnoðarvog. Prófsýning hefst kl. 12:30 og stendur til 14:00. Nemendum er bent á að á prófsýningu geta þeir skoðað prófin sín, athugað hvað gekk vel og hvað ekki og einnig séð sundurliðaða náms- og prófseinkunn. Í skjalinu hér fyrir neðan er yfirlit yfir hvar prófsýning í einstökum greinum fer fram. Þann...
Meira >>>

MS á Facebook
15. desember 2014
Menntaskólinn við Sund er nú kominn á Facebook. Sjá tengil hér á heimasíðu skólans.
Meira >>>

Sjúkrapróf 16. desember
15. desember 2014
Hér fyrir neðan er tímatafla fyrir sjúkrapróf 16. desember.  Þeir nemendur sem þurfa að fara í fleiri en eitt sjúkrapróf skulu mæta fyrir kl. 09:00 og gefa sig fram við skrifstofu.     Sjúkrapróf 16. desember klukkan 9:00 Danska fyrsti bekkur Enska fyrsti bekkur Enska fjórði bekkur félag...
Meira >>>

Sjúkrapróf
10. desember 2014
Sjúkrapróf verða haldin í Faxafeni 10 þriðjudaginn 16. desember.  Nánari tímasetning einstakra prófa auglýst síðar hér á vefnum. 
Meira >>>

Lesaðstaða laugardag
5. desember 2014
Lesaðstaða fyrir nemendur verður opin í Þrísteini laugardag 6. desember frá 10:00-14:00
Meira >>>

Lokun INNU
4. desember 2014
Lokað hefur verið fyrir aðgang að INNU á meðan á prófum stendur.  INNA opnar aftur 18. desember kl. 20:00. 
Meira >>>

Próftafla haust 2014
24. nóvember 2014
Lítillegar breytingar hafa verið gerðar á próftöflu haustannar.  Sækja...
Meira >>>

Sjálfsmatsskýrsla
21. nóvember 2014
Sjálfsmatsskýrsla skólans fyrir skólaárið 2013-2014 er komin á vefinn. Sjálfsmatsskýrsla   
Meira >>>

Nordjyllands Idræthøjskole
18. nóvember 2014
Fulltrúar frá Nordjyllands Idræthøjskole í Danmörku verða með kynningu fyrir nemendur MS fimmtudaginn 20. nóvember frá kl. 11:15-12:30 í anddyri skólans og í Bjarmalandi. 
Sjá nánar www.nih.dk
Meira >>>

Stöðupróf
14. nóvember 2014
Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin 24. til 27. nóvember kl. 16:00 í Menntaskólanum við Hamrahlíð í stærðfræði og eftirtöldum tungumálum: dönsku, ensku, frönsku, ítölsku, norsku, spænsku, sænsku og þýsku. Próf í námsefni fyrstu tveggja  stærðfræðiáfanga verða í boði á íslensku eða ensku. Rafræn skráning (On-line...
Meira >>>

MS náði þriðja sæti í Boxinu
11. nóvember 2014
  Boxið, árleg framkvæmdakeppni þar sem framhaldsskólanemendur spreyta sig á að leysa ýmiskonar þrautir, fór fram í háskólanum í Reykjavík 8. nóvember síðastliðinn. Keppninni er ætlað að vekja áhuga nemenda á tækninámi og störfum í iðnaði (sjá nánar um keppnina á http://www.ru.is/boxid). Lið MS lenti í þriðja sæti og óskar skólinn nemendum til...
Meira >>>

Próftafla
29. október 2014
Próftafla fyrir haustönn 2014 er tilbúin, sjá hér fyrir neðan. Einnig hægt að nálgast próftöflu undir tenglinum Námið. Próftafla haust 2014 - endanleg
Acrobat skjal, 325 kB
Sækja...

Meira >>>

Að ná tökum á prófkvíða
28. október 2014

Fimmtudaginn 30. október hefst námskeið á vegum námsráðgjafa sem á að aðstoða nemendur við að ná tökum á prófkvíða.

Námskeiðið stendur í fjórar vikur, á fimmtudögum frá kl. 11:15 til 12:15.

 

Skráning hjá námsráðgjöfum Björk Erlendsdóttur bjorke@msund.is og Hildi Höllu Gylfadóttur hildurhg@msund.is


Meira >>>

Frá forvarnardeginum 1. október
16. október 2014
Forvarnardagurinn var haldinn hátíðlegur í skólanum 1. október síðastliðinn. Nemendur og kennarar unnu verkefni tengd forvörnum en hápunktur dagsins var þegar hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands kom í heimsókn og ræddi við nemendur um forvarnir.  
Meira >>>

Litir og gleði á landbúnaðarviku
16. október 2014
Litir og gleði hafa einkennt skólastarfið undanfarna daga. Landbúnaðarvika með tilheyrandi skreytingum og klæðnaði og   margvíslegar uppákomur hafa fært okkur birtu inn í vaxandi skammdegið.
Meira >>>

Skrifstofa og bókasafn
16. október 2014
Í dag verður lokað á skrifstofu og bókasafni skólans frá kl. 11:45 - 13:00.
Meira >>>

Matsdagar 16. og 17. október
9. október 2014
Matsdagar verða 16. og 17 október. Ekki verður kennt samkvæmt hefðbundinni stundaskrá en skólinn gerir ráð fyrir að dagarnir verði nýttir til náms og mats. Húsnæðið í Gnoðarvogi  verður opið 16. október kl. 08:00-16:00 og verður lestrar- og vinnuaðstaða fyrir nemendur á bókasafni og í tölvustofum og opnum rýmum.  Þann 16. október verða...
Meira >>>

Stakir stuðningstímar í stærðfræði fyrir 1. bekk
29. september 2014
Frá og með október n.k. verður hægt að kaupa staka stuðningstíma í stærðfræði.  Hver tími  kostar 500 kr. og fer skráning fram  á skrifstofu skólans í Faxafeni 10 frá mánudegi til fimmtudags að báðum dögum meðtöldum.  Þannig er skráð í og greitt fyrir stuðningstímann sem kenndur er mánudag í vikunni á eftir.    Jafnframt...
Meira >>>

Ólag á tölvupóstkerfi
29. september 2014
Vegna rafmagnsbilunar sem varð  sl. föstudagskvöld er enn ólag á tölvupóstkerfi skólans. Unnið er að viðgerð. Innsendur póstur mun berast skólanum um síðir þegar kerfið er komið í lag.
Meira >>>

Forvarnardagurinn 1. október
29. september 2014
Forvarnardagurinn verður haldinn 1. október næstkomandi. Þennan dag verður fræðsla um forvarnir, nemendur vinna að margvíslegum verkefnum tengdum forvörnum og forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, mun heimsækja skólann og ræða við nemendur og starfsfólk. Sjá nánar um forvarnardaginn [hér]
Meira >>>

Jöfnunarstyrkur
25. september 2014
Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna jöfnunarstyrks á skólaárinu 2014-2015. Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn í gegnum sitt svæði í heimabankanum sínum og/eða Innu, vefkerfi framhaldsskólanna. Umsóknarfrestur vegna haustannar 2014 er til 15. október næstkomandi! Jöfnunarstyrkur

Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu?

Kynntu...
Meira >>>

Matsdagar 16. og 17. október
24. september 2014
Í skóladagatali Menntaskólans við Sund skólaárið 2014-2015 er gert ráð fyrir matsdögum 16. og 17. október. Kennsla samkvæmt stundaskrá fellur niður þessa tvo daga. Fimmtudaginn 16. október geta nemendur átt von á að verða kallaðir í skólann einhvern tímann milli 9.45 og 14.40. Deildir/fög munu skipuleggja eftir atvikum hlutapróf, munnleg próf og skil...
Meira >>>

Áfangasigri fagnað
18. september 2014
Starfsfólk Menntaskólans við Sund fagnaði áfangasigri í byggingaframkvæmdum við skólann þegar opnun tengibyggingar milli Þrísteins og aðalbyggingar var fagnað á táknrænan hátt með því að klippa á borða og ganga síðan á milli bygginganna. Margrét Harðardóttir sviðstjóri og félagsfræðikennari klippti á borðann og fékk hún aðstoð frá Þorbirni Guðjónssyni...
Meira >>>

Foreldrafundur
3. september 2014
Fundur með foreldrum og forráðamönnum nemenda í 1. bekk verður haldinn 9. september kl. 19:45.  Nánari upplýsingar um þennan fund munu koma með bréfi til foreldra/forráðamanna á næstu dögum.  
Meira >>>

Stuðningstímar í stærðfræði
28. ágúst 2014
Í vetur  verða í boði stuðningstímar í stærðfræði fyrir alla nemendur  í  1. bekk.  Kennslan fer fram á mánudögum í stofu 18.   Skráning fer fram í afgreiðslu skrifstofunnar að Faxafeni 10.  Ekki er hægt að skrá  sig nema greiða  um leið. Greitt er fyrir hvern almanaksmánuð í senn 1000 kr.  Hægt að...
Meira >>>

Bílastæði við Þrístein
25. ágúst 2014
Vinsamlega gætið þess að leggja bílum löglega við Þrístein.  Byggingastarfsmenn þurfa að komast að með vinnuvélar sínar og tæki.  Þeir bílar sem er ólöglega lagt verða fjarlægðir á kostnað eiganda
Meira >>>

Hádegislokun afgreiðslu
22. ágúst 2014
Afgreiðsla skrifstofunnar í Faxafeni 10 verður framvegis lokuð milli 11:30-12:00.
Meira >>>

Stundatöflur
21. ágúst 2014
Allir sem greitt hafa skólagjöldin geta nú nálgast stundatöflur sínar á INNU
Meira >>>

Bókalistar 2. og 3. bekkjar
18. ágúst 2014
Við biðjumst velvirðingar á því að fyrir mistök þá birtust bókalistar frá fyrra ári á vefnum okkar.  Þetta voru bókalistar 2. og 3. bekkjar. Þetta hefur verið lagað.  Vinsamlegast athugið hvort þið eruð með réttan lista. Rangur listi er með yfirskriftina Bókalisti MS skólaárið 2013-1014.  Réttur listi ber yfirskriftina Bókalisti MS skólaárið ...
Meira >>>

Aðgangur að bókalistum
16. ágúst 2014
Beðist er velvirðingar á því að ekki er hægt að nálgast bókalista hér á síðunni eins og er. Þessu verður kippt í liðinn eins fljótt og hægt er.
Meira >>>

Skólasetning og upphaf kennslu
12. ágúst 2014
Skólinn verður settur föstudaginn 22. ágúst kl. 9:00 í Hálogalandi (íþróttasalnum). Kennsla hefst sama dag kl. 9:45 samkvæmt stundaskrá og munu nemendur geta skoðað stundatöflur sínar í Innu fimmtudaginn 21. ágúst. Nýnemar verða boðnir velkomnir fimmtudaginn 21. ágúst kl. 15:00 og eiga þeir að mæta í Hálogaland (íþróttasalinn).  Nýnemar og forráðamenn...
Meira >>>

Bókalisti fyrir 2014-2015
28. júní 2014
Bókalisti skólaársins 2014-2015 er kominn hér á vefinn. Listinn er birtur með fyrirvara um breytingar sem kunna að verða á honum. [skoða bókalista]
Meira >>>

Myndir frá brautskráningu stúdenta 2014
7. júní 2014
Myndir frá brautskráningu stúdenta sem fór fram í Háskólabíói laugardaginn 31. maí eru vistaðar á veraldarvefnum (picassaweb.google.com) í upplausn sem hentar til útprentunar í allt að A4 stærð. Myndirnar er hægt að nálgast með því að smella á hlekkina hér að...
Meira >>>

Brautskráning stúdenta
28. maí 2014
Brautskráning stúdenta og skólaslit verða frá Háskólabíói laugardaginn 31. maí. Athöfnin hefst klukkan 10:30 stundvíslega. Strax að lokinni athöfn verður myndataka af nýstúdentum á tröppunum framan við aðalbyggingu Háskóla Íslands. Ljósmyndari á vegum skólans mun taka myndir af athöfninni og þá einnig þegar nemendur taka á móti prófskírteinum sínum....
Meira >>>

Skrifstofa skólans er flutt
26. maí 2014
Afgreiðsla skrifstofu er flutt í Faxafen 10 vegna byggingaframkvæmda við skólann. Þar eru einnig skrifstofur, konrektors, kennslustjóra og fjármálastjóra. Síminn á skrifstofu skólans er 5807310, Beinn sími á skrifstofu konrektors er 5807319, sími hjá kennslustjóra er 5807325, sími á skrifstofu fjármálastjóra 5807320.
Meira >>>

Einkunnir og stúdentsefni
23. maí 2014
Væntanlegir útskriftarnemar eru minntir á útskriftaræfingu í Hálogalandi að lokinni prófsýningu 27. maí klukkan 15:30. Vakin er athygli á því að skrifstofa skólans mun hafa samband við 4. árs nemendur komi til þess að þeir uppfylli ekki lágmarksskilyrði til útskriftar. Þetta verður gert um leið og ljóst hver staðan er.
Meira >>>

Aðgangur að Innu
13. maí 2014
Lokað verður fyrir aðgang nemenda að Innu, upplýsingakerfi framhaldsskólanna, frá 9. – 26. maí en einkunnir verða birtar í Innu þann 26. maí kl. 20:00.
Meira >>>

Prófatíminn
8. maí 2014
Vorannarpróf hófust þann 6. maí, en síðasti almenni prófdagur er fimmtudagur 22. maí. Á prófatíma fellur kennsla niður og skólinn er allur skipulagður fyrir prófahald. Prófin eru haldin í Hálogalandi, Jarðsteini og Loftsteini. Einn dag þann 19. maí verða prófin einnig í Fensölum. Aðstaða til að lesa fyrir próf er á bókasafni skólans frá 8:00-16:00,...
Meira >>>

MS-ingar fengu sérstök verðlaun í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla fyrir bolina Reykjavík xroses. Nemendurnir sem fengu verðlaunin eru Sturla Sær Erlendsson 3. H, Knútur Magnús Björnsson 3. G og Arnar Leó Ágústsson 3. G. Sjá nánar http://ungirfrumkvodlar
24. apríl 2014

Meira >>>

Nám í páskafríi
11. apríl 2014
Nú fer páskafríið að skella á og af því tilefni hvetur skólinn nemendur sína til þess að nýta þann tíma til náms í eins miklum mæli og unnt er. Þrátt fyrir viðbótarkennsludaga að loknu verkfalli verður sá tími sem glataðist í verkfallinu ekki bættur nema að litlum hluta og því verða nemendur að vera alveg sérstaklega duglegir. Vakin er athygli á því...
Meira >>>

Próftafla vorannar í samræmi við breytt skóladagatal
8. apríl 2014
Búið er að setja hér á vefinn próftöflu vorannar 2014 eins og hún er samkvæmt nýju skóladagatali í kjölfar verkfalls. Próftaflan verður einnig sett í INNU þar sem hver nemandi getur séð sína eigin próftöflu. [skoða próftöfluna]
Meira >>>

Lok vorannar- skóladagatal með breytingum
8. apríl 2014
Dagatal vorannar með breytingum vegna verkfalls er komið hér á vefinn [skoða] Vakin er athygli að kennt verður þriðjudaginnn eftir páska sem og sumardaginn fyrsta. Alls er bætt við 6 kennsludögum og þurfa nemendur að nýta hverja mínútu vel þessa tíma. Góð mæting í tíma er lykilatriði. Vorprófum seinkar um eina viku og...
Meira >>>

Kennsla hefst á mánudag samkvæmt stundaskrá
4. apríl 2014
Kjarasamningur hefur verið undirritaður og verkfalli hefur því verið frestað. Kennsla hefst því samkvæmt stundaskrá mánudaginn 7. apríl. Gert er ráð fyrir að á þriðjudaginn, 8. apríl, fundi rektor með nemendum á sal skólans þar sem farið verður yfir það hvernig önninni verður lokið.
Meira >>>

Skólinn á verkfallstíma
17. mars 2014
Opnunartími skrifstofu skólans verður óbreyttur á meðan á verkfalli stendur. Húsnæðið að Gnoðarvogi 43 verður opið fyrir nemendur til náms frá klukkan 8:00-16:00 alla virka daga. Kennslustofur og tölvustofur verða opnar eftir þörfum og einnig bókasafn skólans. Nemendur eru hvattir til sjálfsnáms og þess að reyna að fylgja kennsluáætlunum í hverri...
Meira >>>

Tilboð í byggingaframkvæmdir við MS opnuð
11. mars 2014
Opnuð voru í dag tilboð verktaka í byggingaframkvæmdir við skólann. Alls bárust átta tilboð í verkið en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rétt ríflega einn milljarð og fimmtíu milljónir króna. Nú verður farið yfir tilboðin og kannað hvort um villur sé að ræða í þeim og þau séu í samræmi við útboðslýsingu. Vonast er að framkvæmdir við nýja byggingu hefjist...
Meira >>>

Ársskýrsla MS 2013
11. mars 2014
Ársskýrsla skólans fyrir 2013 er komin á vefinn [lesa]
Meira >>>

Valgreinaval
11. mars 2014
Valgreinaval fyrir næsta skólaár fer nú fram á Námsnetinu og stendur til 20. mars 2014 (efst til vinstri á forsíðu Námsnetsins undir skráning í námskeið). Nemendur í 2. og 3. bekk velja tvær valgreinar og tvær til vara.  Hægt er að breyta valinu til 20. mars. Þeir nemendur hafa forgang sem velja sér valgrein á réttum tíma þ.e. fyrir 20. mars. ...
Meira >>>

Skólanámskrá 2013-2014
6. mars 2014
Skólanámskrá Menntaskólans við Sund nefnist Ratsjá. Hægt er að nálgast nýjustu útgáfu hennar (gildir fyrir skólaárið 2013-2014) hér að neðan: RATSJÁ
Meira >>>

Opið hús verður 10. mars
5. mars 2014
Opið hús verður í skólanum að Gnoðarvogi 43 10. mars frá klukkan 17-19. Allir eru velkomnir  
Meira >>>

Miðannarmat er nú aðgengilegt í Innu
24. febrúar 2014
Miðannarmat er nú aðgengilegt í Innu fyrir nemendur í 1. og 2. bekk. Miðannarmatið er vinstra megin á forsíðu Innu undir Einkunnablað eða Miðannarmat. Nemendur eru hvattir til að skoða miðannarmatið vel og taka það alvarlega. Vonandi hafa sem flestir náð markmiðum sínum í náminu. En ef ekki þá er ennþá mikill tími til að taka sig á í náminu og gera...
Meira >>>

Gleði á sal á árshátíðardegi
13. febrúar 2014
Það var fjölmennt og skemmtilegt í Hálogalandi í morgun á árshátíðardegi nemenda þegar þeir og starfsfólk skólans áttu saman góða stund við leiki, tónlist og aðra skemmtan.
Meira >>>

Stúdentsefni athugið að skil á lokauppkasti kjörsviðsverkefnis eru mánudaginn 10. febrúar
31. janúar 2014

Meira >>>

Fræðslufundur um námsaðferðir í stærðfræði 28. janúar 2014 kl. 19:30 fyrir foreldra nemenda í 1. bekk
28. janúar 2014

Meira >>>

Jafnréttisdagur MS
22. janúar 2014
Jafnréttisdagur verður í MS fimmtudaginn 23. janúar. Sameiginleg dagskrá verður fyrir alla nemendur og starfsmenn í Hálogalandi kl. 10:30. Þar kynnir Blær, femínistafélag MS starfsemi sína, hljómsveitin Eva flytur tvö lög og Hildur Lillendahl flytur erindi og svarar fyrirspurnum um femínisma og jafnrétti kynjanna. Andri Steinn Hilmarsson kynnir dagskrána....
Meira >>>

Foreldrafundur nemenda í 1. bekk verður haldinn þriðjudaginn 14. janúar 2014 kl. 19:45
10. janúar 2014

Meira >>>

Upphaf vorannar 2014
3. janúar 2014
Vorönn 2014 hefst mánudaginn 6. janúar og verður kennt samkvæmt stundatöflu. Stundatöflur allra bekkja eru aðgengilegar í Innu sem og á Námsnetinu.
Meira >>>

Haustönn lýkur
20. desember 2013
Haustönn 2013 lýkur í dag með einkunnabirtingu og prófsýningu. Alls hlutu 12 nemendur viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur með 9,0 eða hærra í aðaleinkunn á haustönn, 8 stelpur og 4 strákar. Af þeim eru 7 í 2. bekk og  5 í 4. bekk. Alls hlutu 56 nemendur viðurkenningu fyrir mætingu, 34 stelpur og 22 strákar, þ.e. þau sem eru með 100%...
Meira >>>

Opnað fyrir einkunnir í Innu
19. desember 2013
Opnað hefur verið fyrir haustannareinkunnir 2013 í Innu. Einkunnablaðið er vinsta megin á forsíðunni í Innu. Prófsýning er á morgun 20. desember kl. 12:30 - 14:00. Endurtökupróf verða haldin í vor, 28. maí 2014. Námsráðgjafar og stjórnendur eru til viðtals til kl. 16:00 föstudaginn 20. desember.


Meira >>>

Einkunnir og prófsýning
18. desember 2013
Opnað verður fyrir einkunnir í Innu kl. 20:00 fimmtudaginn 19. desember.    Prófsýning verður í skólanum föstudaginn 20. desember frá 12:30 til 14:00.   Nemendur eru hvattir til að fara yfir einkunnablað sitt að kvöldi 19. desembers og koma á prófsýningu þann 20. desember.

Vinsamlegast athugið að ekki verður opnað fyrir Innu...
Meira >>>

Sjúkrapróf
16. desember 2013
Sjúkrapróf verða haldin þriðjudaginn 17. desember og hefjast ýmist klukkan níu eða klukkan ellefu. Fyrst er hér listi yfir próf sem hefjast klukkan níu. Greinum er raðað í stafrófsröð. Danska 1. bekkur Efnafræði 3, 4. bekkur L Enska 3. bekkur F Enska 3. bekkur N Enska 4. bekkur F Félagsfræði 1. bekkur NÁ Franska...
Meira >>>

Haustannarpróf 2013
3. desember 2013
Haustannarpróf hófust í dag, þriðjudag 3. desember, en síðasti almenni prófdagur er mánudagur 16. desember. Á prófatíma fellur kennsla niður og skólinn er allur skipulagður fyrir prófahald. Aðstaða til að lesa fyrir próf er á bókasafni skólans frá 8:00-16:00, í kennslustofum í Fensölum frá kl. 8:00-16:00 virka daga frá 3.-13. desember og Skálholt í...
Meira >>>

Blær, femínistafélag MS vekur athygli
22. nóvember 2013

Blær, femínistafélag MS útbjó veggspjöld með skilaboðum til að vekja athygli á starfsemi félagsins og tilgangi þess. Sjá umfjöllun og myndir af veggspjöldunum á síðu Monitors á mbl.is. 


Meira >>>

Skil á kjörsviðsverkefni í 4. bekk
18. nóvember 2013
Skil á kjörsviðsverkefni í 4. bekk í lok haustannar 2013 eru mánudaginn 25. nóvember. Þá á nemandinn að hafa lokið undirbúningi, uppbyggingu verksins, heimildaöflun og skila inn bróðurpartinum af meginmáli og heimildaskrá. Sjá nánar hér.
Meira >>>

Stoðtímar í stærðfræði
7. nóvember 2013
Boðið er upp á aukatíma í stærðfræði fyrir nemendur í 2. bekk félagsfræðabrautar, félagsfræðikjörsvið næstkomandi mánudaga: 11., 18., og 25. nóvember kl.15:35-17:00 í stofu 18. Hver tími kostar 1000 kr. Greitt er við skráningu á skrifstofu skólans.


