Saga
Lokamarkmið sögukennslu á málabraut er að nemendur
- öðlist þekkingu á og tilfinningu fyrir ólíkum skeiðum sögunnar
- séu færir um að leita samhengis og tengsla milli tímabila, svæða og sviða
- sjái sögu Íslands í samhengi við sögu umheimsins
- geti afmarkað söguleg viðfangsefni, greint meginþætti og álitamál og lagt á þau mat
- hafi þjálfast í að meta gildi og áreiðanleika heimilda
- fái lifandi áhuga á fjölþættum viðfangsefnum sögunnar og margbreytilegum birtingarmyndum hennar
- glími við viðfangsefni á sviði menningarsögu og öðlist þannig innsýn í mikilvæga þætti evrópskrar menningararfleiðar og átti sig á gildi hennar fyrir mannlíf í nútímasamfélagi
Lokamarkmið sögukennslu á félagsfræðabraut er að nemendur

- hafi öðlast glögga sýn á ýmsa meginþætti í sögu 20. aldar
- öðlist færni í að nýta sér ólík birtingarform sögunnar, svo sem kennslubækur, handbækur, fræðirit, munnlegar frásagnir, myndefni, söfn af ýmsu tagi og hvers konar margmiðlun
- hafi fengið þjálfun í að tileinka sér sagnfræðilegt efni í íslenskum fræðiritum og fræðilega texta á erlendum tungumálum
- hafi vald á að greina og meta ólík sjónarhorn og viðmið í völdum sagnfræðilegum álitamálum
Lokamarkmið sögukennslu á náttúrufræðibraut er að nemendur

|