Saga í 2. bekk náttúrufræðabrautar
SAG 1N3
Saga í 2. bekk, náttúrufræðibraut
(Samsvarar SAG 103 í Aðalnámskrá.)
Námslýsing
Viðfangsefnið er saga mannkyns frá upphafi vega og fram um 1800 og
saga Íslands frá landnámi til sama tíma. Einkum verður lögð áhersla á
eftirfarandi efnisflokka.
Fornöld í nútímanum. Leitast við að draga fram þá þætti úr arfi fornaldar,
sem sett hafa mark sitt á síðari tíma.
Menningarheimar á miðöldum. Lögð áhersla á að bera saman kristindóm
og íslam, tengsl þeirra og árekstra í tímans rás. Fjallað um íslenskt
miðaldasamfélag í samanburði við önnur samfélög í Evrópu.
Ný heimsmynd. Einkum er gefinn gaumur að viðhorfsbreytingum í
andlegum efnum, eins og þær birtast í endurreisnar- og
siðskiptahreyfingunum, og að landkönnun og landafundum Evrópuþjóða
og þróun náttúruvísinda.
Ríki og þegnar. Fjallað um þróun ríkisvalds og stjórnarfars í Evrópu á
öndverðri nýöld, og um sambúð ríkja í álfunni. Staða Íslands í þessu
samhengi athuguð sérstaklega.
Upplýsingin. Leitast við að greina grunnhugmyndir helstu frömuða
upplýsingarinnar, einkum um stjórnmál, uppeldi og fræðslu og áhrif þeirra.
Hugað að aðgerðum í anda upplýsingarinnar hér á landi.
Kennsluaðferðir
Í Í fyrirlestrum draga kennarar upp meginþróunarlínur og setja einstök atriði
í stærra samhengi. Nemendur vinna að einstaklings- og hópverkefnum.
Myndefni af ýmsu tagi verður nýtt eftir því sem föng eru á. Nemendur
þjálfast í rökræðum um söguleg viðfangsefni í umræðutímum og
fyrirlestrum.
Námsmat
Annareinkunnir byggjast annars vegar á prófi í lok anna og hins vegar á
vinnueinkunn fyrir verkefnavinnu og aðra þætti námsins á hvorri önn.
|