Meira >>>

Femínistafélagið Blær stofnað í MS
6. nóvember 2013
Þann 24. október síðastliðinn var Feministafélagið Blær stofnað af nemendum í Menntaskólanum við Sund. Nafnið sem ákveðið var á félagið var Blær. Það er sérstakt að því leyti að nafnið er bæði karl- og kvenmannsnafn. Hugmyndin með félaginu er vitundarvakning innan skólans á jafnréttismálum, ræða ranghugmyndir um femínisma og vera vakandi fyrir því ef...
Meira >>>

Nemendakönnun
5. nóvember 2013
Nemendakönnun á haustönn 2013 er virk á Námsnetinu frá 4. til 9. nóvember 2013. Nemendur eru hvattir til þátttöku og leggja sitt af mörkum til að meta og bæta skólastarfið. Markmiðið er að ná 70% þátttöku til að fá tölfræðilega marktækar niðurstöður.
Meira >>>

Æsir, listafélag Nemendafélags MS tók þátt í myndlistarsýningu
28. október 2013
Síðasta laugardagskvöld, 26. október 2013 fór fram listasýningin "Um endalok tímans" í Ráðhúsi Reykjavíkur. Framhaldsskólarnir: MS, MH, MR, Borgó, FB, FÁ og Kvennó sýndu þar listaverk. Unnur Sól Ingimarsdóttir 4. S tók þátt í sýningunni fyrir hönd MS. Ljósmyndin hér er af listakonunni og listaverkinu.
Meira >>>

Sjálfsmatsáætlun MS 2013-2015
28. október 2013
Sjálfsmatsáætlun MS til þriggja ára 2013-2015 er komin á heimasíðuna. Hér
Meira >>>

Próftafla haust 2013
23. október 2013
Próftafla haustannarprófa 2013 er komin á netið, sjá hér og nemendur geta líka séð próftöflu sína í Innu.
Meira >>>

Prófkvíðanámskeið
17. október 2013
Finnur þú fyrir prófkvíða? Þá er kominn tími til að ná tökum á honum. Námsráðgjafar halda námskeið sem getur gagnast þér, næstu 4 miðvikudaga frá kl. 14.50- 16.00. Fyrsti tími: 23.október. Skráning á skrifstofu skólans.
Meira >>>

Haustfrí
17. október 2013
Skólinn verður lokaður föstudaginn 18. október og mánudaginn 21. október vegna haustfrís nemenda og starfsmanna. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 22. október kl. 8:10.
Meira >>>

Stöðumat á haustönn - miðannarmat
15. október 2013
Stöðumat á haustönn þ.e. miðannarmat er nú aðgengilegt í Innu undir Einkunnablaði og Miðannarmati vinstra megin á forsíðu eftir innskráningu í Innu.
Meira >>>

Ný stjórn foreldraráðs MS
11. október 2013
Stjórnarkjör foreldraráðs MS fór fram á aðalfundi ráðsins þann 10. október síðastliðinn. Ný í stjórn er Guðfinna Ármannsdóttir en Fjóla Karlsdóttir, Íris Georgsdóttir, Margrét Þórarinsdóttir og Olga Hrönn Olgeirsdóttir, sem voru fyrir í stjórn, gáfu kost á sér áfram. Varamenn eru Linda Helgadóttir og Sólveig Sveinsdóttir en Sólveig var aðalmaður á síðasta...
Meira >>>

Undirritun samkomulags um 2800 fermetra viðbyggingu við MS
10. október 2013
Það var stór stund í sögu skólans þegar ráðherra mennta- og menningarmála, Illugi Gunnarsson, og borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, undirrituðu samkomulag um 2800 fermetra viðbyggingu við skólann. Framkvæmdin öll mun kosta rúman milljarð og er gert ráð fyrir að skólinn fái nýja byggingu afhenta vorið 2015. Þá mun áralangur draumur skólans um nauðsynlegar...
Meira >>>

Áfangaskil kjörsviðsverkefnis nemenda í 4. bekk
8. október 2013
Áfangaskil kjörsviðsverkefnis á haustönn eru í síðasta lagi mánudaginn 14. október 2013. Þá skila nemendur inn efnisgrind, drögum af fyrsta hluta verksins, heimildaskrá og dagbók/vinnuskrá. 
Meira >>>

Sjálfsmatsáætlun 2013-2014
8. október 2013
Marmið og aðgerðir í sjálfsmati MS skólaárið 2013-2014 eru kynnt á heimasíðunni undir Skólinn - Stefna skólans - Sjálfsmatsstefna. Hér
Meira >>>

Drög að próftöflu haustannar 2013
2. október 2013
Gera má skriflegar athugasemdir við próftöflu til og með 11. október.
Meira >>>

Frá foreldraráði
2. október 2013
Aðalfundur foreldraráðs verður fimmtudaginn 10. október í MS og hefst kl. 17:00. Sjá nánar hér.
Meira >>>

Foreldraráð hvetur foreldra á fund
23. september 2013
sjá Þjónusta/Foreldraráð MS/Tilkynningar.
Meira >>>

Sjálfsmatsskýrsla
23. september 2013
Sjálfsmatsskýrsla fyrir skólaárið 2012-2013 er komin á vefinn, sjá Skólinn/Skýrslur um skólastarfið.
Meira >>>

Stoðtímar í stærðfræði
19. september 2013
Nemendum í 1. bekk á félagsfræða- og náttúrufræðibraut og 2. bekk náttúrufræðibrautar standa til boða stoðtímar í stærðfræði á mánudögum í stofu 19 í Loftsteini. Stoðtíminn er ein klukkustund og geta nemendur komið frá 14:50 til 17:00. Ileana Manolescu fagstjóri í stærðfræði sér um stoðtímana ásamt eldri nemendum. Veitt er aðstoð m.a. við...
Meira >>>

Samningur um kjörsviðsverkefni í 4. bekk
6. september 2013
Útskriftarefni athugið að samning við kennara um val á efni fyrir kjörsviðsverkefni skal gera fyrir 10. september 2013. 
Meira >>>

Fundur með foreldrum/forráðamönnum nýnema
3. september 2013
Haldinn verður fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema  í Menntaskólanum við Sund þriðjudaginn 10. september nk. kl. 19:45.
Meira >>>

Stoðtímar í stærðfræði
2. september 2013
Nemendum í 1. bekk á félagsfræða- og náttúrufræðibraut og 2. bekk náttúrufræðibrautar standa til boða stoðtímar í stærðfræði á mánudögum kl. 16:00-17:00 í stofu 19 í Loftsteini. Ileana Manolescu fagstjóri í stærðfræði sér um stoðtímana ásamt eldri nemendum. Veitt er aðstoð m.a. við reikniaðgerðir og heimadæmi. Hægt er að skrá sig í stoðtímana í einn...
Meira >>>

Jöfnunarstyrkur
2. september 2013
Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is Hægt er að skrá umsókn á Innu eða netbankanum! Umsóknarfrestur vegna skólaársins 2013-2014 er til 15. október næstkomandi. Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd
Meira >>>

Stundatöflur
19. ágúst 2013
Nú geta nemendur séð stundatöflur sínar í Innu og á Námsneti. Skólinn verður settur fimmtudaginn 22. ágúst kl. 9:00 og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá kl. 9:45 sama dag. Til að skoða stundatöflur þurfa nemendur að velja 22. ágúst eða síðar í valglugganum við stundatöfluna.
Meira >>>

Upphaf haustannar 2013
14. ágúst 2013
Nýnemar eru boðaðir til fundar í Hálogaland (íþróttasal skólans) miðvikudaginn 21. ágúst klukkan 15:00. Menntaskólinn við Sund verður settur daginn eftir í Hálogalandi klukkan 9:00 og hefst kennsla strax að lokinni setningu samkvæmt stundaskrá. Nemendum er bent á að sækja bókalista 2013-2014 hér á...
Meira >>>

Mjaðjurt: Blóm ágústmánaðar
9. ágúst 2013
Mjaðjurtin (Filipendula ulmaria) er í blóma um þessar mundir og er því blóm mánaðarins í MS. Samkvæmt upplýsingum og útbreiðslukorti á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands er mjaðjurtin einkum algeng á Suðurlandi, Vesturlandi og í Eyjafirði. Plantan er hávaxin, 30-70 sm, og kraftmikil planta sem hefur smáa ilmandi hvíta blómklasa....
Meira >>>

Upphaf haustannar 2013
9. ágúst 2013
Nýnemar eru boðaðir til fundar í Hálogaland (íþróttasal skólans) miðvikudaginn 21. ágúst klukkan 15:00. Menntaskólinn við Sund verður settur daginn eftir í Hálogalandi klukkan 9:00 og hefst kennsla strax að lokinni setningu samkvæmt stundaskrá.
Meira >>>

Blóm júlímánaðar er flagahnoðri
2. júlí 2013
Flagahnoðri: Blóm júlímánaðar Flagahnoðri (Sedum villosum) er blóm mánaðarins í MS að þessu sinni til að minna á fegurð og gildi hins smáa en blóm flagahnoðrans eru 6-10 mm í þvermál og plantan er aðeins 3-8 sm að hæð. Samkvæmt vef Náttúrufræðistofnunar Íslands er flagahnoðrinn algengur um allt land, sjá
Meira >>>

Sumarlokun skrifstofu MS
26. júní 2013
Skrifstofa Menntaskólans við Sund verður lokuð frá og með fimmtudeginum 27. júní 2013. Skrifstofan opnar aftur fimmtudaginn 8. ágúst kl. 9:00.  
Meira >>>

Góðar gjafir frá fyrrverandi nemendum
26. júní 2013
Menntaskólanum við Sund bárust góðar gjafir í vor frá 20 ára, 30 ára og 40 ára afmælisárgöngum fyrrverandi stúdenta.
Meira >>>

Ályktun stjórnar FÍF um alvarlega stöðu framhaldsskólanna
26. júní 2013
Stjórn FÍF samþykkti eftirfarandi ályktun og sendi til fjölmiðla um fjárhagsvanda framhaldsskólanna:
Á aðalfundi Félags íslenskra framhaldsskóla, FÍF, komu fram miklar áhyggjur af fjárhag framhaldsskólanna. Stjórn FÍF skorar á nýkjörna ríkisstjórn Íslands að bregðast við bráðum fjárhagsvanda framhaldsskólanna. Auka þarf fjármagn til skólanna...
Meira >>>

Umsóknir nýnema afgreiddar
24. júní 2013
Skólinn hefur afgreitt umsóknir frá nýnemum. Að þessu sinni voru innritaðir 112 nýnemar á náttúrufræðibraut og 112 nýnemar á félagsfræðabraut. Heildarfjöldi umsókna að þessu sinni (aðalval og varaval) var 628. Greiðsluseðlar voru sendir út föstudaginn 21. júní og á krafan að hafa birst þann dag í heimabanka viðkomandi forráðamanns....
Meira >>>

Bókalistar
14. júní 2013
Bókalistar fyrir skólaárið 2013-2014 tilbúnir undir flokknum Námið.
Meira >>>

Umsóknir um skólavist í MS haustið 2013
12. júní 2013
Alls sóttu 628 nemendur um skólavist í 1. bekk í MS haustið 2013 þar af 258 sem 1. val og 370 sem annað val. Alls verða 224 nemendur innritaðir í 8 bekki á 1. námsári, 4 bekkir á félagsfræðabraut og 4 bekkir á náttúrufræðibraut.
Meira >>>

Inna lokuð
11. júní 2013
Nemendur athugið að tímabundið hefur verið lokað fyrir aðgang ykkar að Innu.  Opnað verður aftur í lok júní.
Meira >>>

Blóm júnímánaðar er Hrafnaklukka
5. júní 2013
Hrafnaklukka: Blóm júnímánaðar Hrafnaklukka (Cardamine nymanii) er í blóma um þessar mundir og er því blóm mánaðarins í MS að þessu sinni. Samkvæmt vef Náttúrufræðistofnunar Íslands er hrafnaklukka algeng um allt land í deigum jarðvegi og mýrum frá láglendi upp í 700 m hæð. Hún...
Meira >>>

Myndir frá brautskráningu
1. júní 2013
Nemendur frá brautskráningu stúdenta, 25. maí síðastliðinn, eru komnar á vefinn undir Skólinn - Brautskráningar (sjá hér).
Meira >>>

Einkunnir úr endurtökuprófum
30. maí 2013
Nemendur geta séð einkunnir úr endurtökuprófum í Innu. Mikilvægt er að skoða bæði einstakar greinar og aðaleinkunn. Miðvikudaginn 5. júní klukkan 14:00 verður niðurstaða úr öllum endurtökuprófum ljós og námsráðgjafar og stjórnendur til viðtals fyrir nemendur sem þreyttu endurtökupróf. Þá geta nemendur einnig fengið einkunnablað prentað óski þeir eftir...
Meira >>>

Íslenska - námsefni til endurtökuprófs - með viðbótum
27. maí 2013
1. bekkur   Ásdís Arnalds, Elínborg Ragnarsdóttir og Sólveig Einarsdóttir: Tungutak-Ritun handa framhaldsskólum. JPV útgáfa. Reykjavík 2008.   Einar Kárason: Óvinafagnaður. Mál og menning. Reykjavík 2002.   Einar Már Guðmundsson: Bítlaávarpið. Mál og menning 2004 og síðar.   Uppspuni. Nýjar íslenskar smásögur....
Meira >>>

Skólaslit 2013
26. maí 2013
Brautskráning stúdenta frá Menntaskólanum við Sund fór fram 25. maí 2013 í Háskólabíó. Alls útskrifuðust 159 nýstúdentar, 90 stelpur og 69 strákar. Dúx skólans vorið 2013 er Bjarki Stefánsson sem útskrifast af eðlisfræðikjörsviði náttúrufræðibrautar með aðaleinkunn 8,7. Semidúx skólans vorið 2013 er Harpa Erlendsdóttir sem útskrifast...
Meira >>>

Endurtekt í stærðfræði
24. maí 2013

Endurtektarpróf í stærðfræði vorið 2013:

Meira >>>

Endurtökupróf - próftafla
23. maí 2013
Endurtökupróf verða haldin dagana 30. og 31. maí. Prófin eru lokatilraun nemenda til að standast bekkinn. Þau eru 2ja klukkutíma löng og prófað er úr námsefni alls vetrarins (haustannar og vorannar). Nemendur sem eru með að lágmarki 5,0 í vegnu meðaltali lokaeinkunna eiga rétt á að þreyta endurtökupróf í einni eða tveimur námsgreinum. Þeim...
Meira >>>

Brautskráning stúdenta 25. maí 2013
21. maí 2013
Brautskráning stúdenta verður í Háskólabíó laugardaginn 25. maí kl. 10:45. Gert er ráð fyrir að athöfnin standi yfir í 90 mínútur. Strax að lokinni afhöfn verður myndataka á tröppum aðalbyggingar Háskóla Íslands.
Meira >>>

Birting einkunna og prófsýning
17. maí 2013
Stefnt er að því að birta nemendum einkunnir mánudaginn 20. maí eftir kl. 20:00. Birting einkunna í 1. – 3. bekk er einungis rafræn í INNU. Þeir nemendur sem vilja geta óskað eftir að fá einkunnablað á pappír. Þeim er bent á að snúa sér til skrifstofu þriðjudaginn 21. maí eftir kl. 12:30. Prófsýning fyrir 1.-3. bekk verður þriðjudaginn 21. maí kl....
Meira >>>

Sjúkrapróf
15. maí 2013
Athugið smávægilegar breytingar á sjúkraprófum, sjá yfirlit hér.
Meira >>>

Sjúkrapróf
14. maí 2013
Sjúkraprófslisti er kominn á heimasíðuna, sjá hér.  Flest sjúkrapróf verða fimmtudaginn 16. maí kl. 9:00 og 12.30 en nokkur sjúkrapróf verða einnig haldin föstudaginn 17. maí kl. 9:00.
Meira >>>

Ný skólanefnd MS skipuð
14. maí 2013
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað nýja skólanefnd MS til fjögurra ára. Aðalmenn eru Fanney Birna Jónsdóttir, Guðlaug María Júlíusdóttir, Guðrún Hólmgeirsdóttir, Halldór Gylfason og Sölvi Tryggvason. Varamenn eru Auðun Freyr Ingvarsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Bryndís Baldvinsdóttir, Sólveig Halldórsdóttir...
Meira >>>

Lambagras er blóm maímánaðar
7. maí 2013
Lambagras: Blóm maímánaðar Lambagrasið ljúfa er einn af vorboðunum í náttúru Íslands og er því blóm mánaðarins í MS að þessu sinni. Samkvæmt vef Náttúrufræðistofnunar Íslands er lambagras ein af algengustu jurtum landsins. Það vex jafnt á láglendi sem hátt til fjalla, sjá
Meira >>>

Ráðleggingar til nemenda vegna prófa
30. apríl 2013
Ráðleggingar til nemenda vegna prófa Prófundirbúningur ·         Gerðu vinnuáætlun til að nýta tímann sem best. ·         Skipuleggðu hvernig þú ætlar að vinna hvern dag á prófatímanum. ·         Gott er að vinna í um 30...
Meira >>>

Regnbogaskúlptúr Ársólar á Barnamenningarhátíð
23. apríl 2013
Á morgun kl. 9:15 mun MS taka þátt í viðburði á Barnamenningarhátíð. Þá skapa nemendur ungbarnaleikskólans Ársólar við Sólheima útilistaverk sem er kallað Regnbogaskúlptúr. Hugmyndin er innblásin úr verkum Holton Rower, sem er Graffiti listamaður, sem lætur málningu leka niður eftir trapisum í ýmsum stærðum og gerðum, eins og sjá má í myndbandinu hér...
Meira >>>

Próf og prófreglur
17. apríl 2013
Skólinn hvetur alla nemendur til að kynna sér prófreglur tímanlega, sjá Námið>Reglur um próf. Próftafla
Meira >>>

Segið ykkar skoðun!
16. apríl 2013
Vakin skal athygli á tvenns konar hugmyndakössum sem skólinn hefur tekið í notkun til að bæta leiðir nemenda, kennara og annarra starfsmanna til að láta í ljós álit sitt í skólastarfinu. Annars vegar er hugmyndakassi í pósthólfarekka á gangi framan við skrifstofu og hins vegar er hugmyndakassi á Námsnetinu. Ætlunin með þessum hugmyndakössum er að opna...
Meira >>>

Valgreinaval 2013
11. apríl 2013
Valgreinavali nemenda í 2. og 3. bekk er nú lokið á Námsnetinu. Þeir nemendur sem eiga eftir að velja valgreinar fyrir næsta skólaár vinsamlegast hafið sem allra fyrst samband við skrifstofuna til að fylla út eyðublað fyrir valgreinaval.
Meira >>>

Burnirót: Blóm aprílmánaðar
5. apríl 2013
Nú með ört hækkandi sól styttist óðum í að liljur vallarins gleðji okkur með blómskrúði sínu. Í tilefni af því að farið er að tala um burnirót sem „ginseng norðursins“ er hún blóm aprílmánaðar í MS. Afurðir burnirótar eru taldar hressa bæði sál og líkama og eru seldar grimmt sem heilsuvara, meðal annars undir vöruheitinu Arctic Root. Á...
Meira >>>

Þjónustukönnun og nemendakönnun
3. apríl 2013
Nemendur, vinsamlegast svarið kennslumati og þjónustukönnun á Námsnetinu. Annars vegar er könnun á viðhorfum til kennslu og hins vegar könnun á viðhorfum til ýmiss konar þjónustu sem skólinn veitir. Það er mikilvægt fyrir skólann að fá svör frá þér til að geta bætt kennsluna og þjónustuna. Könnun á þjónustu er efst í vinstra horni á forsíðu,...
Meira >>>

Próftafla vorannar 2013
26. mars 2013
Endanleg próftafla var birt 22. mars kl. 16:00 á heimasíðu MS og í Innu en þangað til voru aðeins birt drög á heimasíðu, á göngum skólans og í Innu. Endanlega próftöflu má sjá hér á síðunni undir hnappnum Námið. Próftafla hvers nemanda birtist einnig í Innu.
Meira >>>

Lokun skrifstofu yfir páskana
22. mars 2013
Skrifstofa skólans verður lokuð í páskaleyfi frá og með mánudeginum 25. mars til og með mánudagsins 1. apríl. Skrifstofan opnar á ný þriðjudaginn 2. apríl klukkan 10:00.
Meira >>>

Nýr skólasamningur MS og mennta- og menningarmálaráðuneytisins
21. mars 2013
Skólasamningur MS og Mennta- og menningarmálaráðuneytisins 2013 til 2015 var undirritaður þann 19. mars 2013, sjá frétt á heimasíðu ráðuneytisins. Samningurinn er á heimasíðu MS og einnig á
Meira >>>

MS vinnur stuttmyndasamkeppni Félags þýskukennara
19. mars 2013
MS vann í ár stuttmyndasamkeppni Félags þýzkukennara (FÞ). Höfundar eru þeir Freyr Heiðarsson, Friðgeir Atli Arnarsson og Kristján Orri Jóhannsson nemendur í 4.G. Stuttmyndina gerðu þeir í lok haustannar í staðinn fyrir munnlegt próf í þýsku, kennari Þórdís T. Þórarinsdóttir. Verðlaunaafhendingin fór fram á uppskeruhátíð þýskunnar í Iðnó föstudaginn...
Meira >>>

Ánægjulegt starf í góðgerðarviku
16. mars 2013
Góðgerðavikan í MS tókst afar vel og eiga nemendur þakkir skildar fyrir; skipulag vikunnar var gott, skemmtilegar uppákomur og öflug fjársöfnun! Í hádeginu á fimmtudaginn kom Magni og söng, dregið var í happdrætti og loks afhentu nemendur Ernu Magnúsdóttur forsvarskonu Ljóssins 550.000 krónur sem söfnuðust í vikunni. Hápunkturinn var...
Meira >>>

Góðgerðarvika MS - Styrkjum Ljósið
13. mars 2013
Góðgerðarvika nemendafélags MS heldur áfram í dag miðvikudaginn 13. mars, sjá frétt í Fréttablaðinu bls. 34, sjá vísir.is/section/FRETTABLADID.  Blár Ópall og Pétur Finnbogason styðja málefnið í dag með tónleikum í hádeginu í Kattholti. Þeir sem...
Meira >>>

Valgreinar í boði skólaárið 2013-2014
12. mars 2013
Nemendur í 2. og 3. bekk eiga að velja sér valgreinar fyrir næsta skólaár. Lýsingar á valgreinum sem nemendur geta valið úr er að finna hér.
Meira >>>

Góðgerðarvika nemendafélags MS- Ljósið
12. mars 2013
Góðgerðarvika nemenda MS til styrktar Ljósinu fer vel af stað og var m.a. kynnt í fréttum ríkissjónvarpsins í gær 11. mars og Friðrik Dór syngur í Kattholti til styrktrar málefninu í hádeginu í dag 12. mars. Söfnun er fyrir Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra. Þeir sem vilja...
Meira >>>

Blóm marsmánaðar
11. mars 2013
Fjalldalafífill: Blóm marsmánaðar Einn um sinn verðum við að orna okkur við minningar um blóm liðinna sumra. Blóm marsmánaðar í MS er fjalldalafífill sem skartar á sumrin yndisfögrum stórum, dumbrauðum, bjöllulaga, drúpandi blómum. Á annarri hæð aðalbyggingar skólans er bókin Flora Islandica (Rv. 2008) opin á blaðsíðu 210 þar sem sjá má plöntuna...
Meira >>>

Góðgerðarvika MS
8. mars 2013
Góðgerðarvika Skólafélags MS verður haldin 11. - 15. mars 2013.
Söfnun fyrir Ljósið → endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra.
Af hverju góðgerðarvika?
→ MS vill hjálpa, sýna Jenný stuðning, ýtir undir félagslíf, vera fyrirmynd fyrir yngri nemendur.
Af hverju Ljósið?
→ Jenný,...
Meira >>>

Fjölmenni á Opnu húsi
7. mars 2013
Mikið fjölmenni var á Opnu húsi í MS síðastliðinn þriðjudag þar sem nemendur í 10. bekk grunnskóla komu ásamt foreldrum sínum og kynntu sér starfið í skólanum. Þar kynntu 15 nemendur í MS verkefni sín, sviðstjórar kynntu námsbrautirnar, kennarar kynntu nám í jarðfræði, líffræði og eðlisfræði, kórinn söng og einnig vinningshafar í Söngvarakeppni...
Meira >>>

Opið hús
26. febrúar 2013
Vegna innritunar vorið 2013 verður Menntaskólinn við Sund með opið hús þriðjudaginn 5. mars 2013 frá klukkan 16:30-18:30 fyrir nemendur í 10. bekk grunnskólans og foreldra/forráðamenn þeirra. Kynning verður á námsframboði og þeim áherslum sem skólinn hefur. Aðstaða í skólanum verður til sýnis, fræðsla verður um  verkefni sem...
Meira >>>

Miðannarmat í 1. og 2. bekk
20. febrúar 2013
Miðannarmat í 1. og 2. bekk Miðannarmat er nú aðgengilegt í Innu, vinstra megin á forsíðu undir miðannarmat. Því miður vegna veikinda kennara vantar ennþá matið í örfáum tilvikum. Þið eruð hvött til að skoða miðannarmatið vel og taka það alvarlega. Vonandi hafa sem flestir náð markmiðum sínum í náminu. En ef ekki þá er ennþá mikill tími til að taka...
Meira >>>

Miðannarmat í 1. og 2. bekk
20. febrúar 2013
Opnað verður fyrir miðannarmat nemenda í 1. og 2. bekk í Innu föstudaginn 22. febrúar 2013. 
Meira >>>

Námsferð
13. febrúar 2013
Skólinn verður lokaður dagana 15. og 18. febrúar vegna námsferðar starfsmanna til Englands. Skólinn opnar aftur og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 19. febrúar.
Meira >>>

Fræðslu og samræðufundur um stærðfræðikennslu og -nám
13. febrúar 2013
Skólinn býður foreldrum og forráðamönnum nemenda í fyrsta bekk til samræðna um stærðfræðinám þriðjudagskvöldið 19. febrúar klukkan 19:45-20:45. Fundurinn verður í stofum 13 og 14 í MS.
Meira >>>

Blágresi: Blóm febrúarmánaðar
11. febrúar 2013
Blóm febrúarmánaðar í MS er blágresi sem hefur orðið skáldum að yrkisefni.  Um þetta leyti árs blómgast varla önnur blóm en frostrósir. Víst eru frostrósir á glugga ægifagrar en þrífast alls ekki á tvöföldu einangrunargleri nútímans. Valið helgast af því að „blágresið blíða“ gefur fyrirheit um fríðar hlíðar og birtu sumarsins svo sem Jón Thoroddsen...
Meira >>>

Þemadagur 13. febrúar 2013
7. febrúar 2013
Þemadagur verður í MS miðvikudaginn 13. febrúar 2013. Yfirskriftin er Hreyfing og dagskráin er mjög fjölbreytt. Skráning nemenda verður mánudaginn 11. febrúar í Andholti. Sjá dagskrá hér
Sækja...
Meira >>>

Fáðu-Já Stuttmynd frumsýnd á Jafnréttisdegi MS 30. janúar 2013
27. janúar 2013
Miðvikudaginn 30. janúar verður stuttmyndin Fáðu-Já frumsýnd á Íslandi en hún fjallar um mörkin á milli kynlífs og ofbeldis. Höfundar og leikstjóri myndarinnar þau Brynhildur Björnsdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir munu kynna myndina fyrir öllum nemendum og starfsfólki Menntaskólans við Sund kl. 11:15 í Hálogalandi. Myndin verður...
Meira >>>

Stuðningstímar í stærðfræði fyrir 1. og 2. bekk
20. janúar 2013
Nemendum á 1. og 2. ári bjóðast stuðningstímar í stærðfræði gegn vægu gjaldi. Tímarnir verða vikulega, 40 mínútur hver tími: 
Meira >>>

ZUMBA
17. janúar 2013
Zumba í Hálogalandi í fundargatinu í dag 17. janúar kl. 11:15. Kennari er Kristbjörg Ágústsdóttir
Meira >>>

Foreldrafundur í kvöld 15. janúar 2013
15. janúar 2013
Haldinn verður fundur með foreldrum og forráðamönnum nemenda á fyrsta námsári þriðjudaginn 15. janúar 2013 kl. 19:45.   Dagskrá:   1.    Kynning sviðstjóra á kjörsviðum innan námsbrauta. Félagsfræðabraut, Bjarmaland    Leifur Ingi Vilmundarson Náttúrufræðibraut, Þrísteinn       ...
Meira >>>

Gettu betur
14. janúar 2013
Lið Skólafélags MS keppir í Gettu betur í kvöld mánudaginn 14. janúar 2013. Útsendingin er á Rás 2 kl. 19:30. Áfram MS. 
Meira >>>

Blóðberg: Blóm janúarmánaðar
13. janúar 2013
Blóm janúarmánaðar í MS er blóðberg sem er sígrænn smárunni með litlum blöðum. Nú um stundir eru nær jarðbönn hvað varðar skoðun blómjurta. Helgast valið af því að nú er hægt að ylja sér við að drekka rjúkandi te úr blóðberginu sem tínt var síðastliðið sumar og sjá fyrir sér ilmandi blóðbergsbreiður. Á annarri hæð aðalbyggingar skólans er bókin Flora...
Meira >>>

Foreldrafundur 15. janúar 2013
8. janúar 2013
Haldinn verður fundur með foreldrum og forráðamönnum nemenda á fyrsta námsári þriðjudaginn 15. janúar 2013 kl. 19:45. Áætlaður fundartími er tvær klukkustundir. Tilgangur fundarins er að efla samstarf forráðamanna og skólans, skýra námsframboð í skólanum og fara yfir námsstöðu nemenda í 1. bekk eftir haustannarprófin.   Dagskrá:   1.   ...
Meira >>>

Gleðilegt nýtt ár
31. desember 2012
Menntaskólinn við Sund óskar kennurum og öðru starfsfólki, nemendum og fjölskyldum þeirra farsæls nýs árs og minnir á að kennsla hefst samkvæmt stundatöflu föstudaginn 4. janúar. Nýjar/breyttar stundatöflur má nálgast í Innu.
Meira >>>

Opnunartími skrifstofu um jól og áramót
21. desember 2012
Lokað frá 22.-27. desember 2012 Opið 28. desember 2012 frá kl. 10-15 Lokað frá 29. desember 2012 til 2. janúar 2013. Opið 3. janúar 2013 frá kl. 10-15. Opið frá 4. janúar 2013 kl. 8-16
Meira >>>

Birting einkunna og prófsýning
19. desember 2012
Opnað verður fyrir einkunnir í Innu kl. 20:00 í dag, miðvikudaginn 19. desember. Prófsýning verður í skólanum fimmtudaginn 20. desember frá 12:30 til 14:00. Nemendur eru hvattir til að fara yfir einkunnablað sitt í kvöld og koma á prófsýningu á morgun.

Vinsamlegast athugið að ekki verður opnað fyrir Innu hjá nemendum sem eru...
Meira >>>

Sjúkrapróf
14. desember 2012
Sjúkrapróf verða haldin mánudaginn 17. desember næstkomandi kl. 9:00 og 11:00. Nánari tímasetningar sjúkraprófa verða auglýstar á heimasíðu skólans. Mikilvægt er að nemendur skili inn veikindavottorði vegna sjúkraprófa. Fyrir nemendur yngri en 18 ára nægir að forráðamenn staðfesti veikindi skriflega í tölvupósti
Meira >>>

Einir: Blóm desembermánaðar
9. desember 2012

Blóm desembermánaðar í MS er einir. Helgast valið af því að á árum áður, þegar hver varð að bjarga sér sem best gekk, smíðaði fólk gjarnan sjálft sín jólatré. Síðan var haldið af stað og náð í einigreinar og þær bundnar á jólatrésgrindina. Þá var komið grænt og fallegt jólatré en einir er einmitt barrtré og því sígrænn.

