Forsíða > Þjónusta > Bókasafn og upplýsingamiðstöð > Prentvænt

Uppröðun safnkosts

Bókum safnsins og myndböndum er skipað niður í efnisflokka eftir bandarísku flokkunarkerfi Dewey Decimal Classification (Devey-kerfið) sem er tugstafakerfi og spannar tugina 000-999 ásamt undirflokkum. Dewey-kerfið er notað á nær öllum bókasöfnum hérlendis og víða erlendis.

Hér að neðan eru aðalflokkar kerfisins en nánari skiptingu þess er að finna á safninu:

    000  Rit almenns efnis – Tölvufræði
   
100  Heimspeki – Sálfræði  Siðfræði
   
200  Trúarbrögð
   
300  Samfélagsvísindi – Félagsfræði
   
400  Tungumál
    500
  Raunvísindi – Náttúrufræði
   
600  Tækni – Hagnýt vísindi - Iðnaður
    700  Listir – Skemmtanir – Íþróttir
    800  Bókmenntir - Stílfræði - Bókmenntasaga
   
900  Saga – Landafræði – Ævisögur

Hverri einstakri bók og myndbandi er gefin flokkstala (marktákn) í samræmi við efni. Flokkstalan ásamt raðorði (fyrstu þrír stafirnir í nafni höfundar eða titils) eru síðan prentuð á kjalmiða (heimilisfang bókarinnar) sem raðað er eftir í hillur. Fyrst er raðað eftir flokkstölu og innan hvers flokks eftir raðorði. Á kjalmiða eru ennfremur þrír fyrstu stafirnir í titli og eru þeir notaðir við röðun ef margar bækur í tilteknum efnisflokki eru eftir sama höfund. Útgáfuár er einnig að finna á kjalmiða. 

Tímarit safnsins eru skráð á sérstök spjöld og ennfremur í gagnaskrá safnsins. Nýkomin tímarit eru til skoðunar í sýnihillu á safninu en eldri árgangar tímarita eru í geymslu safnsins og eru sóttir eftir þörfum. Tímaritum er raðað í hillur eftir stafrófsröð titla.

                                                                                                                        ©Þórdís T. Þórarinsdóttir


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 20.08.2013