Á annarri hæð aðalbyggingar skólans er bókin Flora Islandica (Rv. 2008) opin á blaðsíðu 62 þar sem sjá má plöntuna en bókin skartar einmitt blómateikningum Eggerts Péturssonar sem upphaflega voru gefnar út sem myndefni í Íslenskri flóru Ágústs H. Bjarnasonar.


Meira >>>

Lestrarmaraþon Borgarbókasafnsins
21. nóvember 2012

Skólinn þakkar íslenskukennurum og nemendum þeirra kærlega fyrir þátttöku í lestrarmaraþoni á Sólheimasafni Borgarbókasafnsins. Atburðurinn gekk svo vel að komin er fram ósk um að gera hann að árlegum viðburði! Hægt er að sjá myndir og upptökur af lestrarmaraþoninu á vef Borgarbókasafnsins, sjá hér.


Meira >>>

Viðburðastjórnun – bingó til styrktar Mæðrastyrksnefnd
21. nóvember 2012
Tveir nemendur í valgreininni viðburðastjórnun, Elsa Hrund Bjartmarz 4. X og Sara Þorsteinsdóttir 4. X, standa fyrir bingói til styrktar Mæðrastyrksnefnd. Bingóið verður í Skálholti fimmtudaginn 22. nóvember klukkan 20:00. Spjaldið kostar 300 kr en tvö spjöld 500 kr.
Meira >>>

Stuðningstímar í stærðfræði - breyttar tímasetningar
10. nóvember 2012
Stuðningstímar i stærðfræði fyrir nemendur annars bekkjar munu hefjast 17. nóvember ef næg þátttaka fæst. Þann dag verður kennt frá klukkan 9-13 en frá klukkan 9-11 laugardagana 24. nóvember og 1. desember. Nemendur geta skráð sig á skrifstofu skólans til hádegis 16. nóvember og skráningargjald, 7.500 krónur, greiðist við skráningu. Stuðningstímar...
Meira >>>

Stuðningstímar í stærðfræði
7. nóvember 2012
Boðið verður upp á stuðningskennslu í stærðfræði laugardagana 10., 17. og 24. nóv og 1. des. fyrir nemendur í 1. og 2. bekk. Tímarnir fyrir 1. bekk verða kl. 9-11 og 2. bekk kl. 11:15-13:15. Kennsla fer fram í Langholti. Verð fyrir hvert námskeið verður 7.500 krónur og greiðist fyrirfram á skrifstofu skólans. Ekki verður farið af stað með námskeið nema...
Meira >>>

Rjúpnalauf - blöð Holtasóleyjar: Blóm nóvembermánaðar
7. nóvember 2012
Blóm nóvembermánaðar í MS er rjúpnalauf en það kallast lauf þjóðarblómsins, holtasóleyjar. Blómið er valið vegna laufanna en rjúpnalauf eru mikilvæg fæða rjúpunnar sem veiðimenn sækja að eftir megni á þessum árstíma. Á annarri hæð aðalbyggingar skólans er bókin Flora Islandica (Rv. 2008) opin á blaðsíðu 212 þar sem sjá má blómið en bókin...
Meira >>>

Próftafla haustannarprófa 2012
1. nóvember 2012
Skólaráð hefur samþykkt endanlega próftöflu fyrir haustannarpróf. Töfluna má sjá hér.
Meira >>>

Skólinn lokaður
1. nóvember 2012
Föstudaginn 2. nóvember verður skólinn lokaður. Opnar aftur mánudaginn 5. nóvember klukkan 8:00
Meira >>>

Verðlaun í hönnunarkeppni um viðbyggingu við skólann
28. október 2012
Það var ánægjuleg stund í Menntaskólanum við Sund þegar dómnefnd veitti viðurkenningar og verðlaunaði þrjár tillögur sem bárust í hönnunarkeppni um viðbyggingu við skólann. Fyrstu verðlaun fékk Skipulags-, arkitekta- og verkfræðistofan ehf; Gestur Ólafsson, arkitekt og skipulagsfræðingur, Akos Doboczy, arkitekt, Zoltán V. Horváth, arkitekt. Skólinn...
Meira >>>

Lestrarhátíð í Reykjavík
26. október 2012
Í dag tekur MS þátt í 12 tíma lestrarmaraþoni framhaldsskólanna sem Borgarbókasafn Reykjavíkur stendur fyrir. Nemendur MS undir stjórn íslenskukennara verða í Sólheimasafni milli klukkan 11 og 13 í dag og lesa upphátt fyrir gesti og gangandi.
Meira >>>

Niðurstaða í samkeppni um viðbyggingu við skólann
21. október 2012
Fimmtudaginn 25. október kl. 14:00 til 16:00 verður niðurstaðan í samkeppni arkitekta um viðbyggingu við Menntaskólann við Sund formlega kynnt. Athöfnin verður í íþróttasal skólans, Hálogalandi og þar verða afhent verðlaun fyrir bestu tillögurnar. Allar tillögurnar verða til sýnis í Hálogalandi þennan eftirmiðdag en síðan verður sett upp sýning...
Meira >>>

Lokaskýrsla til Sprotasjóðs:Breytingastofa og starfendarannsóknir
21. október 2012
Lokaskýrsla um rannsóknina Breytingastofa og starfendarannsóknir er komin á vefinn, sjá hér.
Meira >>>

Beitilyng: Blóm októbermánaðar
3. október 2012
Blóm októbermánaðar í MS er beitilyng. Gaman er að tína beitilyngsvisk á haustin til að setja í lítinn vasa. Þess má geta að það fer mjög vel með bláberjalyngi. Beitilyng stendur ótrúlega vel og er lengi til ánægju. Jafnast jafnvel á við Erikuna og sambærileg blóm sem fást í blóma­búðum á haustin. Eins og segir á vef 
Meira >>>

Samstarf MS og Vogaskóla á evrópska tungumáladeginum
27. september 2012
Í tilefni Evrópska tungumáladagsins (26. september) heimsótti máladeildarbekkurinn 4. A yngstu nemendur Vogaskóla og kenndi þeim fáein undirstöðuatriði í 5 ólíkum tungumálum (ensku, spænsku, dönsku, frönsku og þýsku) í litlum hópum.   Þetta er í fjórða skipti sem verkefnið hefur...
Meira >>>

Fjármálalæsi í MS
26. september 2012
Á vorönn býður MS upp á valgreinina fjármálalæsi sem Ingvar Freyr Ingvarsson og Sigmar Þormar hafa undirbúið. Þetta hefur vakið athygli og fengið kynningu í Morgunblaðinu (20.9.), Fréttablaðinu (20.9) og nú síðast í sjónvarpi Viðskiptablaðsins, sjá hér.
Meira >>>

MS-ingar! Nú er að hreyfa sig.
24. september 2012

Lífshlaup framhaldsskólanna er að hefjast og felst það í keppni milli framhaldsskóla enda þótt hver og einn þátttakandi, nemendur jafnt sem kennarar og annað starfsfólk, keppi umfram allt við sjálfa(n) sig. Á heimasíðu Lífshlaupsins segir:

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við embætti landlæknis og í tengslum við verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóla stendur fyrir Lífshlaupi fyrir framhaldsskóla sem fram fer dagana3.-16. október næstkomandi.  

(sjá lifshlaupid.is)

Markmiðið með lífshlaupinu er að fá blóðið til að renna í æðum okkar. Hið eina sem við þurfum að gera til að teljast fullgildir keppendur er að ganga fyrir eigin vélarafli í að lágmarki hálftíma á dag. MS-ingar! Skráið ykkur í hóp sem fyrst á slóð Lífshlaupsins og skráið daglega hreyfingu ykkar frá 3.-16. október á vefinn.


Meira >>>

Glærur af foreldrafundi
14. september 2012
Skólinn þakkar foreldrum nýnema fyrir góðan fund síðastliðið þriðjudagskvöld og bendir á að glærur af fundinum eru komnar á heimasíðuna, sjá hér.
Meira >>>

Fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema
5. september 2012

Næsta þriðjudag, 11. september er boðað til fundar með foreldrum og forráðamönnum nýnema  í Menntaskólanum við Sund. Fundurinn hefst kl. 19:45 og er áætlað að hann standi í tvær klukkustundir.


Meira >>>

Bláberjalyng: Blóm septembermánaðar
3. september 2012

Blóm septembermánaðar í MS er bláberjalyng því hvað er dásamlegra en að tína upp í sig sólheit bláber á björtum síðsumarsdegi.
Eins og segir á vef Náttúrufræðistofnunar er bláberjalyng mjög algengt um allt land frá láglendi upp í 800 m hæð. Það vex í lyngmóum, á mýraþúfum og í fjallshlíðum. Hæst hefur það verið skráð í 900 m í fjallshlíðum við Skriðudal í Hörgárdal. Bláberjalyng líkist aðalbláberjalyngi en bláberjalyngið þekkist frá því á sívölum, brúnum greinum og ótenntum, snubbóttum blöðum.
Mjög algengt er að nýta ber bláberjalyngs bæði fersk, í saft eða sultu. Jurtin í heild sinni var áður talin kælandi og barkandi. Þessi tegund var notuð gegn lífsýki, köldu og skyrbjúgi en eins þótti duft af rótinni gott til að strá í holdfúa sár. Eins var áður fyrr, lögur af berjunum látinn súrna og svo notaður til að barka skinn ásamt álúni. Til litunar má nota nýsoðin berin til að gefa lifrauðan lit en gulan lit má fá úr blöðunum. (Ágúst H. Bjarnason, 1994) 
Sjá einnig Plöntuvefsjá.
Eins og sjá má að ofan voru og eru bláber til margra hluta nytsamleg. Nú á seinni tímum eru þau auglýst sem eitt helsta andoxunarefnið sem á að halda okkur síungum, bara ef við borðum nógu mikið af þeim. J

Meira >>>

Jöfnunarstyrkur
3. september 2012
Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu?

Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is
Hægt er að skrá umsókn á Innu eða netbankanum!

Umsóknarfrestur vegna skólaársins 2012-2013 er til 15. október næstkomandi!

Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd
Meira >>>

Valgreinar
27. ágúst 2012
Frestur til að breyta valgreinum rennur út miðvikudaginn 29. ágúst. Nemendum sem stunda íþróttir og teljast í hópi afreksíþróttafólks er bent á frétt um valgrein í íþróttum á Námsneti.
Meira >>>

Stundatöflur haustannar
20. ágúst 2012
Búið er að opna fyrir aðgang nemenda að Innu og stundatöflur eru komnar í Innu. Töflurnar eru birtar með fyrirvara um breytingar, sem geta orðið á næstu dögum. Vilji nemendur sjá stundatöflu fyrir heila viku þarf að velja næstu viku. Skólasetning verður á miðvikudaginn, 22. ágúst, kl. 9:00 og kennsla hefst kl. 9:45 sama...
Meira >>>

Upphaf haustannar 2012
14. ágúst 2012
Skólasetning verður miðvikudaginn 22. ágúst klukkan 9:00 í Hálogalandi (íþróttasal skólans) og kennsla hefst samkvæmt stundatöflu strax að henni lokinni. Bréf hafa verið send í tölvupósti til nýnema og forráðamanna þeirra. Fundur með nýnemum verður haldinn þriðjudaginn 21. ágúst klukkan 15:00.  Nýnemar geta skoðað bekkjarlista hér...
Meira >>>

Lokun skrifstofu MS í sumar
26. júní 2012
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með miðvikudeginum 27. júní til og með þriðjudagsins 7. ágúst. Skrifstofan opnar á ný klukkan 9:00 þann 8. ágúst en eftir það verður hún opin frá klukkan 8-16 virka daga.
Meira >>>

Afgreiðslu umsókna frá nýnemum er lokið
20. júní 2012
Skólinn hefur afgreitt umsóknir frá nýnemum. Að þessu sinni voru innritaðir 112 nýnmear á náttúrufræðibraut og 108 nýnemar á félagsfræðabraut. Heildarfjöldi umsókna að þessu sinni (aðalval og varaval) var á sjötta hundrað og því fengu því miður ekki allir skólavist í MS sem sóttust eftir því. Greiðsluseðlar verða sendir út í dag, 20. júní, og ættu...
Meira >>>

Nemandi úr MS fær styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta við Háskóla Íslands
20. júní 2012
Saga Guðmundsdóttir dúx MS vorið 2012 var ein af 26 stúdentum sem hlaut styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta við Háskóla Íslands í vor. Alls sóttu 77 stúdentar um styrkinn sem var veittur í fimmta sinn í HÍ í gær. Saga útskrifaðist af félagsfræðabraut, hagfræðikjörsviði og stefnir á nám í stærðfræði við HÍ næsta haust. Sjá frétt á mbl.is
Meira >>>

Breyting á skólareglum MS
20. júní 2012
Gerðar hafa verið breytingar á skólareglum Menntaskólans við Sund og hafa þær verið uppfærðar hér á vefnum. Mikilvægt er að nemendur og forráðamenn þeirra þekki vel reglur skólans [sjá nánar]
Meira >>>

Viðtal á RUV við rektor MS um skólamál
15. júní 2012
Rætt var við rektor Menntaskólans við Sund um skólamál í þættinum "Okkar á milli" sem útvarpað er á Rás 1. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni á vefvarpi RUV  [hlusta]
Meira >>>

Greiðsla skólagjalda eldri nemenda
14. júní 2012
Greiðsluseðlar hafa verið sendir í pósti til eldri nemenda og kröfur stofnaðar í heimabanka greiðanda. Greiðandi er nemandi ef 18 ára eða eldri en annars fyrri forráðamaður skráður í Innu. Vinsamlegast greiðið á eindaga (2. 7. 2012) til að tryggja ykkur skólavist næsta vetur.
Meira >>>

Myndir úr brautskráningu
12. júní 2012
Myndir úr brautskráningunni eru komnar á vefinn: Skoða myndirnar.
Meira >>>

Bókalisti 2012-2013
6. júní 2012
Búið er að setja bókalista næsta skólaárs (2012-2013) á vefinn. Listanum er skipt eftir námsárum og er hann birtur með fyrirvara um breytingar. [Skoða bókalista 2012-2013].  
Meira >>>

Brautskráning stúdenta
31. maí 2012
Brautskráning stúdenta fór fram í Háskólabíói laugardaginn 26. maí. Að þessu sinni voru brautskráðir frá skólanum 177 nemendur þar af voru stúlkur 90 en piltar 87. Af málabraut voru brautskráðir 22 nemendur, af félagsfræðabraut 82 nemendur og af náttúrufræðibraut voru brautskráðir 73 nemendur. Útskriftarhópurinn sá sjötti stærsti í sögu skólans....
Meira >>>

Afhending einkunna vegna endurtektarprófa
31. maí 2012
Afhending einkunna vegna endurtektarprófa verður þriðjudaginn 5. júní klukkan 12:00.
Meira >>>

Stuðningstímar vegna endurtektarprófa
29. maí 2012
Stuðningstími fyrir nemendur sem taka endurtektarpróf í eðlis-og efnafræði í 2Fél og eðlisfræði í 3Nát verður miðvikudaginn 30. maí. kl. 9-11 fyrir nemendur í 2. Fél og kl. 11:30 – 13:30 fyrir nemendur í 3Nát. Nemendur munu þurfa að greiða  2000 kr. á skrifstofu skólans.
Meira >>>

Próftafla endurtökuprófa vor 2012
25. maí 2012
Endurtökupróf verða haldin 30. og 31. maí nk. Próftaflan er komin á síðuna, undir Námið, sjá hér. Nemendum er skylt að mæta í endurtökupróf.
Meira >>>

Opnað hefur verið fyrir aðgang nemenda að INNU
22. maí 2012
Nú hefur verið opnað á ný fyrir aðgang nemenda að INNU. Minnt er á dagskrána á morgun og sýningu prófúrlausna.
Meira >>>

Einkunnaafhending og prófsýning
18. maí 2012
Aðgangur nemenda að Innu verður opnaður seinni partinn þriðjudaginn 22. maí.Einkunnaafhending og prófsýning fer fram þann 23. maí kl. 12:30 – 14:00 hjá nemendum í 1.-3. bekk og kl. 14:30 -15:30 hjá nemendum í 4. bekk.
Meira >>>

Sjúkrapróf
16. maí 2012
Sjúkrapróf verða haldinn föstudaginn 18. maí. Skrifleg próf hefjast ýmist klukkan 9:00, 11:00, eða 13:00. Sjá nánari tímasetningu hér. Öll munnleg próf hefjast kl. 11:00.
Meira >>>

Hjólað í vinnuna
7. maí 2012
Átakið "Hjólað í vinnuna 2012" hefst miðvikudaginn 9. maí. Skólinn hvetur starfsmenn sem og nemendur til þess að taka þátt og njóta um leið hollrar og góðrar hreyfingar. Dragið því fram reiðskjótana, smyrjið keðjuna, pumpið í dekkin og setjið hjálm á höfuðið. Hjólið varlega og njótið vorsins.
Meira >>>

Skólinn hlýtur styrk úr Sprotasjóði
4. maí 2012
...
Meira >>>

Nemendakönnun vorönn 2012
23. mars 2012
Nemendakönnun á vorönn 2012 verður lögð fyrir á Námsnetinu frá 23. til 31. mars 2012. Nemendur eru hvattir til þátttöku og leggja sitt af mörkum til að meta og bæta skólastarfið.
Meira >>>

Próftafla vorannar 2012
14. mars 2012
Endanlega próftafla vorannar 2012 er komin á heimasíðu MS Sækja
Meira >>>

Valgreinaval
12. mars 2012
Valgreinaval nemenda í 2. og 3. bekk fer fram á Námsnetinu frá 12. til 24. mars. Hver nemandi velur tvær valgreinar og tvær til vara. Valgreinalýsingar eru á Námsnetinu og hér á heimasíðu MS. Sækja
Meira >>>

Opið hús 6. mars
5. mars 2012
Opið hús Vegna innritunar vorið 2012 verður Menntaskólinn við Sund með opið hús þriðjudaginn 6. mars 2012 frá klukkan 16:30-18:30. Þennan dag verður kynning á námsframboði og þeim áherslum sem skólinn hefur. Aðstaða í skólanum verður til sýnis, fræðsla verður um  verkefni sem nemendur eru að vinna að í einstökum námsgreinum...
Meira >>>

Miðannarmat í 1. og 2. bekk
29. febrúar 2012
Miðannarmat í 1. og 2. bekk Miðannarmat er nú aðgengilegt í Innu, vinstra megin á forsíðu undir miðannarmat. Þið eruð hvött til að skoða miðannarmatið vel og taka það alvarlega. Vonandi hafa sem flestir náð markmiðum sínum í náminu. En ef ekki þá er ennþá mikill tími til að taka sig á í náminu og gera enn betur en hingað til því önnin er aðeins rúmlega...
Meira >>>

Val á kjörsviði
6. febrúar 2012
Nemendur athugið. Val á kjörsviði fer fram til 10.febrúar. Vinsamlegast skilið eyðublaði sem fyrst á skrifstofuna. Kynningar á kjörsviðum er að finna hægra megin á forsíðu heimasíðunnar. Mikilvægt er að vanda valið.                   
Meira >>>

Jöfnunarstyrkur
20. janúar 2012
Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki á www.lin.is.  Hægt er skrá umsókn í Innu eða heimabanka.  Umsóknarfrestur vegna vorannar 2012 er til 15. febrúar 2012.  Lánasjóður íslenskra námsmanna.   Námsstyrkjanefnd
Meira >>>

Fræðsluerindi fyrir nemendur um hollt mataræði fimmtudaginn 12. janúar kl. 11:15
10. janúar 2012
Elva Gísladóttir næringarfræðingur hjá Landlæknisembættinu verður með heilsuskilaboð til nemenda MS á fimmudaginn 12. janúar kl. 11.15 í Bjarmalandi. Fjallað verður um næringu og hollt mataræði.
Meira >>>

Fundur með foreldrum/forráðamönnum nemenda í 1. bekk
9. janúar 2012
Fundur verður haldinn með foreldrum/forráðamönnum nemenda á fyrsta námsári þriðjudaginn 17. janúar 2012 kl. 19:45. Áætlaður fundartími er tvær klukkustundir. Tilgangur fundarins er að efla samstarf forráðamanna og skólans, skýra námsframboð í skólanum og fara yfir stöðu mála barna ykkar. Á fundinum fjalla sviðstjórar um kjörsviðsval en nú standa börnin...
Meira >>>

Upphaf vorannar 2012
3. janúar 2012
Skólastarf vorannar 2012 hefst miðvikudaginn 4. janúar 2012 kl. 8:55
Meira >>>

Stundatöflur vorannar 2012
29. desember 2011
Stundatöflur vorannar 2012 eru nú aðgengilegar á Innu og á Námsnetinu.
Meira >>>

Opnun skrifstofu yfir jól og áramót
28. desember 2011
Skrifstofa skólans er opin 28. og 29. desember frá klukkan 9:00-15:00. Eftir áramótin opnar skrifstofan 3. janúar klukkan 10:00 og verður opin til klukkan 16:00. Skrifstofan verður opin 4. janúar frá 8:00-16:00 og hefst kennsla á vorönn 2012 þann dag klukkan 8:55.
Meira >>>

Athöfn á sal og prófsýning þriðjudaginn 20. desember kl. 12:15
19. desember 2011
Þriðjudaginn 20. desember verður athöfn á sal kl. 12:15 og prófsýning kl. 12:30 til 14:00. Nemendur eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að skoða prófúrlausnir sínar og ræða við kennara um námsmatið.
Meira >>>

Jólatónleikar kórs MS 19. desember
16. desember 2011
Hinir árlegu jólatónleikar Kórs MS verða haldnir í Langholtskirkju mánudaginn 19. desember 2011 kl. 20:00. Kórinn mun syngja skemmtileg jólalög frá ýmsum tímum. Meðleikari á píanó er Tómas Guðni Eggertsson. Björn Thorarensen stjórnar. Nemendur MS fá ókeypis en fyrir aðra er miðaverð 500 kr.
Meira >>>

Sjúkrapróf 16. desember kl. 9:00 og kl. 11:00
15. desember 2011
Sjúkrapróf verða haldin 16. desember kl. 9:00 og kl. 11:00. Sjá lista hér að neðan hvaða próf eru kl. 9:00 og hvaða próf kl. 11:00.
Meira >>>

Prófreglur og ráðleggingar vegna prófa
1. desember 2011
Prófreglur Nemendum ber að koma tímanlega til prófs. Á tilkynningatöflu í anddyri sjá nemendur í hvaða stofu þeir eiga að taka próf. Nemandi má ekki vera í yfirhöfn né hafa hana á baki stólsins og ekki má hafa neitt á borði nema skriffæri og prófgögn. Í hverri stofu er eitt borð ætlað fyrir töskur og yfirhafnir. Pennaveski, farsímar og nesti...
Meira >>>

Próftafla og einkunnablað í Innu
22. nóvember 2011
Próftafla hvers nemanda birtist nú í Innu, vinsta megin á forsíðu undir próftafla. Einkunnablöð haustannar verða ekki prentuð út í ár heldur munu þau eingöngu birtast í Innu. Einkunnablað hvers nemanda birtist í Innu vinstra megin á forsíðu undir einkunnablað.  
Meira >>>

Tvær skólatöskur horfnar
17. nóvember 2011
...
Meira >>>

Eldri nemendur skrái einkanetfang í Innu
17. nóvember 2011
Eldri nemendur vinsamlegast skráið einkanetfang ykkar í Innu sem allra fyrst. Hugmyndin er að setja  upplýsingar um einkanetföng inn í tölvukerfi MS þannig að þið fáið allan tölvupóst sendan bæði á skólanetfangið og einkanetfangið ykkar. Til að skrá inn einkanetfangið farið þið á forsíðu Innu, hægra megin undir Stillingar, ýtið á Nemandi og farið...
Meira >>>

Dagur íslenskrar tungu
15. nóvember 2011
Á degi íslenskrar tungu miðvikudaginn 16. nóvember verður stutt lestrarstund í kennslustundinni sem hefst kl. 10:30. Gjafa/skiptibókamarkaður verður opinn í U-inu og eru nemendur hvattir til að koma með íslenskar bækur að heiman og leggja með sér á markaðinn. Bókasafnið verður með útlánsstöð í Þrísteini. Gefum og þiggjum íslenskar bækur.
Meira >>>

Fræðslufundur foreldraráðs MS
9. nóvember 2011
Að ná fókus í lífinu Fræðslufundur Foreldraráðs Menntaskólans við Sund 15. nóvember 2011 kl. 19:45—21:00 Foreldraráð Menntaskólans við Sund býður upp á fyrirlestur um hvernig hægt er að vinna sem best með fókusinn í lífi, námi og starfi. Fyrirlesturinn verður haldinn í Menntaskólanum við Sund, Bjarmalandi. Sigríður Jónsdóttir ADHD markþjálfi...
Meira >>>

Þjóðarsáttmáli gegn einelti
8. nóvember 2011
Dagurinn í dag, 8. nóvember er tileinkaður baráttunni gegn einelti. Skorað er á fólk að undirrita þjóðarsáttmála gegn einelti  http://gegneinelti.is/ MS hefur sett sér aðgerðaáætlun gegn einelti undir yfirskriftinni: Skólinn líður ekki einelti. Reynt verður með öllum tiltækum ráðum að stöðva slíka hegðun...
Meira >>>

Sköpum jákvætt vinnuumhverfi þar sem einelti þrífst ekki
8. nóvember 2011
Menntaskólinn við Sund vill stuðla að því að í skólanum ríki jákvætt andrúmsloft, þar sem kurteisi og virðing eru höfð í öndvegi. Það er trú okkar að í þannig umhverfi þrífist ekki einelti og einstaklingurinn eigi hvað mesta möguleika á að geta gert sitt besta í námi sem vinnu. Í reglugerð nr. 1000/2004 er einelti skilgreint sem "ámælisverð eða síendurtekin...
Meira >>>

Nemendakönnun
4. nóvember 2011
Nemendakönnun á haustönn 2011 verður á Námsnetinu frá 5. til 15. nóvember. Nemendur eru hvattir til þátttöku og leggja sitt af mörkum til að bæta skólastarfið.
Meira >>>

Bekkjartenglafundur
2. nóvember 2011
Sjálfsmatshópur MS heldur fund með öllum bekkjartenglum fimmtudaginn 3. nóvember kl. 11:15-11:55 í stofum 13-14.
Meira >>>

Próftafla haustannar 2011
26. október 2011
Endanleg próftafla haustannar 2011 var samþykkt í skólaráði 25. október 2011. Hún er birt hér á heimasíðunni undir Námið og á töflum á göngum skólans. Próftaflan
Meira >>>

Haustfrí 21. október 2011
20. október 2011
Menntaskólinn við Sund verður lokaður föstudaginn 21. október 2011 vegna haustfrís nemenda og starfsmanna skólans.
Meira >>>

Áfangaskil kjörsviðsverkefnis í allra síðasta lagi mánudaginn 24. október 2011
17. október 2011
Áfangaskil kjörsviðsverkefnis á haustönn eru í allra síðasta lagi mánudaginn 24. október 2011. Þá á að skila inn efnisgrind, drögum af fyrsta hluta verksins og dagbók/vinnuskrá.
Meira >>>

Fjórir nemendur úr MS meðal 20 efstu í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna
14. október 2011
Menntaskólinn við Sund átti fjóra af tuttugu efstu í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna (neðra stig) sem fram fór 4. október síðastliðinn. Alls tóku 18 nemendur úr MS þátt í keppninni að þessu sinni. Þeir fjórir nemendur MS sem voru meðal tuttugu efstu yfir landið eru; Arnór Freyr Skúlason, Böðvar Pétur Þorgrímsson, Helgi Halldórsson og Valgeir Þórðarson....
Meira >>>

Miðannarmat haustönn 2011
14. október 2011
...
Meira >>>

Foreldraráð MS boðar til aðal- og fræðslufundar 6. október kl. 19:45
30. september 2011
Foreldraráð Menntaskólans við Sund boðar til aðal- og fræðslufundar fimmtudaginn 6.október n.k kl.19:45 í samkomusal skólans ( Bjarmaland).
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum foreldrafélagsins
2. Guðmundur I. Kjerúlf verkefnastjóri í Fræðsludeild Vinnueftirlitsins

Foreldraráð Menntaskólans við Sund
Meira >>>

MS Heilsueflandi framhaldskóli
29. september 2011
Verkefninu "MS Heilsueflandi framhaldsskóli" verður formlega hleypt af stokkunum í dag klukkan 11:00. Af því tilefni verður haldin stutt athöfn í Hálogalandi. Nemendum og starfsfólki verður einnig boðið upp á léttar og hollar veitingar.
Meira >>>

Evrópski tungumáladagurinn
27. september 2011
Nemendur máladeildar skólans  tóku þátt í samstarfsverkefni Vogaskóla og MS í tilefni af Evrópska tungumáladeginum þann 26. september. Nemendur  3. A og 4. A heimsóttu nemendur í  1. - 3. bekk í Vogaskóla og kenndu þeim dálítið í spænsku, frönsku, þýsku, ensku og dönsku í stöðvaþjálfun í litlum hópum. Verkefnið var ákaflega vel heppnað...
Meira >>>

Breytingar á stundatöflum
2. september 2011
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á stundatöflum bekkja í dag til að leiðrétta villur og einnig einhverjar stofutilfærslur. Stundatöflur í Innu gilda frá næsta mánudagsmorgni.  
Meira >>>

Leiga á íþróttasal skólans
29. ágúst 2011
Nokkrir tímar eru lausir til útleigu í íþróttasal Menntaskólans við Sund. Áhugasamir hafi samband við skólann á netfangið; msund@msund.is Nánari upplýsingar er að finna hér á vefnum. Smella hér: [útleiga á íþróttasal MS]
Meira >>>

Styrkur úr Forvarnarsjóði
1. júlí 2011
Menntaskólinn við Sund hefur fengið 500 þúsund króna styrk úr Forvarnarsjóði. Styrknum verður varið til verkefnisins "Heilsueflandi framhaldsskóli" sem unnið verður í samvinnu við Landlæknisembættið og hefst verkefnið næsta skólaár og verður sérstök áhersla það ár á næringu.
Meira >>>

Upphaf skólaársins 2011-2012
29. júní 2011
Nýnemar eru boðaðir á fund í skólanum þriðjudaginn 23. ágúst 2011 klukkan 15:00. Skólasetning verður miðvikudaginn 24. ágúst klukkan 9:00 og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá strax að lokinni setningu.
Meira >>>

Innritun nýnema lokið
24. júní 2011
Innritun nýnema í Menntaskólann við Sund er lokið. 187 nemendur voru innritaðir, 81 á náttúrufræðibraut og 106 á félagsfræðabraut. Skólinn býður nýja nemendur velkomna í hóp MS-inga. Skólanum bárust 493 umsóknir frá nemendum  sem útskrifuðust úr grunnskóla 2011. Við inntöku var inntökuskilyrðum skólans fylgt, þ.e. lágmark 6 í íslensku, ensku...
Meira >>>

Innritun nýnema 2011
23. júní 2011
Innritun umsækjenda úr 10. bekk er lokið. Umsækjendur geta opnað umsókn sína og séð í hvaða skóla þeir hafa fengið skólavist í föstudaginn 24. júní kl. 11:00.
Meira >>>

Bókalistar 2011-2012
21. júní 2011
Bókalistar fyrir næsta skólaár 2011 til 2012 eru komnir á heimasíðuna undir Námið.
Meira >>>

Einkunnir úr endurtektarprófum
1. júní 2011
Aðgangur nemenda að Innu er opinn og geta nemendur séð einkunnir úr endurtektarprófum þar um leið og þær verða tilbúnar. Jafnframt verður einkunnaafhending í skólanum fyrir nemendur, sem þreyttu endurtektarpróf, miðvikudaginn 8. júní klukkan 13:00.
Meira >>>

Brautskráning vor 2011
27. maí 2011
Brautskráning frá Menntaskólanum við Sund verður frá Háskólabíói laugardaginn 28. maí og hefst athöfnin stundvíslega klukkan 10:45. Mikilvægt er að gestir mæti tímanlega.
Meira >>>

Prófsýning
26. maí 2011
Prófsýning í félagsfræði hjá Leifi Inga Vilmundarsyni verður í dag fimmtudaginn 26. maí kl. 12 til 14 í stofu 23.
Meira >>>

Endurtektarpróf 2011
24. maí 2011
Endurtektarpróf verða haldin 31. maí og 1. júní. Próftöflu endurtektarprófa er að finna hér á síðunni, undir valhnappnum Námið. Nemendur sem hafa náð meðaleinkunn en fallið í einni eða tveimur greinum verða að mæta í endurtektarpróf.
Meira >>>

Einkunnafhending og prófsýning
20. maí 2011
Einkunnaafhending og prófsýning verður mánudaginn 23. maí 2011 í 1. - 3. bekk kl. 12:30 til 14:00 og í 4. bekk kl. 14:30 til 15:30.
Meira >>>

Valgreinar - staðan 12. maí 2011
13. maí 2011
Nýir valgreinalistar hafa verið settir á töfluna í Andholti. Auglýsing um valhópa og niðurröðun þeirra á annir er einnig að finna hér á heimasíðunni. Staðan 12. maí
Meira >>>

Ráðleggingar um próf og prófreglur
29. apríl 2011

Prófundirbúningur 
Gerðu vinnuáætlun til að nýta tímann sem best.
Skipuleggðu hvernig þú ætlar að vinna hvern dag á prófatímanum. 
Gott er að vinna í um 30 mínútur og taka svo stutt hlé


Meira >>>

Kennslulok og prófatíminn
27. apríl 2011
Síðasti kennsludagur er á morgun fimmtudaginn 28. apríl. Kennt er samkvæmt stundaskrá til kl. 11:55. Matseinkunnir matsnemenda verða afhentar 28. apríl kl. 13:30 í Miðholti (U-inu). Próf hefjast föstudaginn 29. apríl. Öll próf hefjast kl. 9:00. Síðasti reglulegi prófdagur er 17. maí. Sjúkrapróf eru miðvikudaginn 18. maí. Einkunnaafhending og prófsýning...
Meira >>>

Páskaleyfi
18. apríl 2011
Skólinn er lokaður í páskaleyfinu. Skrifstofa skólans er opin þriðjudaginn eftir páska, 26. apríl, frá 8:00 til 14:00. Kennsla hefst miðvikudag 27. apríl, samkvæmt stundaskrá.
Meira >>>

MS keppir til úrslita í Morfís
31. mars 2011
MS sigraði MH í undanúrslitum Morfís í gærkvöldi 30. mars. Til hamingju MS-ingar. Lið MS skipa þau Kristín Anný Walsh, Gígja Hilmarsdóttir, Klara Óðinsdóttir og Þórir Freyr Finnbogason. Þau keppa til úrslita við MR 12. apríl í Háskólabíói.

Meira >>>

MS og MH keppa í undanúrslitum í Morfís
28. mars 2011
MS mætir MH í undanúrslitum í Morfís, ræðukeppni framhaldsskólanna, miðvikudaginn 30. mars kl. 20:00. Keppnin fer fram í Hálogalandi, íþróttasal MS. Ræðulið MS skipa: 
Liðstjóri: Kristín Anný Walsh
Frummælandi: Gígja Hilmarsdóttir
Meðmælandi: Klara Óðinsdóttir
Stuðningsmaður: Þórir Freyr Finnbogason
Meira >>>

Sjálfsmatsskýrsla 2010
21. mars 2011
Sjálfsmatsskýrsla fyrir árið 2010 hefur verið sett á heimasíðu skólans. Skýrsla
Meira >>>

Valgreinaval nemenda í 2. og 3. bekk fyrir skólaárið 2011-2012
11. mars 2011
Valgreinaval nemenda í 2. og 3. bekk fyrir skólaárið 2011-2012 fer fram á Námsnetinu 14. til 30. mars 2011. Námslýsingar valgreina sem eru í boði má finna á heimasíðunni undir Námið - Námsgreinar. Nemendur velja tvær valgreinar og aðrar tvær til vara. Sækja
Meira >>>

Sjálfsmat nemenda
4. mars 2011
Könnun var gerð meðal allra nemenda MS um námsvenjur og viðhorf þeirra til náms. Könnunin var gerð á Námsnetinu frá 30.1. til 16.2. 2011. Þátttaka var 69%. Umsjónarkennarar munu kynna niðurstöður hvers bekkjar og samanburð við skólann í heild í sínum bekk. Hér á heimasíðunni er að finna niðurstöðuna fyrir skólann í heild og einnig til...
Meira >>>

Opið hús í MS 2. mars 2011 kl. 17:00-19:00
23. febrúar 2011
Vegna innritunar vorið 2011 verður Menntaskólinn við Sund með opið hús miðvikudaginn 2. mars 2011 frá klukkan 17-19. Þennan dag verður kynning á námsframboði, áherslum sem skólinn hefur, aðstaða verður til sýnis og hægt verður að fá fræðslu um  verkefni í einstökum námsgreinum og upplýsingar um starfsemi nemendafélagsins. Nemendur...
Meira >>>

Próf hefjast 29. apríl
16. febrúar 2011
Nemendur athugið að próftafla vorannar er tilbúin og þið getið skoðað hana hér.
Meira >>>

Vetrarfrí
16. febrúar 2011
Skrifstofa MS verður lokuð 17. og 18. febrúar 2011 vegna vetrarfrís starfsmanna og nemenda. Skrifstofan opnar aftur kl. 8:00 mánudaginn 21. febrúar og skólinn hefst þá aftur samkvæmt stundatöflu.
Meira >>>

Sigurbjörg Þrastardóttir skáldkona
12. febrúar 2011
Sigurbjörg Þrastardóttir skáldkona á ljóðið Yfirgefa á heimasíðu skólans hér að neðan til hægri. Frekari upplýsingar um Sigurbjörgu og önnur skáld sem átt hafa ljóð á forsíðu vefs skólans er að finna á Orðagaldri
Meira >>>

Þátttaka í Lífshlaupinu
4. febrúar 2011
Fjölmargir einstaklingar í skólanum taka þátt í "Lífshlaupinu", átaksverkefni um bætta lífshætti sem nú stendur yfir. Hægt er að fá nánari upplýsingar um hvað er í boði hjá stjórnendum "Lífshlaupsins" í MS, þeim Sigurrósu Erlingsdóttur og Þórdísi T. Þórarinsdóttur.
Meira >>>

Leiðir til að bæta námsárangur
18. janúar 2011
Ekki eru allir nemendur sem ná fram markmiðum sínum í náminu. Ástæður þessa geta verið fjölmargar og ekki er einfalt að gefa ráð sem átt geta við í öllum tilvikum. Það geta allir þó verið sammála um að nám sé vinna og árangur hljóti að vera tengdur því hvernig unnið sé. Hér að neðan er listi yfir helstu aðgerðir skólans til að bregðast við gagnvart...
Meira >>>

Kennsla hefst 4. janúar
3. janúar 2011
Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu 4. janúar klukkan 8:10.
Meira >>>

Stundatöflur vorannar 2011
22. desember 2010
Inna hefur verið opnuð aftur fyrir nemendur og stundatöflur vorannar eru nú komnar inn í Innu.
Meira >>>

Ný stjórn foreldraráðs
17. desember 2010
Eftirtaldir aðilar skipa stjórn foreldraráðs MS skólaárið 2010-2011   Sigríður Jónsdóttir, formaður  Kristinn Tómasson, varaformaður                  Aðalheiður Una Narfadóttir, meðstjórnandi og fulltrúi í skóla...
Meira >>>

Einkunnaafhending og prófsýning
16. desember 2010
Einkunnaafhending og prófsýning verður mánudaginn 20. desember kl. 12:30 til 14:00. Samkoma á Hálogalandi hefst kl. 12:30 og verða einkunnir afhendar að henni lokinni, sjá staðsetningu hér að neðan. Prófsýning er frá kl. 13:00 til 14:00.
Meira >>>

Ráðleggingar vegna haustannarprófa
30. nóvember 2010
Ráðleggingar til nemenda vegna prófa, undirbúningur prófanna og próftaka. 
Meira >>>

Síðasti kennsludagur haustannar 2010
29. nóvember 2010
Síðasti kennsludagur haustannar er þriðjudagurinn 30. nóvember 2010. Þann dag verður kennt til kl. 11:55.
Meira >>>

Þjófnaður í MS
25. nóvember 2010
Undanfarnar vikur hefur verið mikið um þjófnað í MS. Nemendur og starfsfólk er hvatt til að gæta mjög vel að eigum sínum. Vinsamlegast tilkynnið þjófnað strax á skrifstofu skólans og ykkur er jafnframt ráðlagt að kæra stuldinn til lögreglu. Skólinn hefur brugðist við þessu ástandi með auknu eftirliti í skólanum og nú er verið að setja upp...
Meira >>>

Frábær árangur nemanda í MS í karate
19. nóvember 2010
Telma Rut Frímannsdóttir nemandi í 3.G vann tvöfaldan íslandsmeistaratitil í kumite (karate) um síðustu helgi og stuttu áður hafði hún náð frábærum árangri á alþjóðlegu móti í Svíþjóð. Skólinn óskar henni innilega til hamingju með árangurinn.
Meira >>>

Fundur í foreldraráði
18. nóvember 2010

Fundur í foreldraráði 24. nóvember, sjá meira...


Meira >>>

Skyldan kallar – komdu í skólann
12. nóvember 2010
Átak til að bæta skólasókn verður í næstu viku, m.a. verður hringt heim til nemenda sem ekki skila sér stundvíslega í fyrstu kennslustund, mánudag kl. 8:55, þriðjudag kl. 8:10 og miðvikudag kl. 8:10.
Meira >>>

Lestur skáldverka og skiptibókamarkaður
12. nóvember 2010
Á Degi íslenskrar tungu á þriðjudaginn kemur hvetjum við alla starfsmenn og nemendur að taka sér bók í hönd og lesa sér til ánægju. Bókasafnið mun lána út bækur og verða með tvær útstöðvar, í Þrísteini og Andholti, auk útlána á safninu sjálfu. Skiptibókamarkaður verður í U-inu. Hér með er auglýst eftir bókum á markaðinn, frumsömdum á íslensku eða...
Meira >>>

Nemendakönnun haust 2010
10. nóvember 2010
Nemendakönnun stendur yfir þessa viku eða frá 7. til 14. nóvember á Námsnetinu. Með þessari könnun gefst nemendum kostur á að meta nám og kennslu í skólanum. Könnunin er nafnlaus og alls ekki er hægt að rekja svör til einstakra nemenda. Við hvetjum alla nemendur til þátttöku og leggja þar með sitt af mörkum til að bæta skólastarfið.
Meira >>>

Evrópumeistaratitill
2. nóvember 2010
Anna Guðný Sigurðardóttir 4. T
Hjartanlegar hamingjuóskir með Evrópumeistaratitilinn í hópfimleikum. Við í MS erum ákaflega stolt af þér og félögum þínum.
Meira >>>

AÐALFUNDUR FORELDRAFÉLAGS MENNTASKÓLANS VIÐ SUND
26. október 2010
Aðalfundur foreldrafélagsins var haldinn 27. október. Fáir mættu á fundinn og tókst ekki að mynda nýja stjórn.
Meira >>>

Tölvupóstur
22. október 2010
Tölvupóstkerfi skólans lá niðri frá því á aðfararnótt fimmtudags og fram undir klukkan þrjú eftir hádegi á föstudag. Pósturinn er nú kominn í lag. Skólinn biðst velvirðingar á óþægindum og töfum sem orðið hafa af þessum sökum.
Meira >>>

Aðalfundur foreldraráðs MS
20. október 2010

Aðalfundur foreldraráðs MS (foreldrafélags MS) verður haldinn 27. október. Sjá meira....


Meira >>>

Skólinn verður lokaður föstudaginn 15. og mánudaginn 18. október vegna haustfrís nemenda og starfsmanna
14. október 2010

Meira >>>

Stöðumat nemenda í 1. og 2. bekk er nú tilbúið til skoðunar á Innu.
12. október 2010

Meira >>>

Fundur hjá Foreldrafélagi MS
12. október 2010
Fundur stjórnar Foreldrafélags MS verður haldinn í kvöld, þriðjudaginn 12.10.2010, klukkan 20:00 í húsnæði MS. Allir foreldrar velkomnir á þennan stjórnarfund. Dagskrá fundarins: 1. Undirbúningur fyrir væntanlegan aðalfund. 2. Önnur mál.  Stjórnin.  
Meira >>>

Próftafla haustannarprófa
8. október 2010
Próftafla haustannarprófa er komin á vefinn, sjá hér.
Meira >>>

Samstarf við Vogaskóla í tilefni af Evrópska tungumáladeginum
27. september 2010
Í tilefni Evrópska tungumáladagsins unnu máladeildarnemendur í MS og yngsta stig í Vogaskóla saman og æfðu m.a. leiki, að telja og kynna sig á fimm tungumálum, ensku, þýsku, frönsku, spænsku og dönsku. Skólinn þakkar öllum nemendum fyrir framlag sitt. Hér fylgja þrjár myndir frá samstarfinu.
Meira >>>

Foreldrafundur
20. september 2010
Fundur með foreldrum og forráðamönnum nemenda á fyrsta námsári var haldinn síðastliðinn þriðjudag og var hann mjög vel sóttur. Gögn af fundinum hafa verið sett hér á heimasíðuna undir Þjónusta - Foreldrar. Gögn.
Meira >>>

Foreldrafundur 14. september
8. september 2010
Fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema MS verður haldinn þriðjudaginn 14. september kl. 19:45. Áætlaður fundatími er tvær kukkustundir.
Meira >>>

Gjaldskrá Menntaskólans við Sund
3. september 2010
Gjaldskrá Menntaskólans við Sund skólaárið 2010-2011 hefur verið birt hér á vefnum [skoða]
Meira >>>

Esjugangan gekk vel
3. september 2010
Foreldrafélag skólans stóð fyrir göngu á Esju í gær og tókst hún vel. Færir skólinn foreldrafélaginu þakkir fyrir framtakið.
Meira >>>

Busadagur
31. ágúst 2010
Busadagur verður á morgun 1. september.
Meira >>>

Esjuganga Foreldrafélags MS
30. ágúst 2010
Foreldrafélag Menntaskólans við Sund stendur fyrir gönguferð á Esjuna fimmtudaginn 2. september kl. 18:00. Hópurinn leggur af stað frá Esjustofu. Foreldrar, nemendur og kennarar velkomnir.
Meira >>>

Upphaf skólaárs og skólasetning
23. ágúst 2010
Nýnemar eru boðaðir á fund í skólanum þriðjudaginn 24. ágúst klukkan 15. Skólasetning verður miðvikudaginn 25. ágúst klukkan 9:00 og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá strax að lokinni setningu.
Meira >>>

Stundatöflur haustannar 2010
20. ágúst 2010
Stundatöflur eru nú komnar inn í Innu.
Meira >>>

Bekkjarlistar
10. ágúst 2010
Bekkjarlistar eru nú tilbúnir, sjá hér á síðunni, undir Skólinn.
Meira >>>

Dagatal 2010-2011
29. júní 2010
Rammi að dagatali skólaárið 2010-2011 er kominn á vefinn [skoða]
Meira >>>

Bókalistar 2010-2011
28. júní 2010
Búið er að setja á heimasíðuna bókalista næsta skólaárs (2010-2011). Listinn er birtur með fyrirvara um breytingar [skoða bókalistann]
Meira >>>

Skrifstofan lokar vegna sumarfría
25. júní 2010
Skrifstofa Menntaskólans við Sund verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með mánudeginum 28. júní og til og með föstudagsins 6. ágúst næstkomandi.
Meira >>>

Bréf send út til nýnema
23. júní 2010
Úrvinnslu á umsóknum nýnema um skólavist í Menntaskólann við Sund er lokið. Verið er að ganga frá bréfi til nemanda og forráðamanns þar sem tilkynnt verður að viðkomandi nemandi hafi fengið skólavist næsta skólaár. Nemendur staðfesta síðan umsókn sína með því að greiða skólagjöldin fyrir eindaga. 
Meira >>>

Innritun nýnema - staða mála
16. júní 2010
Þessa dagana er unnið að innritun nýnema í framhaldsskóla landsins. Unnið er samkvæmt nýju fyrirkomulagi þar sem nemendur velja þann skóla sem þeir helst vilja fara í og einn til vara. Skólarnir vinna úr þessum umsóknum og raða nemendum eftir stöðu þeirra. Það voru 615 nemendur sem völdu MS þar af völdu félagsfræðabraut 323 og náttúrufræðibraut 292....
Meira >>>

Greiðsla skólagjalda eldri nemenda
10. júní 2010
Greiðsluseðlar vegna skólagjalda fyrir skólaárið 2010-2011 hafa verið sendir til eldri nemenda. Vinsamlegast greiðið á eindaga til að tryggja ykkur skólavist næsta vetur. 
Meira >>>

Brautskráning stúdenta 29.05.2010
2. júní 2010
Brautskráning stúdenta fór fram í Háskólabíói laugardaginn 29. maí. Að þessu sinni voru 125 nemendur brautskráðir.  Af málabraut voru brautskráðir 14 nemendur. Af félagsfræðabraut 58 nemendur og af náttúrufræðibraut 53 nemendur. Í útskriftarhópnum voru 54 piltar en 71 stúlka. Með hæstu einkunn (Dúx) á stúdentsprófi að þessu sinni var...
Meira >>>

Einkunnir úr endurtökuprófum
2. júní 2010
Ný einkunnablöð vegna niðurstaðna úr endurtökuprófum verða afhent á skrifstofu MS mánudaginn 7. júní kl. 12:30. Nemendur eru hvattir til að koma og sækja nýju einkunnablöðin.
Meira >>>

Einkunnaafhending og prófsýning
14. maí 2010
Einkunnir í 1. -3. bekk verða afhentar föstudaginn 21. maí kl. 12:00. Prófsýning hefst strax að lokinni einkunnaafhendingu og stendur hún til klukkan 13:45. Einkunnir í 4. bekk verða afhentar föstudaginn 21. maí kl. 14:00 og prófsýning, sem hefst að lokinni einkunnaafhendingu, stendur til klukkan 15:00.
Meira >>>

FLORA ISLANDICA - JURT MAÍ MÁNAÐAR
4. maí 2010
Jurt maí mánaðar er Vetrarblóm, Saxifraga oppositifolia. Þessi litla harðgerða planta er einna fyrst allra til að blómsta innan um fannir og skafla. Í Flora islandica segir svo um þennan vorboða. Stönglarnir eru jarðlægir og hálftrénaðir með stuttum uppsveigðum blómstönglum. Blöðin eru gisstæð á jarðlæga stönglinum en mjög þéttstæð á blómstönglunum...
Meira >>>

Fyrirtækjamiðjan: Frábær árangur MS
3. maí 2010
Nemendur í hagfræði við Menntaskólann við Sund, undir stjórn Ingibjargar Þormar, náðu frábærum árangri á uppskeruhátíð Fyrirtækjasmiðjunnar. Stúlkur í 3. G fengu verðlaun fyrir bestu viðskiptaáætlunina og kynningu 2010 og fyrr í vor fengu piltar í 3. G viðurkenningu fyrir besta básinn og framkomu á Vörumessunni í Smáralind fyrir nokkru.
Meira >>>

Próf hefjast 3. maí klukkan 9:00
28. apríl 2010
Próftöfluna er að finna heimasíðunni sem og reglur um próf. Nemendum er bent á að kynna sér prófreglur og próftöfluna vel. Próftaflan.  Reglur um próf.
Meira >>>

Stórtónleikar í Lindakirkju 16. og 17. apríl, 2010
14. apríl 2010
Vopnaði Maðurinn eftir Karl Jenkins. Stórtónleikar í Lindakirkju 16. og 17. apríl, 2010. Samkór Kópavogs – Tónlistarskóli Kópavogs – Tónlistarskóli Hafnarfjarðar Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar Samkór Kópavogs og Kór Menntaskólans við Sund í samvinnu við nemendur og kennara úr Tónlistarskóla Kópavogs, Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Tónskóla...
Meira >>>

Valgreinar í boði 2010-2011
12. mars 2010
Lýsingar á valgreinum sem í boði verða 2010-2011 er nú að finna á heimasíðunni. Valgreinaval nemenda á 2. og 3. námsári fer fram á Námsnetinu 19. mars til 9. apríl. Valgreinalýsingar
Meira >>>

FLORA ISLANDICA - JURT MARS MÁNAÐAR
10. mars 2010
Þórdís T. Þórarinsdóttir forstöðumaður bókasafns MS hefur valið jurt marsmánaðar. Fyrir valinu varð Eyrarrós (Chamerion latifolium). Hún er nú til sýnis í bókinni Flora islandica á annarri hæð framan við skrifstofu skólans. Í Flora islandica segir svo um Eyrarrós: Upp af jarðstöngli vaxa margir, smádúnhærðir og blaðmargir stönglar. Blöðin...
Meira >>>

Kjörsviðsverkefni - lokaskil
8. mars 2010
Nemendur í 4. bekk Skiladagur lokaafurðar   kjörsviðsverkefnis í 4. bekk er   19. mars 2010.  Konrektor
Meira >>>

Kjörsviðsval
25. febrúar 2010
Kjörsviðsval nemenda í 1. og 2. bekk, val á fjórða tungumáli í 1. bekk málabrautar og staðfesting á vali á þriðja tungumáli í 1. bekk félagsfræða- og náttúrufræðibrautar fer fram vikuna 1. til 5. mars. Konrektor mun ganga í bekki og nemendur fylla út eyðublað til staðfestingar á vali sínu. Sjá kynningar á kjörsviðum brauta hér hægra megin...
Meira >>>

Þemadagur MS og árshátíð SMS
12. febrúar 2010
Miðvikudaginn 17. febrúar verður skólastarf brotið upp og munu ýmsir gestir koma í heimsókn í skólann. Nemendur fá þá tækifæri til að taka þátt í skapandi starfi (dans, jóga, prjóna, myndlist), umræðum um stjórnmál, hlusta á skáld lesa úr verkum sínum, fræðast um alþjóðleg hjálpar- og björgunarstörf og hlusta á tónlist. Sjá dagskrá hér neðar á...
Meira >>>

Innritun fyrir haustönn 2010
5. febrúar 2010
Í hvaða framhaldsskólum eiga grunnskólanemar forgang? Nemendur sem eru að ljúka grunnskóla eiga rétt á skólavist í framhaldsskóla. Því er nemendum í tilteknum grunnskólum tryggður forgangur að skólavist í ákveðnum framhaldsskólum með hliðsjón af nágrenni við skóla, hefðum og samgöngum. Meðfylgjandi listi sýnir í hvaða framhaldsskólum nemendur einstakra...
Meira >>>

Samstarf við Vogaskóla á degi stærðfræðinnar
5. febrúar 2010
Dagur stærðfræðinnar er í dag. Af því tilefni undirbjuggu Vogaskóli og Menntaskólinn við Sund samstarfsverkefni nemenda og komu áttundu bekkingar úr Vogaskóla hingað í MS í morgun. Nemendur í 2. S og hluti nemenda í 1. E tóku á móti Vogaskólakrökkum. Skipt var í hópa og voru ýmist...
Meira >>>

FLORA ISLANDICA - jurt mánaðarins
4. febrúar 2010
Bókin FLORA ISLANDICA er eitt glæsilegasta rit sem komið hefur út hér á landi í langan tíma. Myndir í bókinni eru eftir Eggert Pétursson listmálara og stúdent frá MT en textinn er eftir Ágúst H. Bjarnason grasafræðing og fyrrum kennara við MS. FLORA ISLANDICA er nú aðgengileg nemendum...
Meira >>>

Kynjaskipting starfa í MS
27. janúar 2010
Upplýsingar um kynjaskiptingu starfa í MS skólaárið 2009-2010 eru nú aðgengilegar hér á vef skólans [skoða]
Meira >>>

Jöfnunarstyrkur
26. janúar 2010
Umsóknarfrestur um jöfnunarstyrk frá LÍN á vorönn 2010 er 15. febrúar.
Meira >>>

Foreldrafundur 1. bekk
12. janúar 2010
Fundur verður haldinn með foreldrum og forráðamönnum nemenda í 1. bekk þriðjudaginn 19. janúar kl. 19:45-21:45. Tilgangur fundarins er að efla samstarf forráðamanna og skólans, skýra námsframboð í skólanum og fara yfir stöðu mála barna ykkar. Á fundinum fjalla sviðstjórar um kjörsviðsval nemenda og umsjónarkennarar ræða um námsárangur á haustönn og...
Meira >>>

Velkomin til starfa
8. janúar 2010
Velkomin til starfa á vorönn 2010. Nú er mikilvægt að byrja strax af fullum krafti í náminu og hafa hugfast að góð mæting, virkni í kennslustundum og heimanám er lykillinn að góðum námsárangri. Gangi ykkur vel.
Meira >>>

Stundatöflur vorannar 2010
29. desember 2009
Stundatöflur vorannar 2010 eru nú komnar á heimasíðu MS undir Námið - Stundatöflur.
Meira >>>

Opnunartímar skrifstofu síðustu daga í desember
21. desember 2009
...
Meira >>>

Lok haustannar - afhending einkunna
17. desember 2009
Lok haustannar 2009 er föstudaginn 18. desember klukkan 12:30. Dagskráin er þannig að það verður stutt athöfn á sal skólans og nemendur fá einkunnir sínar og geta skoðað prófúrlausnir.
Meira >>>

Ráð um prófaundirbúning og próftöku
30. nóvember 2009
Haustannarpróf 2009 hefjast fimmtudaginn 3. desember kl. 9:00. Nemendum er bent á að góð ráð er að finna á heimasíðu MS bæði um prófaundirbúninginn og próftökuna sjálfa. Þar er einnig að finna prófreglur sem mikilvægt er að nemendur kynni sér. Gangi ykkur vel. Sjá krækjur hér að neðan eða undir Námið - Reglur um próf. Ráð...
Meira >>>

Myndir frá lestrarátaki á Degi íslenskrar tungu
20. nóvember 2009
Í meðfylgjandi skjali eru myndir frá lestraráakinu á Degi íslenskrar tungu.
Sækja...
Meira >>>

Dagur íslenskrar tungu
12. nóvember 2009
Mánudagurinn 16. nóvember er dagur íslenskrar tungu. Hann er haldinn hátíðlegur ár hvert en það er afmælisdagur skáldsins Jónasar Hallgrímssonar. Þá ætlum við að öll, nemendur og kennarar MS að lesa skáldrit á íslensku frá kl. 10:30-11:10. Við leggjum niður hefðbundið starf og setjumst niður og lesum, ekki hinar hefðbundnu kennslubækur...
Meira >>>

Fræðslu- og aðalfundur foreldrafélags MS
9. nóvember 2009
Stjórn foreldrafélags Menntaskólans við Sund boðar til fræðslu- og aðalfundar félagsins þriðjudaginn 17. nóvember kl. 20:00 í stofum 13 og 14 í  MS.  


Meira >>>

Nemendakönnun
8. nóvember 2009
Opnað hefur verið nemendakönnun á Námsnetinu. Með þessari könnun gefst öllum nemendum Menntaskólans við Sund kostur á að meta gæði náms og kennslu í skólanum og leggja sitt af mörkum til að bæta skólastarfið. Ekki verður hægt að rekja svör til einstakra nemenda því þessi hluti Námsnetsins er byggður þannig upp að aðeins er hægt að sjá heildarniðurstöðu...
Meira >>>

Um aukatíma á haustönn
6. nóvember 2009
Menntaskólinn við Sund mun ekki bjóða nemendum upp á aukatíma á haustönn 2009. Nemendum, sem telja sig þurfa á aukatímum að halda, er bent á að aukatímar eru víða í boði. Upplýsingar um kennara sem taka nemendur í einkatíma eru m.a. á töflum framan við skrifstofur námsráðgjafa. Einnig  býður fyrirtækið Study.is...
Meira >>>

Próftafla haustannarprófa 2009
30. október 2009

Meira >>>

Mat á lotunámi
29. október 2009
Nú stendur yfir könnun á Námsnetinu fyrir nemendur í 1. bekk félagsfræðabrautar um mat á tilraun um lotunám í félagsfræði, ensku og jarðfræði. Við þökkum þeim nemendum sem nú þegar hafa svarað könnuninni kærlega fyrir þátttökuna og biðjum þá sem eiga það eftir vinsamlegast að gera það fyrir 30. október.
Meira >>>

Tímabundin breyting á skil á vottorðum
21. október 2009
Læknisvottorð vegna veikinda nemenda 18 ára eða eldri. Um þessar mundir er mikið álag á heilsugæslustöðvar vegna inflúensufaraldurs. Starfsfólk heilsugæslustöðva á því tímabundið erfitt með að sinna útgáfu læknisvottorða. Frá og með 15. október geta foreldrar staðfest veikindi nemenda sem eru 18 ára eða eldri. Þetta gildir tímabundið ...
Meira >>>

Haustfrí í MS 16. október
15. október 2009
Skólinn verður lokaður föstudaginn 16. október vegna haustfrís nemenda og starfsmanna skólans.
Meira >>>

Frestur til að sækja um jöfnunarstyrk rennur út í dag
15. október 2009
Eftirfarandi auglýsing barst frá Lánasjóði íslenskra námsmanna með ábendingu um að fresturinn til að sækja um styrk rennur út í dag þann 15. október. Jöfnunarstyrkur Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is Hægt er að skrá umsókn á Innu eða...
Meira >>>

Myndasöguhöfundurinn Line Hoven í MS
15. október 2009
Þriðudaginn 13. október stýrði myndasöguhöfundurinn Line Hoven myndasögusmiðjufyrir valáfanga í lífsleikni í MS. Þar kynnti hún sérstaka tækni sem hún notar við myndasögugerð og nemendur spreyttu sig við myndlistina og varð vel ágengt.
Meira >>>

Stöðumat í 1. og 2. bekk og sjálfsmat nemenda í 2. bekk
9. október 2009
Vikuna 5. til 9. október fer fram stöðumat nemenda í 1. og 2. bekk þar sem kennarar leggja mat á námsstöðu nemenda í hverri námsgrein. Á sama tíma fer fram sjálfsmat nemenda í 2. bekk þar sem þeir leggja mat á námsstöðu sína í hverri grein. Umsjónarkennarar afhenda stöðumatið til nemenda í frá 13. til 15. október og einnig verður það sent heim til forráðamanna...
Meira >>>

40 ár frá því skólinn hóf störf
1. október 2009
Menntaskólinn við Sund er í dag, 1. október 2009 40 ára. Þennan dag fyrir 40 árum hóf skólinn starfsemi í húsi gamla Miðbæjarskólans. Skólinn var síðan settur formlega laugardaginn 18. október 1969. Í tilefni þessa afmælis var í dag tekinn í notkun fáni skólans og hátíðarfánar. Að lokinni athöfn á sal skólans þar sem rektor skólans flutti ávarp og...
Meira >>>

Evrópski tungumáladagurinn
26. september 2009
Samstarf Vogaskóla og Menntaskólans í tilefni tungumáladagsins tókst með ágætum. Sex erlend tungumál hljómuðu allt um kring í stofum yngsta stigs Vogaskóla þegar máladeildarnemendur í MS kenndu 5-8 ára gömlum börnum í Vogaskóla að telja, nefna liti og kynna sig á 6 tungumálum. 
Meira >>>

Fundur um framtíð MS
23. september 2009
Skólinn verður lokaður í dag, 23.september, frá klukkan 13:00 vegna fundar starfsfólks um nýja námskrá og nýtt kerfi, lotubundið bekkjarkerfi, sem verið er að vinna að. Skrifstofan verður opin á morgun eins og vanalega frá klukkan 8 til 16.
Meira >>>

Samstarf MS og Vogaskóla á degi tungumálsins föstudaginn 25. september 2009
23. september 2009
Í tilefni tungumáladagsins 25. september munu málabrautarnemendur í MS á  þriðja og fjórða ári verða með talæfingar á ýmsum tungumálum meðal nemenda á yngsta stigi Vogaskóla. Nemendur í MS útbúa talæfingar á sex tungumálum: Spænsku, ensku, frönsku, þýsku, ítölsku og rússnesku. Nemendur Vogaskóla eru vanir stöðvaþjálfun, hringekju og verður...
Meira >>>

Orgeltónleikar í Langholtskirkju
22. september 2009
Í hádeginu í dag, þriðjudag 22. september, höfum við þegið boð um að mæta með nemendur, kennara og annað starfsfólk á orgeltónleika í tilefni þess að fertugsafmælið nálgast hratt! Við biðjum kennara að hleypa nemendum út klukkan 11:45 og ganga með bekknum sem þeir eru að kenna í kirkjuna. Tónleikarnir standa í hálftíma og gerum við ráð fyrir að kennsla...
Meira >>>

Efni af fundi með forráðamönnum nemenda í 1. bekk
16. september 2009
Fundur var haldinn með forráðamönnum nemenda í 1. bekk þann 15. september 2009 og var hann mjög vel sóttur. Glærur af fundinum er að finna á heimasíðunni undir Þjónusta - Foreldrar/forráðamenn. Þar er einnig að finna leiðbeiningar fyrir forráðamenn barna yngri en 18 ára til að fá aðgangsorð að Innu og upplýsingar um foreldraráð MS. Tenging...
Meira >>>

Fundur með forráðamönnum nýnema
9. september 2009
Haldinn verður fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema  í Menntaskólanum við Sund þriðjudaginn 15. september nk. kl. 19:45. Áætlaður fundartími er tvær klukkustundir. Tilgangur fundarins er að skapa góð tengsl við foreldra og forráðamenn nýnema, að kynna skólann og starfsemina í vetur og svara fyrirspurnum. Dagskrá: 1.  &nb...
Meira >>>

Viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs
1. september 2009
Viðbragðsáætlun Menntaskólans við Sund komi til heimsfaraldurs flensu hefur verið sett á vefinn. Þar má meðal annars lesa um hvernig brugðist verður við komi til þess að skólanum verði lokað [skoða]
Meira >>>

Fyrstu dagarnir í skólanum
28. ágúst 2009
Ágætu nemendur! Nú er skólastarfið komið á fullt. Þið eigið að vera búnir að útvega ykkur öll námsgögn sem tiltekin eru á bókalistanum og sem kennarar ykkar hafa bent ykkur á. Mikilvægt er að byrja skólastarfið vel. Mæta í allar kennslustundir, vera virkur þátttakandi í kennslustundunum og fylgja vel þeim leiðbeiningum sem eru gefnar. Þið...
Meira >>>

Skólasetning
24. ágúst 2009
Skólinn verður settur á sal (Hálogalandi) þriðjudaginn 25. ágúst klukkan 9:00. Kennsla hefst sama dag strax að lokinni setningu samkvæmt stundaskrá.
Meira >>>

Stundatöflur haustönn 2009
21. ágúst 2009
Stundatöflur bekkja á haustönn 2009 eru komnar á heimasíðu MS undir Námið og einnig inn í Innu.
Meira >>>

Mæting með ábyrgð
20. ágúst 2009
Skólasóknarreglur voru í endurskoðun síðasta skólaár. Helsta breytingin er að þak er sett á vottorð og raunmæting er reiknuð í náms- og vinnueinkunn í hverri grein. Nemendur eru hvattir til að kynna sér skólasóknarreglurnar.
Meira >>>

Bekkjarlistar
14. ágúst 2009
Nemendum hefur verið raðað í bekki. Smellið hér til að skoða bekkjarlista.
Meira >>>

Upphaf skólaársins
10. ágúst 2009
Skólinn verður settur þriðjudaginn 25. ágúst klukkan 9:00 og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá strax að lokinni setningu. Nýnemar verða boðaðir til fundar á sal skólans mánudaginn 24. ágúst klukkan 15:00. Nýnemar og foreldrar/forráðamenn munu fá bréf sent heim frá skólanum með helstu upplýsingum um upphaf skólastarfsins og í hvaða bekk þeir...
Meira >>>

Skýrsla um námskrárvinnu og smíði lotubundins bekkjarkerfis
30. júní 2009
Skýrsla Menntaskólans við Sund til Menntamálaráðuneytis um þróunarstarf í skólanum við innleiðingu nýrra laga og smíði lotubundins bekkjarkerfis er komin hér á vefinn [lesa]
Meira >>>

Innritun nýnema er lokið
25. júní 2009
Innritun nýnema gekk vel og komust færri að en vildu. Næsta haust verða 9 bekkir á fyrsta námsári. Fjórir á félagsfræðabraut, fjórir á náttúrufræðibraut og einn bekkur verður á málabraut. Nýnemar staðfesta  skólavist sína með því að greiða innritunargjöldin fyrir eindaga. Verði innritunargjöld ekki greidd fyrir eindaga er hætta á að viðkomandi...
Meira >>>

Bókalisti 2009-2010
25. júní 2009
Bókalisti næsta skólaárs (2009-2010) er kominn á vefinn. Eins og alltaf er listinn birtur með fyrirvara um breytingar. Mikilvægt er að nemendur skoði vel hvaða útgáfa bókar verður kennd þar sem það á við. [skoða bókalistann]
Meira >>>

Myndir frá brautskráningu í Háskólabíói
23. júní 2009
Búið er að setja myndir frá brautskráningu stúdenta þann 30. maí á vefinn. Myndirnar eru í hárri upplausn og henta vel til útprentunar.  [skoða]
Meira >>>

Afgreiðsla umsókna um framhaldsskóla haustið 2009 - verklagsreglur
10. júní 2009
Umsækjendur raðast í eftirfarandi forgangsröð á laus pláss í framhaldsskólum: 1.     Nemendur sem færast milli anna/skólaára 2.     Umsækjendur sem koma beint úr 10. bekk og aðrir sem eru ólögráða 3.     Aðrir sem eru að sækja um framhaldsnám í fyrsta sinn 4.     Þeir...
Meira >>>

Einkunnir úr endurtektarprófum
3. júní 2009
Einkunnir úr endurtektarprófum verða afhentar á skrifstofu skólans mánudaginn 8. júní klukkan 12:30. Athugið að einkunnir eru ekki gefnar upp í síma.
Meira >>>

Brautskráning stúdenta
2. júní 2009
Brautskráning stúdenta fór fram frá Háskólabíói laugardaginn 30. maí við hátíðlega athöfn. Að þessu sinni voru 128 nemendur brautskráðir. Af náttúrufræðibraut brautskráðust 70 nemendur. Af félagsfræðabraut voru brautskráðir 52 nemendur og af málabraut 6 nemendur. Í útskriftarhópnum voru piltar  62 og stúlkur 66. Hæstu einkunn á stúdentsprófi fékk...
Meira >>>

Próftafla endurtökuprófa
29. maí 2009

Endurtektarpróf verða miðvikudag og fimmtudag í næstu viku, 3. og 4. júní. Öll prófin hefjast klukkan 9.


Meira >>>

Viðtöl og upplýsingar vegna endurtökuprófa
28. maí 2009

Föstudaginn 29. maí verða viðtalstímar í nokkrum greinum vegna endurtektarprófa og þriðjudaginn 2. júní verða viðtalstímar við stærðfræði- og dönskukennara. Einnig geta nemendur nálgast námsefnispakka í stærðfræði.


Meira >>>

Endurtektarpróf
26. maí 2009
Öll endurtektarpróf verða haldin 3. og 4. júní. Endurtektarprófin eru alltaf úr öllu námsefni vetrarins. Próftafla endurtökuprófa verður birt á vefnum næsta föstudag. Upplýsingar um viðtalstíma kennara eða endurtektarnámskeið munu verða settar á síðuna um leið og þær liggja fyrir. Nemendum í 1. -3. bekk ber skylda til að mæta í endurtektarpróf.
Meira >>>

Einkunnaafhending og prófsýning vor 2009
25. maí 2009

Einkunnaafhending 1.-3. bekk hefst klukkan 12:00 þriðjudaginn 26. maí. Prófsýning hefst að lokinni einkunnaafhendingu klukkan 12:45 og stendur til klukkan 14:00.

Einkunnaafhending og prófsýning í 4. bekk er þriðjudaginn 26. maí klukkan 12:30 til 14:00. Æfing vegna útskriftar er strax að lokinni prófsýningu.


Meira >>>

Lokað á skrifstofu skólans vegna fundarhalda
20. maí 2009
Skrifstofa skólans verður lokuð frá klukkan 14 í dag, miðvikudaginn 20. maí 2009 vegna fundarhalda starfsfólks. Skrifstofan verður opin á föstudaginn frá klukkan 08-16:00 eins og vanalega.
Meira >>>

Próftafla sjúkraprófa
20. maí 2009
Föstudagur 22. maí. Sjúkrapróf í 1. -3. bekk      
Meira >>>

Stubbur er kominn út
30. apríl 2009
Einblöðungurinn Stubbur er kominn út. Að þessu sinni er fjallað um áhrif kreppunnar á skólastarfið [Skoða blaðið]
Meira >>>

Fyrsti fundur nýrrar skólanefndar MS
29. apríl 2009
Fyrsti fundur nýrrar skólanefndar Menntaskólans við Sund var haldinn þriðjudaginn 28. apríl. Á fundinum var Guðmundur Kristinn Birgisson m.a. kosinn formaður skólanefndar Menntaskólans við Sund. [sjá nánar um skólanefnd]
Meira >>>

Innritun nýnema - lágmarkskröfur
16. apríl 2009
Menntaskólinn við Sund hefur gefið út hver eru lágmarksviðmið úr grunnskóla í íslensku, ensku og stærðfræði  sem horft verður til við innritun nýnema í júní. [lesa nánar]
Meira >>>

Undirbúningur vorprófa
2. apríl 2009
Undirbúningur vorprófa er nú kominn á fullt. Nemendur eru hvattir til þess að leggja rækt við námið þessar síðustu vikur fyrir próf. Mikilvægt er að nemendur nýti  páskafríið til náms og skipuleggi vel undirbúning sinn fyrir prófin. Á vef skólans er að finna reglur um próf og einkunnir auk þess sem þar er hægt að nálgast ýmis góð ráð varðandi námsundirbúning...
Meira >>>

Lokun skrifstofu í páskafríi
2. apríl 2009
Skrifstofa skólans verður lokuð um páskana frá og með mánudeginum 6. apríl til og með þriðjudagsins 14. apríl. Skrifstofan opnar að loknu páskafríi klukkan 8:10 miðvikudaginn 15. apríl.
Meira >>>

Sjálfsmatsskýrsla MS fyrir árið 2008
31. mars 2009
Skýrsla skólans um sjálfsmat árið 2008 er komin á vefinn. Um sjálfsmat skólans segir m.a. svo í úttekt sem Menntamálaráðuneytið lét gera á aðferðum skólans: Sjálfsmat er hluti af lögbundinni starfsemi framhaldsskóla og kveðið er á um það í skólasamningi menntamálaráðuneytis við Menntaskólann við Sund (MS). Í upphafi hvers skólaárs birtir MS sjálfsmatsáætlun,...
Meira >>>

Endanlegt uppgjör vegna söfnunar á Þemadögum
27. mars 2009
Nemendur MS söfnuðu fé fyrir Barnaheill á þemadögum. Nú er komið að því að gera upp söfnunarátakið og munu nemendur skólans afhenda Barnaheillum það sem safnast hefur. Þeir nemendur sem eiga enn eftir að ganga frá greiðslum vegna söfnunardagsins geta greitt inn á reikningsnúmer 0338-13-221902. Kennitala reikningseiganda er 570489-1199. Greiðslur...
Meira >>>

Fréttapistillinn Stubbur er kominn út
18. mars 2009
Stubbur, mars 2009 er kominn á vefinn. [lesa]
Meira >>>

Ársskýrsla MS fyrir 2008
18. mars 2009
Ársskýrsla Menntaskólans við Sund er komin á vefinn. Í skýrslunni er komið inn á nokkra þætti úr skólastarfinu. Gerð er grein fyrir helstu áherslum og breytingum á árinu 2008. [meira..]
Meira >>>

Próftafla vorannar 2009
11. mars 2009
Próftafla vorannar 2009 er komin á vefinn. Taflan er vistuð undir Námið-Próftafla vor 2009. Nemendur eru hvattir til þess að kynna sér vel hvenær þeir eiga að vera í prófi. Mikilvægt er að mæta tímanlega í öll próf, kynnna sér vel reglur um próf og prófahald og nýta tímann vel.[Sjá nánar] 
Meira >>>

Af fundi foreldraráða á Reykjavíkursvæðinu
11. mars 2009
Fulltrúar foreldraráða nokkurra framhaldsskóla hittust 18. febrúar í Húsnæði Heimilis og skóla til að ræða málin. Hægt er að lesa fundargerð þessa fundar hér
Meira >>>

Valgreinar í boði 2009-2010
9. mars 2009
Nemendur í 2. og 3. bekk eiga að velja tvær valgreinar og tvær til vara. Valið fer fram á Námsnetinu dagana 23. mars til 1. apríl. Kynningarbæklingur
Meira >>>

Opið hús í Menntaskólanum við Sund
6. mars 2009
         
Meira >>>

Uppgjör þemadaga
4. mars 2009
Nemendur MS söfnuðu fé fyrir Barnaheill á þemadögum. Nú er komið að því að gera upp söfnunarátakið og munu nemendur skólans afhenda Barnaheillum það sem safnast hefur um miðjan mánuðinn. Þeir nemendur sem eiga enn eftir að ganga frá greiðslum vegna söfnunardagsins geta greitt inn á reikningsnúmer 1154-15-201902. Kennitala reikningseiganda er 570489-1199....
Meira >>>

Foreldraráð Menntaskólans við Sund
26. febrúar 2009
Stofnað hefur verið foreldraráð Menntaskólans við Sund. Á vef skólans (undir Þjónusta) er hægt að sækja upplýsingar um hverjir sitja í stjórn Foreldraráðs MS og lesa lög félagsins. [meira....]
Meira >>>

Úttekt á sjálfsmati við Menntaskólann við Sund
25. febrúar 2009
Menntamálaráðuneytið hefur virt niðurstöður úttektar á sjálfsmatsaðferðum 29 framhaldsskóla. Í niðurstöðum útttektar á Menntaskólanum við Sund segir m.a.: "Menntaskólinn við Sund uppfyllir bæði viðmið ráðuneytisins um sjálfsmatsaðferðir og um framkvæmd sjálfsmatsins. Ráðuneytið fagnar þessum góðu niðurstöðum." Í greinargerð úttektaraðila sem ráðuneytið...
Meira >>>

Fræðsluerindi Hins íslenska náttúrufræðifélags
19. febrúar 2009
Mánudaginn 23. febrúar kl. 17:15 verður haldið fimmta fræðsluerindi vetrarins.  Erindið verður haldið í fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund (Bjarmalandi) að Gnoðarvogi 43. Allir eru velkominir og aðgangur er ókeypis! Pokadýr í Ástralíu Rannveig Magnúsdóttir, doktorsnemi í líffræði við Háskóla Íslands, flytur erindi um pokadýr Ástralíu. Í þessum...
Meira >>>

Áheitaferð 1. bekkjar á Egluslóð 2009
11. febrúar 2009
Í tilefni þemadaga við Menntaskólann við Sund sem verða í vikunni 15. til 21. febrúar hefur verið ákveðið að ganga á ný til samstarfs við Barnaheill. Nemendur við skólann munu nú í fjórða sinn safna fé og styrkja samtökin Barnaheill sem vinna að því að bæta hag barna víðsvegar um heim. Hluti þessa verkefnis að þessu sinni er áheitaferð nemenda...
Meira >>>

Deiliskipulag vegna stækkunar MS
6. febrúar 2009
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag tillögu skipulagsráðs um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 43 við Gnoðarvog, þar sem Menntaskólinn við Sund stendur.  Í breytingunni felst niðurrif núverandi húsa að hluta og nýbyggingar í þeirra stað. Deiliskipulagsbreytingin er gerð að ósk menntamálaráðuneytisins og snýr einvörðungu að lóð Menntaskólans...
Meira >>>

Samstarf MS og Vogaskóla á degi stærðfræðinnar
6. febrúar 2009
Grannskólarnir MS og Vogaskóli hafa tekið höndum saman í tilefni dagsins og mun hópur nemenda úr MS vinna samvinnuverkefni með nemendum úr 8. ,9, og 10 bekk Vogaskóla. Verkefnið fer fram í Vogaskóla og munu nemendur vinna að margvíslegum þrautalausnum sem tengjast þema dagsins, þríhyrningsforminu.
Meira >>>

Vel heppnaðri brunaæfingu lokið
28. janúar 2009
Nú er nýlokið vel heppnaðri brunaæfingu í Menntaskólanum við Sund í samvinnu við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Securitas. Æfingin er hluti af átaki í öryggismálum í skólanum sem innifelur í sér meðal annars endurskoðun á rýmingaráætlun, útgáfu á handbók um öryggismál, haldið hefur verið námskeið í fyrstu hjálp og námskeið í notkun slökkvitækja,...
Meira >>>

Fræðslufundur Hins íslenska náttúrufræðifélags
26. janúar 2009
Vakin er athygli á því að fræðslufundir HÍN verða í vetur í Bjarmalandi, fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund. Fyrsti fundurinn verður í dag, mánudaginn  26. janúar og hefst stundvíslega klukkan 17:15. Árni Einarsson mun þar fjalla um lífríki Mývatns. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Næstu erindi á árinu 2009:  Mánudagurinn...
Meira >>>

Fundur með foreldrum og forráðamönnum nemenda á 1. ári
16. janúar 2009
Haldinn verður fundur í Menntaskólanum við Sund með foreldrum og forráðamönnum nemenda á fyrsta námsári þriðjudaginn 20. janúar 2009 kl. 19:45. Áætlaður fundartími er tvær klukkustundir. Tilgangur fundarins er að efla samstarf forráðamanna og skólans, skýra námsframboð í skólanum og fara yfir stöðu mála barna ykkar. Á fundinum fjalla sviðstjórar um...
Meira >>>

Framhaldsstofnfundur foreldraráðs Menntaskólans við Sund
16. janúar 2009
Boðað er til framhaldsstofnfundar foreldraráðs Menntaskólans við Sund miðvikudaginn 4. febrúar næstkomandi kl. 20:00. Fundurinn verður í stofu 19 í MS, gengið inn um aðaldyr og upp stigann, alveg upp á þriðju hæð. Stofa 19 er fremst á vinstri hönd þegar komið er inn á ganginn. Dagskrá framhaldsstofnfundar 1.      Setning ...
Meira >>>

Jöfnunarstyrkur
15. janúar 2009
Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á heimasíðu Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Hægt er að skrá umsókn á Innu eða netbankanum! Ath. að þeir sem völdu aðstoðartíma ?Allt árið? þegar sótt var um vegna náms á haustönn 2008 þurfa ekki að endurnýja umsókn vegna vorannar 2009. Ef nemandi...
Meira >>>

Uppfærðar stundatöflur
15. janúar 2009
Búið er að setja inn uppfærðar stundatöflur 1. bekkjar hér á vefinn. Vakin er athygli á að nú eru tímar í stærðfræðiverinu komnir inn á töflu hvers bekkjar. [skoða töflur]
Meira >>>

Stærðfræðiver
15. janúar 2009
Menntaskólinn við Sund opnar stærðfræðiver fyrir alla nemendur á fyrsta og öðru námsári. Boðið verður upp á aðstoð í stærðfræði á föstudögum í stofu 19 samkvæmt stundatöflu hér að neðan. Nemendur eru hvattir til að nýta sér þessa aðstoð.    
Meira >>>

Stundatöflur vorannar 2009
29. desember 2008
Stundatöflur vorannar 2009 eru komnar á vef skólans. Hægt er að skoða töflur einstakra bekkja hér [skoða]
Meira >>>

Niðurstöður nemendakönnunar
22. desember 2008
Nú liggja fyrir niðurstöður úr nemendakönnun haustannar 2008. Hægt er að nálgast meðalgildi allra kennara (heildarniðurstöður) hér á vefnum [skoða]
Meira >>>

Skrifstofan er opin yfir hátíðirnar sem hér segir
19. desember 2008
Mánudaginn 22. desember frá klukkan 8 til 16. Mánudaginn 29. desember frá klukkan 10-14 og þriðjudaginn 30 desember frá klukkan 10-14. Skrifstofan opnar á ný 5. janúar og verður opin frá klukkan 8 til 16.
Meira >>>

Sjúkrapróf haustannar 2008
17. desember 2008
Sjúkrapróf haustannar verða fimmtudaginn 18. júní og hefjast fyrstu prófin klukkan 9:00. Prófað er í tveimur lotum og hefst síðari lotan klukkan 11:00 [sjá hér að neðan]. Sjúkrapróf Öll sjúkrapróf verða haldin 18. desember, ýmist klukkan 9 eða klukkan 11. Prófunum er raðað eftir tíma og bekkjum (árgöngum). 18. des. kl. 9:0...
Meira >>>

Fullveldisdagurinn
1. desember 2008
Í dag, 1. desember eru 90 ár frá því að Ísland var lýst frjálst og fullvalda ríki árið 1918. Dagurinn varð smám saman að almennum þjóðhátíðardegi fram að lýðveldistíma. Háskólastúdentar hófu hátíðahöld á fullveldisdaginn á fyrstu árum þriðja áratugarins, og héldu tryggð við daginn þegar 17. júní tók við sem þjóðhátíðardagur eftir lýðveldisstofnun 1944....
Meira >>>

Stofnun foreldraráðs - vinnan framundan
27. nóvember 2008
Stofnfundur foreldraráðs Menntaskólans við Sund var haldinn 25. nóvember síðastliðinn. Á fundinum var ákveðið að boða til framhaldsstofnfundar og þriggja manna nefnd foreldra valin til að undirbúa þann fund. Nefndina skipa Hafije Zogaj, Þórunn Margrét Ólafsdóttir og Þröstur Árni Gunnarsson.
Meira >>>

Dagur íslenskrar tungu
16. nóvember 2008
Dagur íslenskrar tungu er í dag, 16. nóvember. Í tilefni dagsins verður hátíðardagskrá í hátíðasal Háskóla Íslands kl. 14:00–15:30 og mun menntamálaráðherra m.a. veita Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar en í dag er afmælisdagur þessa þjóðskálds. Í tilefni dagsins opnum við ORÐAGALDUR á vef skólans þar sem fjallað er um skáldskap í skólanum. Þá verða ýmsar...
Meira >>>

Próftafla haustannar 2008 er komin á vefinn
13. nóvember 2008
Próftafla haustannar 2008 er komin á vefinn. Nemendur eru hvattir til þess að kynna sér vel hvenær próf verða. jafnframt eru nemendur hvattir til þess að lesa vel reglur um próf og reglur um námsmat hér á vefnum. [próftafla haustannar 2008]
Meira >>>

Heilsuefling í framhaldsskólum
12. nóvember 2008
Í dag, 12. nóvember munum við fara frá skólanum kl. 11:15 í 3 km göngu undir leiðsögn Guðmundar Ólafssonar og Stefán Halldórssonar. Allir starfsmenn og nemendur eru hvattir til að mæta fyrir 11:15 á planið framan við skólann.
Meira >>>

Stoðtímar í stærðfræði
24. október 2008
Stoðtímar í stærðfræði fyrir nemendur í 1. bekk. Skólinn býður upp á stoðtíma í stærðfræði fyrir  nemendur á 1. ári. Stoðtímarnir verða haldnir alla laugardaga í nóvember frá kl. 10:30 – 11:30 og hefjast  laugardaginn  1. nóvember. Nemendur skulu skrá sig í tímana á skrifstofu skólans og greiða um leið 4.000 krónur. Kennt verður í stofu...
Meira >>>

Nemandi í úrslitum í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna
23. október 2008
Jón Þór Árnason nemandi í  4.X er í hópi efstu manna í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna 2008. Jón komst í úrslit á efra stigi og mun taka þátt í úrslitakeppninni.  
Meira >>>

20 ár frá því að verkið Blómgun eftir Sigurjón Ólafsson var afhjúpað á lóð skólans
23. október 2008
Í dag, 4. nóvember 2008 eru nákvæmlega 20 ár liðin síðan verið Blómgun eftir Sigurjón Ólafsson var afhjúpað á lóð Menntaskólans við Sund. Sigurjón vann þetta verk árið 1978. Frummyndin er úr tré, 121x44,5x47 sm. Vorið 1987 sótti Menntaskólinn við Sund um framlag úr Listskreytingasjóði ríkisins til að láta stækka myndina, endurgera hana í varanlegt efni...
Meira >>>

Nemendur í Njáluferð
16. október 2008
Nemendur á þriðja námsári fara á Njáluslóðir í dag og er ferðin undir stjórn íslenskukennara eins og undanfarin ár. Í svona ferðum eru heimsóttir ýmsir merkisstaðir úr Njálu auk þess sem oft er brugðið á leik en stundum hafa verði settir upp leikþættir þar sem atriði úr Njálu eru myndgerð. Meira af ferðinni síðar.
Meira >>>

Tilkynning frá samtökunum Heimili og skóli
10. október 2008
Menntaskólinn við Sund hefur verið beðinn um að birta eftirfarandi tilkynningu frá samtökunum Heimili og skóli:  Til foreldra frá Heimili og skóla – landssamtökum foreldra 10. október 2008 Foreldrar eiga það sameiginlegt að vilja að börnum þeirra líði vel. Mikilvægt er fyrir okkur öll  að staldra við og huga að því sem eykur vellíðan...
Meira >>>

Skýrsla um starfendarannsóknir í MS
2. október 2008
Skýrsla skólans um starfendarannsóknir (starfsrýni) síðasta skólaár er komin á vef skólans [Skýrslan]
Meira >>>

MS styður grænan ferðamáta
19. september 2008
Í morgun tóku rekstrarstjóri húsnæðis MS og rektor skólans á móti nemendum og starfsfólki þegar mætt var til vinnu. Vel var tekið á móti þeim sem notuðu "grænan" ferðamáta til að koma í skólann. Þeir sem komu með strætó, voru gangandi eða hjólandi fengu orkustöng frá skólanum fyrir framtakið og hvatningu til þess að halda áfram á sömu braut.
Meira >>>

Umhverfisvikan - ráðherrar kynna sér verkefni í umhverfismálum
19. september 2008
Nú stendur endurvinnsluvika sem hæst en hún er haldin til að kynna mikilvægi endurvinnslu fyrir íslenskt samfélag. Sérstök áhersla hefur verið lögð á kynningu fyrir unglinga með útgáfu kennsluefnis, uppsetningu endurvinnslutunna í framhaldsskólum og ýmsum verkefnum innan skólanna.   Í tilefni endurvinnsluvikunnar heimsóttu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir...
Meira >>>

Ráðherrar í heimsókn
18. september 2008
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra munu heimsækja skólann í dag vegna endurvinnsluvikunnar sem nú stendur yfir. Þær munu kynna sér þau verkefni sem unnin eru í skólanum í tengslum við umhverfismál. Menntaskólinn við Sund býður þær hjartanlega velkomnar.
Meira >>>

Fundur um umhverfismál á sal skólans
17. september 2008
Rektor boðaði í dag alla nemendur skólans á sal til að ræða þátttöku skólans í Endurvinnsluvikunni og áherslur skólans í umhverfismálum. Menntaskólinn við Sund er virkur þátttakandi í Endurvinnsluvikunni Tunnur í skólanum til að vekja athygli á flokkun og endurnýtingu sorps. Við leggjum áherslu á fræðslu um umhverfismál og þessa vikuna er...
Meira >>>

Fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema
16. september 2008
Í kvöld, þriðjudaginn 16. september verður haldinn fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema í Menntaskólanum við Sund. Fundurinn hefst kl. 19:45 og er áætlað að hann standi í tvær klukkustundir. Tilgangur fundarins er að skapa góð tengsl við foreldra og forráðamenn nýnema, að kynna skólann og starfsemina í vetur og svara fyrirspurnum. Foreldrum...
Meira >>>

Stundatöflur haustannar 2008
16. september 2008
Stundatöflur bekkja á haustönn 2008 hafa nú verið settar inn á heimasíðu skólans undir Námið - Stundatöflur. Stundatöflur
Meira >>>

Umhverfisvikan - MS er virkur þátttakandi
11. september 2008
Menntaskólinn við Sund er virkur þátttakandi í umhverfisvikunni 15. til 19. september. Þessa viku verður fræðsla um umhverfismál fyrirferðarmikil í skólanum. Við flokkum sorp og stuðlum að aukinni og endurvinnslu úrgangs. Í umhverfisvikunni mun verða áhersla á "GRÆNAN FERÐAMÁTA" Við hvetjum alla sem hafa tök á því að skilja bílinn...
Meira >>>

Stærðfræði í 4. bekk á umhverfis- og líffræðikjörsviði
21. ágúst 2008
Nemendur í 4. bekk á líffræði- og umhverfiskjörsviði athugið. Breyting hefur orðið á bókalista í stærðfræði. Kennslubók í stærðfræði er Thomas, G.B.: Thomas’ Calculus, eleventh edition (ellefta útgáfa), Pearson-Addison Wesley, 2005.  Þetta er sama kennslubók og kennd var í þriðja bekk síðastliðinn vetur. Fæst í Bóksölu stúdenta.
Meira >>>

Skóladagatal næsta skólaárs
12. júní 2008
Dagatal fyrir skólaárið 2008-2009 hefur verið sett á vef skólans. Skólinn verður settur þriðjudaginn 26. ágúst og hefst kennsla sama dag. Nýnemar eru boðaðir á fund á sal skólans mánudaginn 25. ágúst  kl. 15:30 [sjá nánar]
Meira >>>

Myndir frá brautskráningu
6. júní 2008
Búið er að setja á vefinn myndir frá brautskráningu og skólaslitum sem fram fór í Háskólabíói laugardaginn 31. maí. Myndirnar eru flokkaðar eftir bekkjum og stafrófsröð nemenda innan bekkjar. Jafnframt er þar að finna tölulegar upplýsingar um útskriftarhópinn sem og ræðu rektors um menntun í umróti breytinga. [skoða]
Meira >>>

Skólaslit
4. júní 2008
Brautskráning stúdenta og skólaslit Menntaskólans við Sund fóru fram í Háskólabíói laugardaginn 31. maí. Brautskráðir voru 143 stúdentar, 75 piltar og 68 stúlkur. Nýstúdentar eru af þremur brautum, af náttúrufræðibraut 66, af félagsfræðabraut 63 og af málabraut 14 stúdentar. Dúx skólans með 9,2 í meðaleinkunn var Ingibjörg Ester Ármannsdóttir. Ingibjörg...
Meira >>>

Menntaskólinn við Sund í úrslit sem Fyrirmyndarstofnun 2008
15. maí 2008
Menntaskólinn við Sund var ásamt 15 öðrum ríkisstofnunum í forvali fyrir tilnefningu sem ríkisstofnun til fyrirmyndar árið 2008. Skólinn var síðan valinn í hóp fimm ríkisstofnana sem komust í úrslit. Fyrirkomulagið var þannig að fjármálaráðherra skipaði nefnd til þess að velja ríkisstofnun sem skarað hefur fram úr og verið til fyrirmyndar...
Meira >>>

Afhending námseinkunna í 4. bekk
28. apríl 2008
Námseinkunnir í 4. bekk verða afhentar þriðjudaginn 29. apríl 2008 kl. 11:30. Umsjónarkennarar afhenda einkunnir:
4. A stofa 21 
4. C stofa 22 
4. D stofa 23 
4. E stofa 24 
4. G stofa 25
4. S stofa 26
4. T stofa 27
4. X stofa 28
Meira >>>

Prófatíminn er að hefjast
28. apríl 2008
Fyrsti prófadagur er þriðjudagurinn 29. apríl. Vakin er athygli á því að öll skrifleg próf hefjast kl. 9:00. Mikilvægt er að nemendur mæti tímanlega fyrir próf (5 til 10 mínútum áður). Munið að borða léttan morgunmat áður en farið er í próf og nýtið allan prófatímann.
Meira >>>

Matseinkunnir
28. apríl 2008
Matseinkunnir vorannar 2008 verða afhentar mánudaginn 28. apríl kl. 14:30-15:30 í Miðholti fyrir framan skrifstofuna.
Meira >>>

Góður endasprettur skiptir máli
18. apríl 2008
Nú er að líða að lokum kennslutímans, aðeins um tvær vikur til prófa. Margir nemendur eru farnir á fullt að undirbúa sig fyrir prófin sem hefjast í lok mánaðarins. Mikilvægt er fyrir alla nemendur að mæta vel þessa síðustu kennsludaga og láta námið ganga fyrir annarri vinnu. Það er lykill að góðum námsárangri að skipuleggja sig vel og gera...
Meira >>>

Nýjar skýrslur um skólaþróun
18. apríl 2008
Nokkrar nýjar skýrslur eru komnar á vefinn. Um er að ræða skýrslur sem skólinn hefur látið vinna fyrir sig sem hluta af stefnumótun til framtíðar. [Sjá nánar]
Meira >>>

Valgreinaval í 2. og 3. bekk
15. apríl 2008
Valgreinaval verður framlengt á Námsnetinu til 18. apríl en þeir sem velja á tilsettum tíma þ.e. fyrir 16. apríl munu ganga fyrir í valgreinar.
Meira >>>

Valgreinaval í 2. og 3. bekk
2. apríl 2008
Búið er að opna fyrir valgreinaval nemenda í 2. og 3. bekk fyrir skólaárið 2008-2009 á Námsnetinu. Nemendur velja tvær valgreinar og tvær til vara. Til að velja smellið á 'Skráning í námskeið' undir 'Sérstakar aðgerðir' sem er efst í vinstra horni á fystu síðu þegar þið eruð komin inn á Námsnetið. Valgreinalýsingar er að finna á heimasíðu MS undir...
Meira >>>

Söngleikurinn Stjörnustríð í uppfærslu Thalíu
1. apríl 2008
Söngleikurinn Stjörnustríð í uppfærslu leikfélags Menntaskólans við Sund og leikstjórn Halldórs Gylfasonar og Orra Hugsins Ágústssonar er nú kominn á fjalirnar. Söngleikurinn er byggður á Star Wars myndum Georg Lucas. Sýningar eru  í Silfurtunglinu, Austurbæ. Nánar um Stjörnustríð á vefnum
Meira >>>

Velkomin til starfa á ný eftir páskafrí
26. mars 2008
Kennsla hófst aftur eftir páskafrí í dag 26. mars. Nú eru fimm vikur eftir af kennslutíma vorannar 2008 og eru nemendur hvattir til að nota þann tíma vel í náminu og að nýta sér Námsnetið við skipulag námsins.
Meira >>>

Lokun skrifstofu í páskafríi
14. mars 2008
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með mánudeginum 17.03.2008 til og með mánudeginum 24.03.2008. Skrifstofan opnar á ný að loknu páskaleyfi þriðjudaginn 25. 03.2008 kl. 8:00.
Meira >>>

Valgreinaval 2008
12. mars 2008
Nemendur í 2. og 3. bekk velja valgreinar fyrir næsta skólaár á Námsnetinu frá 1. til 15. apríl. Lýsingar á valgreinum sem standa nemendum til boða eru komnar á heimasíðuna og bæklingi með valgreinalýsingum verður dreift til allra nemenda í 2. og 3. bekk fimmtudaginn 13. mars 2008. Valgreinalýsingar 2008
Meira >>>

Prófkvíðanámskeið
11. mars 2008
Prófkvíðanámskeið hefst mánudaginn 31. mars 2008 og verður haldið fjóra mánudaga fram að prófum, tvær kennslustundir í senn. Síðasti tími verður mánudaginn 21. apríl. Skráning fer fram á skrifstofu skólans og kostar námskeiðið 3500kr. Nánari upplýsingar gefur Björk Erlendsdóttir félags- og námsráðgjafi MS
Meira >>>

Próftafla vors 2008
26. febrúar 2008
Skólaráð hefur afgreitt frá sér endanlega próftöflu vorannar 2008. Kynnið ykkur próftöfluna hér.
Meira >>>

Kjörsviðsval
22. febrúar 2008
Kjörsviðsval nemenda í 1. og 2. bekk fer fram vikuna 25. til 29. febrúar. Kynningar á kjörsviðum er að finna hægra megin hér á forsíðu heimasíðu MS. Mikilvægt er að vanda valið.
Meira >>>

Dagskrá þemadaga
11. febrúar 2008
Dagskrá þemadaga (þriðjudagsins 12. febrúar og miðvikudagsins 13. febrúar) er komin upp á tilkynningatöflur í skólanum. Þessa daga er farið í námstengdar fræðslu- og skoðunarferðir. Nemendur eru beðnir um að kynna sér vel dagskrá síns bekkjar. Mikilvægtr er að fylgja vel leiðbeiningum og mæta tímalega í allar ferðir.[þemadagar...
Meira >>>

Stuðningstímar í stærðfræði
5. febrúar 2008
Stuðningstímar í stærðfræði á vorönn eru sem hér segir:  
Meira >>>

Foreldrafundir bekkja á fyrsta námsári
4. febrúar 2008
Vikuna 4. - 8. febrúar heldur forvarnarfulltrúi MS, Björk Erlendsdóttir, fundi með foreldrum/forráðamönnum nemenda í einstökum bekkjum á fyrsta námsári. Tilgangurinn er að efla samskipti foreldra/forráðamanna og kalla eftir hugmyndum um hvernig við getum eflt forvarnir og samstarfið enn frekar. Fundirnir verða haldnir í stofu 1 í Langholti...
Meira >>>

Örnámskeið um skráningu heimilda fyrir nemendur í 4. bekk
1. febrúar 2008
Örnámskeið verður haldið um skráningu heimilda fyrir nemendur í 4. bekk fimmtudaginn 7. febrúar kl. 11:15 - 12:10 í Bjarmalandi. Kennarar verða Halla Kjartansdóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir. Efni:
*Skráning heimilda, tilvitnana og tilvísana.
*Skráning heimilda af Netinu.
*Fyrirspurnir frá nemendum.

Meira >>>

Kjörsviðsverkefni í 4. bekk
29. janúar 2008
Nemendur í 4. bekk. Athugið að skiladagur lokauppkasts kjörsviðsverkefnis er 11. febrúar 2008.
Meira >>>

Foreldrafundur 22. janúar 2008 kl. 19:45
16. janúar 2008
Haldinn verður fundur með foreldrum og forráðamönnum nemenda á fyrsta námsári þriðjudaginn 22. janúar 2008 kl. 19:45. Tilgangur fundarins er að efla samstarf forráðamanna og skólans, skýra námsframboð í skólanum og fara yfir stöðu nemenda í hverjum bekk.
Dagskrá:
1. Ávarp rektors
2. Kynning sviðstjóra á kjörsviðum innan námsbrauta
3. Umsjónarkennarar...
Meira >>>

Gettu betur 15. janúar
14. janúar 2008
MS keppir við Verslunarskólann í 2. umferð spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur þriðjudaginn 15. janúar kl. 19:30 í Útvarpshúsinu við Efstaleiti. Lið MS skipa þeir Ari Gunnar Þorsteinsson, Bjarki Þór Steinarsson og Þórhallur Ragnarsson.
Meira >>>

Stundatöflur vorannar 2008
3. janúar 2008
Stundatöflur bekkja á vorönn 2008 eru nú komnar í Innu og hér á heimasíðuna. Stundatöflur vorönn 2008
Meira >>>

Námsnetið
12. desember 2007
Flýtileiðin inn á Námsnetið á heimasíðu MS hefur verið lagfærð. Námsnetið opnast nú þegar smellt er á táknmyndina. Ef kosið er að slá slóðina fyrir Námsnetið beint inn þá er hún: https://www.namsnet.is/ms
Meira >>>

Haustannarpróf 2007
27. nóvember 2007
Haustannarpróf 2007 verða haldin frá 3. - 18. desember. Öll próf hefjast kl. 9:00. Einkunnaafhending og prófsýning verður 20. desember kl. 12:30 - 15:00. Próftafla, reglur um lágmarkskröfur, prófreglur og leiðbeiningar til nemenda um prófaundirbúning og próftöku eru á heimasíðunni. Próftafla
Meira >>>

Vel heppnuð afmælishátíð til heiðurs Jónasi Hallgrímssyni
16. nóvember 2007
Nemendur á fjórða námsári stóðu fyrir vel heppnaðri afmælishátíð í skólanum til heiðurs Jónasi Hallgrímssyni, en 200 ár eru nú liðin frá fæðingu hans. Í boði voru glæsilegar veitingar, glæsilegar hnallþórur sem nemendur höfðu sjálfir bakað og svo mjólk sem var í boði Mjólkursamsölunnar. Nemendur sungu ljóð Jónasar undir stjórn formanns nemendafélagsins...
Meira >>>

Skáldskapur Jónasar Hallgrímssonar
14. nóvember 2007
Hér er eitt dæmi um snilli Jónasar: Háa skilur hnetti
himingeimur,
blað skilur bakka og egg.
En anda, sem unnast,
fær aldregi
eilífð að skilið.
Áhugasömum er bent á eftirfarandi vefsíður: http://www.jonas.ms.is/ http://www.jonashallgrimsson.is/
Meira >>>

Dagur íslenskrar tungu - afmælishátíð Jónasar Hallgrímssonar
13. nóvember 2007
Dagur íslenskrar tungu er 16. nóvember næstkomandi. Að þessu sinni er jafnframt verið að fagna því að 200 ár eru liðin frá fæðingu þessa merka manns. Deginum verður fagnað með ýmsu móti í Menntaskólanum við Sund. Meðal annars munu nemendur á fjórða ári bjóða til afmælisveislu Jónasi til heiðurs í Þrísteini á föstudaginn og verður veislan frá...
Meira >>>

Fræðslufundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema í MS
9. nóvember 2007
Fræðslufundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema verður haldinn í Menntaskólanum við Sund fimmtudaginn 15. nóvember næstkomandi kl. 18:00 – 19:30 í Bjarmalandi (fyrirlestrarsalur á 1. hæð).  Tilgangurinn er að fræða foreldra og forráðamenn nemenda í 1. bekk almennt um námsaðferðir nemenda og kennsluaðferðir í stærðfræði. Áhersla verður lögð...
Meira >>>

Nemendakönnun haustönn 2007
30. október 2007
Nemendakönnun haustönn 2007 verður á Námsnetinu 29. október til 9. nóvember. Hér gefst öllum nemendur kostur á að meta nám og kennslu í MS og leggja þar með sitt af mörkum til að bæta skólastarfið. 
Meira >>>

Próftafla haustannarprófa 2007
22. október 2007
Skólaráð MS samþykkti endanlega próftöflu haustannar 2007 á fundi sínum þann 18. október. Hún hefur verið hengd upp á auglýsingatöflur skólans og sett á heimasíðu skólans undir Námið.  
Meira >>>

Aðstoð við heimanám
19. október 2007
Aðstoð við heimanám verður veitt nemendum í 1. og 2. bekk á laugardögum kl. 11:00-12:00 og á þriðjudögum kl. 15:00-16:00 í stofu 3. Gengið inn í Langholt. Nemendur eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu og bæta námsárangur sinn.
Meira >>>

Félagsfundur FÍF í Menntaskólanum við Sund
15. október 2007
Félagsfundur FÍF verður í Menntaskólanum við sund mánudaginn 15. október kl. 13:30

Dagskrá:
Frumvarp til fjárlaga.
Fulltrúar menntamálaráðuneytisins fara yfir fjárlagafrumvarpið og svara spurningum.

Önnur mál
Meira >>>

Stöðumat í 1. og 2. bekk
10. október 2007
Niðurstöður úr stöðumati í 1. og 2. bekk liggja nú fyrir. Foreldrar/forráðamenn fá sent bréf með ítarlegum upplýsingum um stöðumatið en sambærilegt bréf er sent beint til þeirra nemenda sem eru orðnir 18 ára.
Meira >>>

Kórinn er tekinn til starfa á ný
5. október 2007
Kór Menntaskólans við Sund hefur hafið æfingar á ný. Æfingar eru í Þrísteini á miðvikudögum og hefjast kl. 16:00. Nýr kórstjóri, nýjar áherslur.
Meira >>>

Stöðumat í 1. og 2. bekk - Sjálfsmat nemenda í 2. bekk
28. september 2007
Stöðumat í 1. og 2. bekk verður 1. - 5. október. Nú er stöðumat í fyrsta skipti í 2. bekk og þar verða nemendur einnig beðnir um að meta frammistöðu sína í hverri námsgrein.
Meira >>>

Fundur með foreldrum/forráðamönnum nýnema 18. september 2007
11. september 2007
Fundur verður haldinn með foreldrum og forráðamönnum nýnema  í Menntaskólanum við Sund þriðjudaginn 18. september nk. kl. 19:45. Áætlaður fundartími eru tvær klukkustundir. Tilgangur fundarins er að skapa góð tengsl við foreldra og forráðamenn nýnema, að kynna skólann og starfsemina í vetur og svara fyrirspurnum. Foreldrum/forráðamönnum gefst kostur...
Meira >>>

Skil á vottorðum
29. ágúst 2007
Þegar upp koma veikindi þurfa nemendur að skila á skristofu skólans vottorði strax að loknum veikindum. Nemendur eru hvattir til þess að nota Námsnet MS á meðan á veikindum stendur eigi þeir nokkurn kost á því.
Meira >>>

Valgreinar í 3. og 4. bekk
29. ágúst 2007
Óskir um breytingar á valgreinum skólaárið 2007 – 2008
verða að berast til konrektors í síðasta lagi föstudaginn 31. ágúst 2007.
Meira >>>

Skólasetning
23. ágúst 2007
Skólasetning verður kl. 9:00 föstudaginn 24. ágúst 2007 á sal skólans (Hálogaland). Kl. 9:25 afhenda umsjónarkennarar nemendum í 2. - 4. bekk stundatöflur. Sjá staðsetningu hér að neðan. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá kl. 9:45. 2. A stofa 21 2. C stofa 22 2. D stofa 23 2. G stofa 24 2. R stofa 25 2....
Meira >>>

Stundatöflur haustannar 2007
14. ágúst 2007
Stundatöflur bekkja fyrir haustönn 2007 eru komnar á heimasíðu MS. Sjá undir Námið -> Stundatöflur.
Meira >>>

Skólasetning haustönn 2007
6. júlí 2007
Menntaskólinn við Sund verður settur föstudaginn 24. ágúst kl. 9:00. Kennsla hefst strax að lokinni skólasetningu samkvæmt stundaskrá. Kynningarfundur fyrir nýnema verður  haldinn fimmtudaginn 23. ágúst kl. 15:00.
Meira >>>

Skrifstofan er lokuð vegna sumarleyfa
2. júlí 2007
Skrifstofa skólans verður lokuð vegna sumarleyfa til 8. ágúst en þá opnar hún á ný og verður opin frá 8. ágúst til 21. ágúst frá kl. 8:30 til 15:30 alla virka daga. Frá og með 22. ágúst verður skrifstofan opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00.
Meira >>>

Bókalisti 2007 - 2008
21. júní 2007
Bókalisti fyrir skólaárið 2007 - 2008 er kominn á heimasíðuna. Listinn liggur einnig frammi á skrifstofu skólans. Bókalisti.
Meira >>>

Innritun nýnema í MS fyrir skólaárið 2007 – 2008 er lokið
20. júní 2007
Innritun nýnema í Menntaskólann við Sund skólaárið 2007-2008 er lokið. Greiðsluseðlar skólagjalda hafa verið sendur út og nýnemar staðfesta og tryggja skólavist sína með því að greiða skólagjöldin fyrir eindaga. Rektor.  
Meira >>>

Brautskráning og útskrift fór fram í Háskólabíói
12. júní 2007
Brautskráning og útskrift fór fram við hátíðlega athöfn í Háskólabíói 26. maí síðastliðinn. Hægt er að skoða myndir frá athöfninni og lesa ræðu rektors með því að smella hér [lesa meira]
Meira >>>

Einkunnir úr endurtektarprófum
4. júní 2007
Afhending einkunna úr endurtektarprófum fer fram miðvikudaginn 6.júní kl. 13:00 – 16:00 á skrifstofu skólans. Nemendur geta einnig fylgst með einkunnaskráningu í INNU.  
Meira >>>

Styrkur frá Nordplus Junior
31. maí 2007
Menntaskólinn við Sund hefur fengið þróunarstyrk að upphæð 79.100 SEK. Upphæðinni verður varið til dönskunáms og nemendaskipta í samvinnu við Frederiksborg Gymnasium. Verkefnisstjóri þessa starfs í MS er Pétur Rasmussen.
Meira >>>

Brautskráning og skólaslit
25. maí 2007
Brautskráning og skólaslit Menntaskólans við Sund verður í Háskólabíói laugardaginn 26. maí og hefst athöfnin kl. 10:45.
Meira >>>

Skólagjöld næsta skólaárs
23. maí 2007
Greiðsluseðill vegna skólagjalda fyrir næsta skólaár hefur verið sendur út til nemenda í  1. - 3. bekk. Eindagi er 6. júní 2007. Greiðsla fyrir eindaga tryggir skólapáss næsta vetur.
Meira >>>

MS fær styrk frá Menntamálaráðuneytinu
16. maí 2007
Menntaskólinn við Sund fékk úthlutað 500 þúsund króna styrk frá Menntamálaráðuneytinu til verkefnisins: Sjálfsmat skóla, rannsókn á eigin starfi sem er í umsjá konrektors, Hjördísar Þorgeirsdóttur. Um er að ræða áframhald á verkefni sem hófst haustið 2005 þá undir leiðsögn Hafþórs Guðjónssonar frá Kennaraháskóla Íslands. Tilgangur verkefnisins er...
Meira >>>

Umsóknir um skólavist fyrir haustið 2007
14. maí 2007
Innritun nýnema fyrir næsta skólaár er hafin. Sótt er um námið rafrænt á vef Menntagáttar Inntökureglur á námsbrautir og viðmiðunarreglur skólans má finna með því að smella á tengilinn hér að neðan sem merktur er skólavist. Upplýsingar um námsbrautir sem í boði eru má finna með því að smella á Námið á stikunni hér fyrir...
Meira >>>

Styrkur úr Forvarnasjóði
2. maí 2007
Menntaskólinn við Sund fékk úthlutað af Lýðheilsustofnun nú í annað sinn styrk úr Forvarnasjóði til þess að efla Foreldranet MS. Skólinn þakkar fyrir veittan stuðning við eflingu samstarfs skólans og foreldra á sviði forvarna.
Meira >>>

Afhending námseinkunna í 4. bekk
1. maí 2007
Afhending námseinkunna í 4.bekk fer fram miðvikudaginn 2. maí kl. 11:45. 4. A stofa 21, 4. C stofa 22, 4. D stofa 23, 4. E stofa 24, 4. G stofa 25, 4. S stofa 26, 4. T stofa 27, 4. X stofa 28.
Meira >>>

Nemendur í 3. G vinna til verðlauna í fyrirtækjasmiðju
30. apríl 2007
Fyrirtækið Scond Look sem nemendur í 3. G stofnuðu í fyrirtækjasmiðjunni í hagfræði á þessu skólaári fengu verðlaun frá Junior Achievement fyrir besta firmamerkið og/eða nafn. Second Look seldi notuð föt á netinu. Kennari þeirra er Ingibjörg Atladóttir Þormar og ráðgjafi þeirra í fyrirtækjasmiðjunni var Camilla Ósk Hákonardóttir frá Glitni. Fyrirtækjasmiðjan...
Meira >>>

Síðustu kennsludagar og undirbúningur prófa
24. apríl 2007
Nú eru lok kennslutímans og nemendur eru farnir á fullt að undirbúa sig fyrir prófin sem hefjast í lok mánaðarins. Mikilvægt er fyrir nemendur að mæta vel og að nýta vel þessa síðustu kennsludaga til náms. Þá þurfa þeir að skipuleggja vel vinnuna á prófatímanum þannig að árangur verði sem bestur.
Meira >>>

Skólakynning fyrir nemendur grunnskólanna
23. mars 2007
Kynningar á Menntaskólanum við Sund hefjast í dag, föstudaginn 23. mars kl. 13:15 þegar skólinn tekur á móti 85 grunnskólanemendum frá þremur grunnskólum. Kynningin fer fram í nýjum sal skólans á fyrstu hæð. Næstu daga munu koma um 700 grunnskólanemendur í kynningu en síðustu kynningar fyrir nemendur 10. bekkjar fara fram eftir páska.
Meira >>>

Valgreinakynning
14. mars 2007
Valgreinakynning fyrir skólaárið 2007 - 2008 verður fimmtudaginn 15. mars kl. 11:15 - 11:55 í Þrísteini. Nemendur í 2. og 3. bekk eru eindregið hvattir til að mæta og kynna sér framboð valgreina og ræða við kennarana um námið. Búið er að dreifa kynningarbæklingum til nemenda í 2. og 3. bekk. Námslýsingarnar er einnig að finna á heimasíðu skólans og...
Meira >>>

Vettvangsferð í Hvalfjörð
12. mars 2007
Kennarar í íslensku, jarðfræði og landafræði og nemendur í 1. bekk fóru í þverfaglega vettvangsferð í Hvalfjörð mánudaginn 12. mars. Farið var á söguslóðir Harðarsögu og jarðfræði og landafræði höfuðborgarsvæðisins og Hvalfjarðar skoðuð.
Meira >>>

MS-ingar tóku þátt í forritunarkeppni framhaldsskólanna
12. mars 2007
Baldvin Þorsteinsson 3. A og Flóki Snorrason 3. X urðu í 4. sæti í delta flokki í forritunarkeppni framhaldsskólanna sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík þann 10. mars.
Meira >>>

Lið MR sigraði lið MS í Gettu betur
9. mars 2007
Lið Menntaskólans í Reykjavík sigraði í kvöld lið Menntaskólans við Sund með 38 stigum gegn 17 í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Menntaskólinn við Sund óskar liði MR til hamingju með glæstan sigur.
Meira >>>

Agaátak vikuna 12. - 16. mars
9. mars 2007
Efnt verður til agaátaks vikuna 12. – 16. mars til að skerpa á eftirfarandi reglu um vinnufrið í kennslustundum: Nemendur taki virkan þátt í náminu. Vikuna 12. – 16. mars munu kennarar leggja áherslu á að hrósa þeim nemendum sem eiga það sérstaklega skilið. Nöfn viðkomandi nemenda verða skráð á þar til gerð eyðublöð. Í vetur hefur reglulega verið...
Meira >>>

Valgreinaval 2007
8. mars 2007
Nú hafa lýsingar á valgreinum sem í boði verða skólaárið 2007-2008 verið settar á heimasíðu MS undir Námið - Námsgeinar. Kynningarbæklingi verður einnig dreift til allra nemenda í 2. og 3. bekk. Valgreinakynning fer fram fimmtudaginn 15. mars kl. 11:15 - 11:55 í Þrísteini og eru nemendur eindregið hvattir til að mæta á hana. Valgreinaval fer fram...
Meira >>>

Drög að próftöflu
3. mars 2007
Drög að próftöflu vorannar 2007 hafa verið lögð fram til kynningar og umsagnar. Drögin hafa verið hengd upp á nokkrum stöðum í skólanum. Athugasemdir við próftöfluna skulu berast til kennslustjóra fyrir 16. mars.
Meira >>>

Sjálfsmat nemenda
27. febrúar 2007
Nú stendur yfir átaksverkefni í MS um sjálfsmat nemenda. Könnun er lögð fyrir alla nemendur skólans í MySchool og síðan verða niðurstöður hennar þ.e. hvers bekkjar og skólans í heild ræddar í hverjum bekk með umsjónarkennara bekkjarins. Nemendum gefst hér tækifæri til að íhuga eigin námsvenjur og viðhorf til námsins og skoða hvar þeir geta bætt...
Meira >>>

Kjörsviðsval nemenda
19. febrúar 2007

Kjörsviðsval nemenda í 1. og 2. bekk fer fram vikuna 19. - 23. febrúar. Einnig þurfa nemendur í 1. bekk að staðfesta val sitt á þriðja tungumáli. Kynningu á kjörsviðum er að finna á heimasíðu MS. Glærusýning með kynningu brauta er hægra megin á forsíðu heimasíðunnar og nánari kynning er undir Námið - Námsbrautir.


Meira >>>

Þemavika 2007
8. febrúar 2007
Mánudagur 12. febrúar Kennsla samkvæmt stundaskrá   Þriðjudagur 13. febrúar 8:10  - 11:55   ...
Meira >>>

Agaátak vikuna 29. janúar til 2. febrúar
27. janúar 2007
Efnt verður til agaátaks vikuna 29. janúar – 2. febrúar til að skerpa á hugtakinu ,,virðing” og sem er lykilhugtak í skólareglum MS. Þá viku munu kennarar vera sérstaklega vakandi fyrir því að nemendur sýni skólastarfinu virðingu og virði þær leikreglur sem skólinn starfar eftir.
Meira >>>

Foreldrafundur í 1. bekk
22. janúar 2007
Fundur verður haldinn með foreldrum og forráðamönnum nemenda á 1. námsári þriðjudaginn 23. janúar 2007 k. 20:00. Þar fjallar rektor um skólasamfélagið í MS, sviðstjórar kynna kjörsvið innan námsbrauta og umsjónarkennarar funda með foreldrum hvers bekkjar.
Meira >>>

Foreldrafundir í 1. bekk
15. janúar 2007
Forvarnarfulltrúi MS, Valgerður Halldórsdóttir námsráðgjafi og sviðstjóri fundar dagana 15. til 18. janúar með foreldrum einstakra bekkja á fyrsta námsári. Þetta er liður í viðleitni skólans til að efla samstarf skólans við foreldra og forráðamenn nemenda og stuðla að auknu samstarfi og samráði foreldranna innbyrðis í forvarnarskyni.  Þann...
Meira >>>

Breytingar á stundatöflum
12. janúar 2007
Nokkrar breytingar hefur þurft að gera á stundatöflum nemenda nú í fyrstu viku vorannar. Þessar breytingar varða eftirfarandi bekki: 1. E, 1. L, 2. R, 2. X, 3. G, 3. T og 4. C. Nýjar stundatöflur hafa verið settar á heimasíðuna.
Meira >>>

Samkeppni um nafn á fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund
12. janúar 2007
Ákveðið hefur verið að efna til opinnar samkeppni meðal nemenda og starfsmanna Menntaskólans við Sund um nafn á fyrirlestrasal skólans sem verið er að byggja. Valin hefur verið dómnefnd skipuð fulltrúum starfsmanna og nemenda sem velja skal vinningstillöguna og verða vegleg verðlaun í boði fyrir besta nafnið. Komi fram fleiri en ein tillaga um vinningsnafnið...
Meira >>>

Skólasókn á vorönn
11. janúar 2007
Nemendur eru minntir á þá grundvallarreglu að mæta stundvíslega í allar kennslustundir og skila vottorðum á skrifstofu skólans  innan tveggja vikna frá því að veikindum lýkur. Að öðrum kosti verða veikindi ekki skráð í INNU. Uppgjörsdagur vegna úrskurðar í skólasóknarbann á vorönn er 16. febrúar. Nemendur fá reglulega viðvaranir í tölvupósti vegna...
Meira >>>

Sigur í fyrstu umferð Gettu betur!
10. janúar 2007
Lið Menntaskólans við Sund sigraði Fjölbrautaskóla Snæfellinga með 21 stigi gegn 11 í fyrstu umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur.
Meira >>>

Stundatöflur vorannar 2007
3. janúar 2007
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 4. janúar. Stundatöflur vorannar eru komnar í Innu og á heimasíðu MS.
Meira >>>

Afhending einkunna og prófsýning
18. desember 2006
Afhending einkunna og prófsýning verður miðvikudaginn 20. desember kl. 12:00. Nemendur eru hvattir til að mæta og nýta þetta tækifæri til að skoða mat á prófúrlausnum sínum.
Meira >>>

Sjúkrapróf mánudaginn 18. desember
17. desember 2006
Sjúkrapróf verða haldin mánudaginn 18. desember kl. 8:15 og 10:45. Öll próf fara fram í Skálholti og í stofu 29 sem er sér-sérstofa. Flest próf hefjast klukkan 8: 15, en nokkur próf hefjast kl 10:45. Þær greinar sem prófað er úr klukkan 10:45 eru: Stærðfræði(allir árgangar), líffræði (allir árgangar), saga (allir árgangar), eðlisfræði  (2. M...
Meira >>>

Banni á notkun íþróttahúss Menntaskólans við Sund hefur verið aflétt
15. desember 2006
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hefur aflétt banni á notkun íþróttaaðstöðu Menntaskólans við Sund. Úttekt fór fram í dag og engar athugasemdir komu fram frá skoðunaraðilum við aðbúnað. Í bréfi frá þeim segir m.a. "Allar nauðsynlegar úrbætur hafa verið gerðar og er hér með aflétt banni á notkun íþróttasalarins".    
Meira >>>

Vegna frétta um lokun íþróttaaðstöðu skólans
13. desember 2006
Menntaskólinn við Sund hefur sent Umhverfissviði Reykjavíkurborgar bréf þar sem brugðist er við ákvörðun um tafarlausa lokun íþróttaaðstöðu skólans. Þar er ákvörðuninni harðlega mótmælt, enda er sú ákvörðun í engu samræmi við tilefnið. Jafnframt hefur vinnubrögðum skoðunaraðila verið mótmælt sem voru afar óvenjuleg svo ekki sé meira sagt. Þá var...
Meira >>>

Íþróttaaðstöðu Menntaskólans við Sund lokað að kröfu Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar
12. desember 2006
Íþróttaaðstöðu Menntaskólans við Sund var lokað að kröfu Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar með bréfi dagsettu 11. desember. Krafa um lokun var sett fram í bréfi til skólans án þess að áður hafi verið gerðar athugasemdir við aðbúnað í íþróttasal. Yfirvöld skólans höfðu ekki hugmynd um að úttekt hafi farið fram þar sem engin tilkynning...
Meira >>>

Bilun í tölvuþjóni
10. desember 2006
Vefur Menntaskólans við Sund lá niðri í um 18 klst vegna bilunar í tölvuþjóni sem sér um vefsamskipti. Notendur vefsins eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þeir hafa orðið fyrir vegna þessa. Vefurinn komst aftur í gagnið rétt fyrir kl. 17.
Meira >>>

Veikindi á prófatíma
6. desember 2006
Nemendur eru hvattir til þess að tilkynna til skrifstofu veikindi á prófatíma og skila inn vottorði strax að veikindum loknum.
Meira >>>

Agaátak vikuna 20. nóv. – 24. nóv.
17. nóvember 2006
 Efnt verður til átaks vikuna 20. nóv. – 24. nóv. til að skerpa á eftirfarandi reglu um vinnufrið í kennslustundum: Nemendur taki virkan þátt í náminu.
Meira >>>

Dagur íslenskrar tungu
15. nóvember 2006
Dagur íslenskrar tungu er fimmtudaginn 16. nóvember. Í tilefni dagsins verður hátíðardagskrá á sal skólans þar sem nemendur munu lesa upp frumsamin ljóð og sögur. Auk þessa mun kór skólans undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur flytja íslensk sönglög. Nemendur á fyrsta ári í MS lesa Mýrina, bók Arnalds Indriðasonar. Í tilefni dagsins ákvað skólinn...
Meira >>>

Próftafla haustannar 2006
15. nóvember 2006
Próftafla haustannar 2006 er komin á vefinn. Nemendur eru hvattir til þess að kynna sér hana vel. Mikilvægt er að mæta tímalega í öll próf og nýta tímann vel. [sjá próftöfluna]
Meira >>>

Nemendakönnun - Leggið lóð ykkar á vogarskálina!
15. nóvember 2006
Viðhorf nemenda til kennslu er einn mælikvarði af mörgum sem skólinn notar til að meta gæði þess starfs sem hér er unnið. Góð þátttaka í nemendakönnun er ykkur í hag  -  Nýtið þetta tækifæri til að hafa áhrif á gæði skólastarfsins.      
Meira >>>

Könnun á gæðum náms og kennslu
2. nóvember 2006
Nemendakönnun verður lögð fyrir í MySchool frá 3. - 14. nóvember 2006. Hér gefst öllum nemendum Menntaskólans við Sund kostur á að meta nám og kennslu í skólanum og legga þar með sitt af mörkum til að bæta skólastarfið. Spurningalistinn tekur til haustannar 2006. Nemendakönnun MS er nú í fyrsta skipti lögð fyrir í MySchool og er þessi hluti kerfisins...
Meira >>>

Tveir nemendur MS komust áfram í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna
1. nóvember 2006
Helga Kristjana Bjarnadóttir 4. X og Kristleifur Guðjónsson 3. X komust áfram í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna sem haldin var þann 17. október sl. Alls tóku 170 nemendur þátt í keppninni og af þeim komust 20 nemendur áfram í eldri aldurshópnum. Skólinn óskar þeim innilega til hamingju með góðan árangur og óskar þeim alls hins...
Meira >>>

Agaátak vikuna 16. – 20. október
16. október 2006
Efnt verður til átaks í skólanum vikuna 16. - 20. október til að skerpa á eftirfarandi reglu um vinnufrið í kennslustundum:

-Nemendur stilli margmiðlunartæki sín á þögn eða hafi slökkt á þeim.  Þess viku munu kennarar fylgjast sérstaklega vel með því hvort nemendur virði þessa reglu...

Meira >>>

Haustfrí
13. október 2006
Haustfrí verður í MS föstudaginn 13. október og mánudaginn 16. október og skólinn því lokaður þá daga. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 17. október kl. 8:10 og skrifstofan opnar kl. 8:00 þann dag.
Meira >>>

Stjórnendur sitja fyrir svörum
11. október 2006
Fimmtudaginn 12. október kl. 11:15-11:55 sitja stjórnendur og sviðstjórar fyrir svörum hjá nemendum í 3. og 4. bekk. Fundurinn verður haldinn í Skálholti. Nemendur eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að segja álit sitt á skólastarfinu og spyrja stjórnendur t.d. um námsframboðið, stúdentsprófin, skólareglur, aðstöðuna, ballmálin,...
Meira >>>

Stöðumat í 1. bekk
11. október 2006
Vikuna 9.-12. október afhenda umsjónarkennarar í 1. bekk nemendum miðannarmat í öllum námsgreinum. Nemendur eru hvattir til að fara vandlega yfir matið og breyta vinnubrögðum sínum í þeim námsgreinum þar sem þörf er á því. Nemendur með matið Ó (ófullnægjandi) í fjórum námsgreinum eða fleiri eru sérstaklega hvattir til að leita til námsráðgjafa...
Meira >>>

Nemendaferð til Danmerkur
9. október 2006
Hópur nemenda í MS sem eru á náttúrufræðibraut og lokið hafa lífrænni efnafræði hafa undanfarið verið að undirbúa sig undir námsferð til Danmerkur. Þeir verða í Danmörku með kennurum sínum í efnafræði dagana 8. til 13. október. Munu þeir sækja tíma í Frederiksborg Gymnasium auk þess sem þeir fá tækifæri á því að framkvæma tilraunir í...
Meira >>>

Frumvarp til fjárlaga 2007 lagt fram
3. október 2006
Frumvarp til fjárlaga var lagt fram á fyrsta degi haustþings, mánudaginn 2. október, eins og venja er. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að fjárframlög til framhaldsskóla greidd úr ríkissjóði verði árið 2007 15.570 milljónir króna. Framlög til Menntaskólann við Sund hækka um 6,9% frá fjárlögum síðasta árs sem svarar um það bil til...
Meira >>>

Átak til að efla vinnuanda og aga í kennslustundum
25. september 2006
...
Meira >>>

Fundur með forráðamönnum
15. september 2006
Fundur verður haldinn með foreldrum og forráðamönnum nemenda á 1. ári þriðjudaginn 19. september. Fundurinn verður haldinn í skólanum og hefst kl. 20:00. Áætlað er að fundi ljúki ekki síðar en kl. 22:00. Bréf með dagskrá fundarins hefur verið sent út.
Meira >>>

Breytingar meðal stjórnenda skólans
25. ágúst 2006
Umtalsverðar  breytingar hafa orðið á skipan í stjórnunarstöður við skólann frá því í fyrra. Sigurrós Erlingsdóttir kennslustjóri er í leyfi þetta skólaár og á meðan gegnir Halla Kjartansdóttir stöðu kennslustjóra. Allar stöður faglegra stjórnenda voru auglýstar lausar til umsóknar síðastliðið vor. Sviðstjórum var fækkað úr fimm í þrjá og hafa...
Meira >>>

Stundatöflur haustannar 2006
18. ágúst 2006
Stundatöflur haustannar 2006 eru komnar í Innu og á heimasíðu MS.
Meira >>>

Skólasetning
9. ágúst 2006
Menntaskólinn við Sund verður settur miðvikudaginn 23. ágúst 2006 kl. 9:00. Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu strax að lokinni skólasetningu. Fundur með nýnemum verður haldinn þriðjudaginn 22. ágúst kl. 15:00.

Meira >>>

Skrifstofa skólans er lokuð til 9. ágúst
4. júlí 2006
Skrifstofa skólans er lokuð vegna sumarleyfa. Hún opnar á ný 9. ágúst næstkomandi.
Meira >>>

Innritun nýnema er lokið
20. júní 2006
Innritun nýnema fyrir skólaárið 2006-2007 er lokið. Aðsókn að skólanum var mjög mikil og sóttu um mun fleiri en unnt var að taka inn. Alls hefja 224 nemendur nám á fyrsta ári. 214 koma beint upp úr 10. bekk og 10 nemendur setjast á ný á fyrsta námsár. Á fyrsta ári á málabraut hefja nám 28 nemendur, 84 á félagsfræðabraut og 112 á náttúrufræðibraut. Að...
Meira >>>

Bókalistar 2006-2007
20. júní 2006
Bókalistar næsta skólaár (2006-2006) fyrir 1. til 4. bekk hafa verið settir á netið og einnig í Innu [meira...]
Meira >>>

Brautskráning í Háskólabíói laugardaginn 27. maí
30. maí 2006
Brautskráning og skólaslit voru í Háskólabíói laugardaginn 27. maí . Að þessu sinni voru brautskráðir 112 nemendur og skiptust þeir þannig: Málabraut, hugvísindakjörsvið (M)                18 nemendur           &nb...
Meira >>>

Brautskráning stúdenta og skólaslit
24. maí 2006
Brautskráning stúdenta og skólaslit verða í Háskólabíói laugardaginn 27. maí kl. 16:00. Að lokinni athöfn verður myndataka fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands. rektor
Meira >>>

Prófsýning í 4. bekk
22. maí 2006
Prófsýning fyrir nemendur á 4. ári verður í skólanum þriðjudaginn 23. maí kl. 12:00-13:00. Nemendur 4. bekkjar eru hvattir til þess að mæta og skoða vel prófúrlausnir sínar. rektor
Meira >>>

Einkunnaafhending í 1. - 3. bekk
19. maí 2006
Einkunnaafhending og prófsýning í 1. - 3. bekk verður mánudaginn 22. maí kl. 12:00 - 14:00
Dagskrá:
Kl. 12:00 Athöfn í Hálogalandi
Kl. 12:30 Einkunnaafhending
Kl. 12:45 Prófsýning
Meira >>>

Innritun í MS 2006
8. maí 2006
Rafræn innritun 2006 Umsóknarfrestur um nám á haustönn 2006 er til mánudagsins 12. júní. Innritunin fer fram á netinu og hefst 15. maí. Rafrænt umsóknareyðublað og nauðsynlegar upplýsingar um innritunina er að finna á menntagatt.is. Þar eru einnig upplýsingar um nám í framhaldsskólum og námsframboð. Menntaskólinn...
Meira >>>

Vorprófin eru hafin
26. apríl 2006
Vorprófin eru að hefjast. Nemendur nú skiptir máli hvernig þið vinnið. Til þess að geta gert sitt besta er hægt að styðjast við nokkrar einfaldar reglur: Kynnið ykkur vel prófareglurnar. Mætið tímanlega í öll próf (5-10 mín áður en próf á að hefjast). Nýtið alltaf allan prófatímann. Skipuleggið vel lestur í hverri námsgrein....
Meira >>>

Þungamiðja Reykjavíkur er hér!
24. apríl 2006
Kannað hefur verið hvar búsetu þungamiðja Reykjavíkur er og reyndist hún vera í byggingum Menntaskólans við Sund og Vogaskóla. Var þetta reiknað út með sama hætti og þegar búsetuþungamiðja höfuðborgarsvæðisins var fundin út frá staðsetningu heimilisfanga allra íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdasvið Reykjavíkur segir, að eftir að frétt um staðsetningu...
Meira >>>

Nemandi MS varð í 2. sæti í örleikritasamkeppni Þjóðleikhússins
28. mars 2006
Ragnheiður Bárðardóttir, nemandi í 3. A varð í 2. sæti í örleikritasamkeppni Þjóðleikhússins í gærkvöldi með verk sitt Heimkomuna. Þetta var verkefni sem hún vann í íslensku hjá Steinunni Egilsdóttur kennara við MS. Hún hlaut í verðlaun leikhúsmiða og peningaverðlaun frá SPRON. Skólinn óskar Ragnheiði hjartanlega til hamingju með þennan árangur.
Meira >>>

Valgreinar í boði 2006 - 2007
21. mars 2006
Námslýsingar valgreina sem í boði eru skólaárið 2006-2007 eru nú komnar á heimasíðu MS. Sjá undir Námið - Námsgreinar. Lista yfir valgreinar sem í boði eru er dreift til allra nemenda í 2. og 3. bekk og tvö eintök af valgreinalýsingum fara í hvern bekk. Valgreinakynning: fer fram fimmtudaginn 30. mars kl. 11.15 - 11.55 í Þrísteini. Valgreinaval: fer...
Meira >>>

Menntaskólinn við Hamrahlíð sigrar Menntskólann við Sund í Gettu betur
17. mars 2006
MH sigraði MS í kvöld í fjórðungsúrslitum í spurningakeppni framhaldsskólanna með 27 stigum gegn 19. MS óskar MH til hamingju með sanngjarnan sigur og óskar þeim góðs gengis í keppninni.
Meira >>>

Prófkvíðanámskeið
8. mars 2006
Prófkvíðanámskeið hefst mánudaginn 13. mars.  Áhugasamir geta fengið upplýsingar hjá námsráðgjöfum og á skrifstofu skólans
Meira >>>

Menntaskólinn við Sund eignast norðurlandameistara í frjálsum íþróttum
6. mars 2006
Hafsteinn Óskarsson kennari við skólann varð um helgina norðurlandameistari öldunga í 1500 m hlaupi á glæsilegu Íslandsmeti, 4:24,96 mín. Jafnframt hlaut Hafsteinn á norðulandameistaramótinu silfurverðlaun í sínum flokki (45-49 ára) í 800 m hlaupi og setti í leiðinni Íslandsmet, 2:08,23 mín. Það er ljóst að Hafsteinn hefur svona frekar verið að flýta...
Meira >>>

Verðlaunahafar í stærðfræðikeppninni
3. mars 2006
Eftirtaldir nemendur urðu í 10. efstu sætunum í sínum aldursflokki í stærðfræðikeppni Menntaskólans við Sund sem haldin var í febrúar 2006 Tíu efstu í 8. bekk                            ...
Meira >>>

Próftafla vorannarprófa
28. febrúar 2006
Próftafla vorannar er tilbúin. Hana er að finna á töflum skólans og á heimasíðunni undir fellimyndinni „Námið“.
Meira >>>

Vetrarfrí
16. febrúar 2006
Menntaskólinn við Sund verður lokaður föstudaginn 17. febrúar og mánudaginn 20. febrúar vegna vetrarfrís. Skrifstofan opnar aftur þriðjudaginn 21. febrúar kl. 8:00
Meira >>>

Nemanet - þróunarverkefni
30. janúar 2006
Nemanet -  þróunarverkefni - Á vorönn 2006 tekur Menntaskólinn við Sund þátt í þróunarverkefni um heimanámskerfið Nemanet. Verkefnið er styrkt af menntamálaráðuneytinu og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Markmiðið með kerfinu er að veita aðhald og stuðning í heimanámi. Kerfið sem er aðgengilegt á Netinu býr yfir lausnum sem efla einbeitingu...
Meira >>>

MS á móti MH í 3. umferð Gettu betur
25. janúar 2006
Dregið hefur verið um hvaða lið mætast í Sjónvarpinu í spurningakeppninni Gettu betur en næsta umferð keppninnar hefst 23. febrúar. Lið Menntaskólans við Sund mætir firnasterku liði Menntaskólans við Hamrahlíð fimmtudaginn 16. mars og verður viðureign þessara liða sú síðasta í þriðju umferð keppninnar. Eftirtalin lið mætast í næstu umferð: Fimmtudagur...
Meira >>>

MS sigur í 2. umferð Gettu betur
24. janúar 2006
Menntaskólinn við Sund sigraði Fjölbrautaskólann í Garðabæ með 29 stigum gegn 27 stigum eftir æsispennandi keppni í annarri umferð í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Með þessum sigri er MS kominn í 8 liða úrslit í keppninni.
Meira >>>

Bókmenntahátíð í MS
24. janúar 2006
Þriðjudagskvöldið 24. janúar að lokinni keppni í Gettu betur verður haldin bókmenntahátíð í Skálholti ( kjallari Þrísteins). Þar munu nokkur valinkunn skáld lesa úr verkum sínum hlustendum til yndis og unaðsauka og efla um leið menningarvitund vora. Hefst hátíðin kl 20:30. Þau sem fram koma eru:

    Andri Snær Magnason Kristín Þóra Pétursdóttir Aldís...

Meira >>>

Gettu betur 2. umferð
24. janúar 2006
Menntaskólinn við Sund keppir við Fjölbrautaskólann í Garðabæ þriðjudaginn 24. janúar í Gettu betur. Það lið sem sigrar er komið í 8 liða úrslit í keppninni.
Meira >>>

Gettu betur
16. janúar 2006
Menntaskólinn við Sund sigraði lið Starfsmenntabrautinnar á Hvanneyri með 26 stigum gegn 6 í fyrri umferð á Rás 2 í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur.
Meira >>>

Kennsla á vorönn 2006
2. janúar 2006
Kennsla vorannar hefst miðvikudaginn 4. janúar samkvæmt stundatöflu. Stundatöflur vorannar 2006 eru komnar á heimasíðu MS.
Meira >>>

Menntaskólinn við Sund og Landsbanki Íslands undirrita samstarfssamning
22. desember 2005
Menntaskólinn við Sund og Landsbanki Íslands hafa undirritað samstarfssamning til næstu þriggja ára. Í samningnum sem undirritaður var í í nýju húsnæði Langholtsútibús bankans 21. desember sl. er meðal annars kveðið á um viðskipti aðila og aðkomu bankans að almennri fjármálafræðslu fyrir nemendur. Kveðið er á um þátttöku bankans í sérstökum verkefnum...
Meira >>>

Lok haustannar 2005
20. desember 2005
Haustönn 2005 er lokið. Eftir athöfn á sal sem kennslustjóri skólans, Sigurrós Erlingsdóttir, stýrði fengu nemendur afhentar einkunnir sínar hjá umsjónarkennurum auk þess sem þeim bauðst að skoða prófúrlausnir sínar í einstökum námsgreinum. Í ræðu rektors á sal skólans kom fram að skólastarfið hafi að mestu gengið vel á haustönninni....
Meira >>>

Jólatónleikar kórs Menntaskólans við Sund
2. desember 2005
Kór Menntaskólans við Sund heldur sína árlegu jólatónleika sunnudaginn 4. desember kl. 17:00 í Langholtskirkju. Mætum öll í jólaskapi!
Meira >>>

Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna
7. nóvember 2005
Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna var haldin þriðjudaginn 18. október 2005. Stærðfræðikeppninni er skipt í neðra stig (1. og 2. bekkur) og efra stig (3. og 4. bekkur). Að þessu sinni urðu tveir keppendur úr MS meðal 20 efstu á efra stigi, þeir Birgir Indriðason og Egill Tómasson, báðir nemendur í 4X. Úrslit eru tilkynnt sérstaklega fyrir...
Meira >>>

Mikið óunnið í jafnréttismálum
23. október 2005
Kvennafrídagurinn er á morgun 24. október. Konur um allt land ætla að ganga út kl. 14:08 og leggja þannig áherslu á launamisréttið. Það eru liðin 30 ár frá því að konur flykktust á Lækjartorg til að taka þátt í fjölmennri baráttusamkomu. Þó margt hafi breyst síðan þá er óútskýrður launamunur enn til staðar. Enn er full ástæða...
Meira >>>

Reglur um dansleikjahald
4. október 2005
Birtar hafa verið á vef skólans reglur um dansleikjahald þetta skólaár [meira...]
Meira >>>

Stjórnendur sitja fyrir svörum
30. september 2005
Stjórnendur og sviðstjórar sitja fyrir svörum hjá nemendum í 3. og 4. bekk fimmtudaginn 6. október kl. 11:15 - 11:55 í Skálholti. Kjörið tækifæri fyrir nemendur til að spyrja um námið og skólastarfið t.d. um stúdentsprófin, framboð valgreina, samræmd stúdentspróf, húsnæðið og fleira.  
Meira >>>

Stærðfræði í fyrsta bekk - aðstoð við heimanám
22. september 2005
Nemendum í fyrsta bekk bjóðast stuðningstímar í stærðfræði í vetur. Tímarnir verða á laugardagsmorgnum. Gjald fyrir haustönn er 6.000 krónur og verða nemendur að greiða við skráningu. Skráningargjöld verða ekki endurgreidd.   Stuðningstímarnir verða eftirfarandi laugardaga:     Tími Stofa 11:30-12:30 3 17....
Meira >>>

Skráning í samræmd stúdentspróf
16. september 2005
Skráning í samræmd stúdentspróf á haustönn 2005 er frá 15. september til 15. október.
Meira >>>

Brautskráning stúdenta
31. maí 2005
Föstudaginn 27. maí voru 115 nemendur brautskráðir frá skólanum. Brautskráningin fór fram í Borgarleikhúsinu. Skúli Þór Magnússon kennari og ljósmyndari tók myndir af athöfninni og er myndirnar að finna hér á síðunni undir valmyndinni Skólinn - Brautskráningar.
Meira >>>

Niðurstöður nemendamats á vorönn 2005
25. maí 2005
Hluti af sjálfsmati í Menntaskólanum við Sund er að leggja fyrir nemendur könnun þar sem spurt er um kennara, kennslu og gæði hennar. Nú hafa verið birtar heildarniðurstöður könnunarinnar sem lögð var fyrir síðastliðinn mars og einnig er sýndur samanburður við niðurstöður eldri könnunar. [...skoða niðurstöður]
Meira >>>

Samningur við Betri lausnir um uppsetningu og rekstur á kennslukerfi
11. maí 2005
Menntaskólinn við Sund hefur gert samning við Betri lausnir ehf. um uppsetningu og rekstur á kennslukerfi fyrir skólann. Uppsetningu verður lokið í ágúst. Með þessum samningi opnast nýir möguleikar í skólanum varðandi upplýsingaflæði milli nemenda og kennara. Ný tækifæri verða til í námi og kennslu, sjálfsmati og utanumhaldi með einstökum námsgreinum...
Meira >>>

Prófatíminn er hafinn
26. apríl 2005
Í dag 26. apríl er fyrsti prófadagur vorannar 2005. Ein prófalota er á hverjum degi og hefjast próf kl. 8:15. Til þess að allt gangi vel eru nemendur eru hvattir til að mæta tímanlega í öll próf og fylgja í einu og öllu prófareglum. [sjá reglur um próf og námskröfur]
Meira >>>

Stjórnendur sitja fyrir svörum
13. apríl 2005
Stjórnendur og sviðstjórar sitja fyrir svörum hjá nemendum í 1. og 2. bekk t.d. um kjörsviðsval, valgreinar, félagslíf, skólasóknarreglur og styttingu náms til stúdentsprófs miðvikudaginn 13. apríl kl. 14:40 – 15:20 Í Skálholti. Við hvetjum nemendur til að nýta sér þetta tækifæri til að ræða við stjórnendur um málefni MS og skólamál almennt. ...
Meira >>>

Áræði með ábyrgð
5. apríl 2005
Menntamálaráðuneytið hefur gefið út bæklinginn Áræði með ábyrgð . Þar er stefna ráðuneytisins um upplýsingatækni í menntun, menningu og vísindum 2005-2008  birt. Sjá nánar á vef menntamálaráðuneytisins [meira...]
Meira >>>

GLEÐILEGA PÁSKA
22. mars 2005

Próftafla vorannar 2005 er komin á heimasíðu skólans.
Opnunartími skrifstofu í páskafríi nemenda verður sem hér segir:
Mánudaginn 21. mars og Þriðjudaginn 22. mars frá kl. 9:30-16:00 báða dagana.
Þriðjudaginn 29. mars frá kl. 9:30-16:00.
Frá og með miðvikudeginum 30. mars verður skrifstofa skólans opin frá 8:00 til 16:00.


Meira >>>

Skóli á ferð til framtíðar
15. mars 2005
Skóli á ferð til framtíðar er titill á ræðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra sem hún hélt við setningu UT-ráðstefnunnar á Hótel Sögu 4. mars síðastliðinn. Eins og allir vita hafa undanfarið verið óvenjulega miklar umræður í þjóðfélaginu um menntamál. Helst hefur verið rætt um fyrirhugaða styttingu námstíma til stúdentsprófs, samanburð...
Meira >>>

Gestir frá Danmörku í heimsókn
9. mars 2005
Nú um helgina koma nemendur úr dönskum framhaldsskóla í heimsókn í MS ásamt kennurum sínum. Þeir munu í næstu viku sækja tíma með okkar nemendum, fara á fyrirlestra um íslenska skólakerfið og síðast en ekki síst keppa við nemendur MS í hinum ýmsu íþróttum. Tökum vel á móti frændum okkar.
Meira >>>

Menntamálaráðherra á fundi í MS
1. mars 2005
Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hélt í dag 1. mars fund í skólanum um styttingu námstíma til stúdentsprófs.   Á fundinum voru auk ráðherra embættismenn úr Menntamálaráðuneytinu,...
Meira >>>

MS kominn í undanúrslit í Gettu betur
9. febrúar 2005
Lið Menntaskólans við Sund sigraði lið Framhaldsskólans á Laugum í jafnri keppni í 8 liða úrslitum í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Lið skólans er því komið í undanúrslit en ekki verður ljóst hverjir mótherjarnir verða í næstu umferð fyrr en öðrum keppnum í þessari umferð er lokið. Bæði liðin í kvöld eiga hrós skilið fyrir góða og drengilega...
Meira >>>

Gettu betur
6. febrúar 2005
Menntaskólinn við Sund og Framhaldsskólinn að Laugum keppa í beinni útsendingu Sjónvarpsins miðvikudaginn 9. febrúar kl. 20:00 í Hálogalandi, íþróttasal Menntaskólans við Sund. 
Meira >>>

Sigur MS í annarri umferð Gettu betur
20. janúar 2005
Menntaskólinn við Sund sigraði Iðnskólann í Reykjavík með 20 stigum gegn 13 í annarri umferð í spurningakeppninni Gettu betur. Skólinn er því kominn í fjórðungsúrslit í keppninni sem er góður árangur. Annars var það markverðast í þessari umferð að tvö af sterkustu liðum keppninnar, Borgarholtsskóli og Menntaskólinn í Reykjavík, leiddu saman hesta sína...
Meira >>>

Aðgerðir skólans til að bæta námsárangur
6. janúar 2005
Námsárangur á haustönn 2004 var svipaður og undanfarin þrjú til fjögur ár. Meðaleinkunn allra nemenda skólans var 6,4. Hlutfall þeirra sem ekki ná viðunandi aðaleinkunn hefur þó aukist lítillega milli ára og ljóst er að margir nemendur þurfa að breyta námsvenjum sínum ef þeir eiga að ná þeim árangri sem þeir stefna að. Skólinn hefur ákveðið...
Meira >>>

Kennsla á vorönn 2005
30. desember 2004
Kennsla á vorönn 2005 hefst þriðjudaginn 4. janúar kl. 8:10 samkvæmt stundaskrá.
Meira >>>

Endurtökupróf verða 7. janúar
30. desember 2004
Endurtökupróf verða haldin 7. janúar kl. 13:00-15:00 í
jarðfræði og líffræði í 1. bekk málabrautar og félagsfræðabrautar,
landafræði og félagsfræði í 1. bekk félagsfræðabrautar,
hagfræði og stjórnmálafræði í 3. bekk félagsfræðikjörsviðs,
rekstrarhagfræði í 3. bekk hagfræðikjörsviðs og
bóklegum valgreinum í 3. og 4. bekk.
Meira >>>

Opnun skrifstofu í desember
24. nóvember 2004
Opnun skrifstofu skólans í desember   Skrifstofa skólans er opin  frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga frá 1. desember til og með 22. desember. Milli jóla og nýárs verður skrifstofan opin sem hér segir: Mánudaginn 27. desember frá kl. 9:00-16:00 Þriðjudaginn 28. desember frá kl. 9:00-16:00 Miðvikudaginn 29. desember frá kl. 9:00-16:0...
Meira >>>

Dagur íslenskrar tungu
16. nóvember 2004
Í dag, 16.nóvember, er Dagur íslenskrar tungu og þess vegna dagur þinn, dagur minn- dagur okkar allra. Jónasi Hallgrímssyni (f. 16.11.1807) skáldi og náttúrufræðingi hefði trúlega þótt sú hugmynd sérkennileg að helga einn dag á ári íslenskri tungu.  Hann hefði viljað hafa þá fleiri. Hér við skólann eru ýmsir kennarar sem fara iðulega yfir í garð...
Meira >>>

Brotist inn í MS og tölvuskjám stolið
8. nóvember 2004
Brotist var inn í skólann nú um helgina og stolið 16 nýjum tölvuskjám af gerðinni IBM. Þeir sem geta gefið upplýsingar sem gætu leitt til þess að málið verði upplýst eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu skólans sem fyrst, sími: 5807300, netfang: msund@msund.is. Skjáirnir sem um er að ræða eru: 4 stk. af IBM 15" L150 TFT svartur...
Meira >>>

Drög að próftöflu haustannar 2004
22. október 2004
Drög að próftöflu haustannar 2004 voru afgreidd af skólaráði MS þann 14. október og hafa nú verið sett upp á auglýsingatöflur skólans. Vinsamlegast sendið skriflegar athugasemdir fyrir 28. október til Sigurrósar Erlingsdóttur, kennslustjóra eða fulltrúa nemenda í skólaráði. Þeir eru Dagný Björk Kristjánsdóttir 4. B, Hinrik Örn Hinriksson 3. A og Kristín...
Meira >>>

Þverfaglegt þemaverkefni í árshátíðarviku 2005
7. október 2004
Inngangur: Í árshátíðarvikunni 2005 þ.e.14. – 17. febrúar verður hefðbundið skólastarf brotið upp í fjóra daga og nemendur og kennarar vinna saman að þverfaglegu verkefni. Í tilefni af 35 ára afmæli skólans verður þemað Menntaskólinn við Sund í fortíð, nútíð og framtíð.  Markmið:

    auka fjölbreytni í skólastarfi efla þverfagleg vinnubrögð auka...

Meira >>>

Samræmd próf
28. september 2004
Samkvæmt reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra stúdentsprófa í framhaldsskólum nr. 196 frá 2003 er nemendum skylt að þreyta tvö samræmd stúdentspróf af þremur þ.e. í íslensku, ensku og stærðfræði.  Samræmt stúdentspróf í íslensku verður haldið fimmtudaginn 2. desember 2004 kl. 9:00 - 12:00. Skráning í prófið fer fram í gegnum...
Meira >>>

Breytt námsskipan til stúdentsprófs
28. september 2004
Út er komin á vegum menntamálaráðuneytis skýrsla starfshópa og verkefnisstjórnar um breytta námsskipan til stúdentsprófs og aukna samfellu í námi. Í skýrslunni er fjallað um leiðir til þess að stytta námstíma til stúdentsprófs. Fjallað er sérstaklega um starfstíma grunn- og framhaldsskóla, skipan náms til stúdentsprófs, aðalnámskrár grunn- og framhaldsskóla,...
Meira >>>

Umsóknir um jöfnunarstyrk
24. september 2004
Skólinn vill vekja athygli á að það hefur verið opnað fyrir skráningu umsókna um jöfnunarstyrk á www.lin.is, vegna skólaársins 2004-2005. Athygli er vakin á að umsóknarfrestur á haustönn er nú til 15. október ár hvert, sbr. breytingu með reglugerð nr. 760/2004.
Meira >>>

Vel heppnaðir tónleikar Sankt Annæ Pigekor
24. september 2004
Stúlknakór Sankt Annæ Gymnasium í Kaupmannahöfn er í heimsókn hér á landi. Kórinn er einn þriggja kóra við þennan fræga söngskóla og hafa verið gefnir út margir geisladiskar með kórnum. Aðrir kórar við þennan skóla eru Københavns Drengekor og Sankt Annæ Gymnasiekor sem er einn af stærstu kórum í Evrópu.
Meira >>>

Tónleikar stúlknakórs Sankt Annæs menntaskólans í Kaupmannahöfn
23. september 2004
Stúlknakór Sankt Annæs menntaskólans í Kaupmannahöfn heldur í hádeginu föstudaginn 24. september tónleika í Þrísteini. Tónleikarnir standa frá klukkan 11:50-12:20. Nemendur og starfsfólk skólans er hvatt til þess að mæta. kennslustjóri
Meira >>>

Fundur með foreldrum/forráðamönnum nýnema
17. september 2004
Þriðjudaginn 21. september kl. 20:00 verður haldinn í skólanum fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema í Menntaskólanum við Sund. Tilgangur fundarins er að kynna skólann og starfið í vetur og svara fyrirspurnum. Þá gefst foreldrum/forráðamönnum kostur á að hitta umsjónarkennara barna sinna.  Stjórnendur skólans og námsráðgjafar verða á staðnum. Dagskrá...
Meira >>>

Frumvarp um breytingar á skólakerfinu
24. ágúst 2004
...
Meira >>>

Greiðsla á innritunargjöldum
1. júlí 2004
Þeir nemendur sem ekki hafa greitt innritunargjöldin fyrir næsta skólaár eru hvattir til þess að gera skil strax. Nemendur sem koma úr grunnskóla og fengið hafa bréf um skólavist í MS geta átt það á hættu að verða teknir af nemendaskrá skólans ef þeir hafa ekki staðfest skólavistina  með greiðslu skólagjalda. ...
Meira >>>

Svör til nýnema verða send út 21. júní
18. júní 2004
Svör við umsóknum nýnema um skólavist verða send frá skólanum mánudaginn 21. júní. Rektor
Meira >>>

Myndir frá útskrift í Borgarleikhúsinu
1. júní 2004
Brautskráning stúdenta fór fram í Borgarleikhúsinu föstudaginn 28. maí. Myndir frá þessari athöfn hafa verið settar á vef skólans en þar má sjá hvar allir 134 nýstúdentarnir taka við prófskírteini sínu úr hendi rektors. Skoða myndirnar
Meira >>>

Námsefni á endurtektarprófum í ensku i 1. og 3. bekk
27. maí 2004
Námsefni á endurtektarprófum í ensku í 1. og 3. bekk vorið 2004   1. bekkur: Texti vorannar og málfræði alls vetrarins, ekkert annað. 3. bekkur: Texti alls vetrarins, ekkert annað.
Meira >>>

Námsefni til endurtektarprófa í íslensku vor 2004
27. maí 2004
Námsefni til endurtektarprófa í íslensku vorið 2004   Námsefni til endurtektarprófs í íslensku í 1. bekk   Baldur Ragnarsson: Setningafræði (sbr. námsáætlun haustannar). Jón Kalman Stefánsson: Ýmislegt um risafurur og tímann. Egils saga (sbr. námsáætlun vorannar). Ritun. Í ritun er tekið tillit til stafsetningar og greinarmerkjas...
Meira >>>

Brautskráning stúdenta og skólaslit
26. maí 2004
Brautskráning stúdenta og skólaslit Menntaskólans við Sund fer fram í Borgarleikhúsinu föstudaginn 28. maí. Hefst athöfnin klukkan 14.
Meira >>>

Kennsla að loknu páskafríi
13. apríl 2004
Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu miðvikudaginn 14. apríl kl. 8:10.
Meira >>>

Opnunartímar skrifstofu i páskaleyfi
1. apríl 2004
Skrifstofa skólans verður opin mánudaginn 5. apríl frá kl. 8:00 til 16:00 og þriðjudaginn 6. apríl frá kl. 8:00 til 12:00. Skrifstofan opnar síðan aftur eftir páskaleyfi þriðjudaginn 13. apríl næstkomandi kl. 9:00.
Meira >>>

Sveit frá MS sigrar á framhaldsskólamótinu í bridge
25. mars 2004
Sveit nemenda í MS (Böðvar)  sigraði með miklum yfirburðum á framhaldskólamótinu í bridge. Sveitina skipuðu: Þorvaldur Guðjónsson, Ívar Baldvin Júlíusson, Magnús Björn Bragason, Grímur Freyr Kristinsson. Sveit MK varð í öðru sæti og sveit MH í því þriðja. Glæsilegur árangur hjá okkar fólki sem hefur verið í stífri þjálfun í vetur.  Skólinn...
Meira >>>

Húsnæðismál MS
20. mars 2004
Á vegum ríkisins og borgarinnar er unnið að undirbúningi fyrir viðbyggingu við skólann. Vinna við þarfagreiningu er farin af stað og verið er að undirbúa nýtt deiliskipulag fyrir byggingareitinn sem Menntaskólinn við Sund og Vogaskóli standa á.
Meira >>>

Nýr vefur MS opnar á ný
19. mars 2004
Nýtt vefumsjónarkerfi Menntaskólans við Sund opnar á ný eftir nokkrar lagfæringar. Gerðar hafa verið nokkrar endurbætur á kerfinu og gögn sem skemmdust hafa verið lagfærð að hluta til.
Meira >>>

Aðgangur að gagnasafni Morgunblaðsins
30. janúar 2004
Bókasafn Menntaskólans við Sund ásamt öðrum bókasöfnum í framhaldsskólum hefur samið um ótakmarkaðan aðgang að Gagnasafni Morgunblaðsins fyrir framhaldsskólana.   Aðgangurinn að gagnasafninu fer í gengum lén (IP-tölu) skólans þannig að þessi aðgangur er ekki fyrir hendi utan skólans.   Fara má beint í gegnum heimasíðu Mbl....
Meira >>>

Samstarf við Barnaheill
29. janúar 2004
Í vetur eru nemendur Menntaskólans við Sund í samstarfsverkefni við Barnaheill.  Samstarfsverkefnið felur í sér að nemendur Menntaskólans við Sund sem eru um 730 talsins ætla að vinna einn dag í árshátíðarviku skólans sem er í febrúar. Sá peningur sem safnast fyrir vinnuna verður síðan afhendur fátækum börnum í Kambódíu í samvinnu við...
Meira >>>

Nýtt vefumsjónarkerfi í MS
6. janúar 2004
Nýr vefur Menntaskólans við Sund byggir á nýju vefumsjónarkerfi, Baldr sem fyrrum nemandi við skólann, Guðmundur Hreiðarsson hefur hannað. Vefurinn sem er sérsmíðaður fyrir skólann keyrir á sérstökum gagnagrunni. Vonast er til að með tilkomu þessa nýja veftækis verði unnt að reka betri og öflugri vef, nemendum, starfsmönnum og öðrum til hagsbóta....
Meira >>>

Jöfnun námskostnaðar
8. október 2003
Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu umsóknar á vef Lánasjóðs íslenskra námsmanna (www.lin.is). Athygli er vakin á nýrri reglugerð nr. 692/2003. Sækja má um styrk á www.lin.is.
Meira >>>

Stytting náms til stúdentsprófs
8. október 2003
Menntamálaráðuneytið hefur birt skýrslu um styttingu náms til stúdentsprófs. Þar er því lýst yfir að lokaundirbúningur að styttingu námsins væri hafinn.
Meira >>>

Ríkið og menntamálaráðuneytið gera samning um húsnæðisúrræði
6. september 2003
Menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, og borgarstjórinn í Reykjavík, Þórólfur Árnason, undirrituðu í dag yfirlýsingu um samstarf ríkisins og Reykjavíkurborgar í húsnæðismálum framhaldsskóla í Reykjavík.
Meira >>>


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 15.01.2004