Uppröðun safnkosts
Bókum safnsins og myndböndum er skipað niður í efnisflokka eftir bandarísku flokkunarkerfi Dewey Decimal Classification (Devey-kerfið) sem er tugstafakerfi og spannar tugina 000-999 ásamt undirflokkum. Dewey-kerfið er notað á nær öllum bókasöfnum hérlendis og víða erlendis.
Hér að neðan eru aðalflokkar kerfisins en nánari skiptingu þess er að finna á safninu:
000 Rit almenns efnis – Tölvufræði 100 Heimspeki – Sálfræði – Siðfræði 200 Trúarbrögð 300 Samfélagsvísindi – Félagsfræði 400 Tungumál 500 Raunvísindi – Náttúrufræði 600 Tækni – Hagnýt vísindi - Iðnaður 700 Listir – Skemmtanir – Íþróttir 800 Bókmenntir - Stílfræði - Bókmenntasaga 900 Saga – Landafræði – Ævisögur
Hverri einstakri bók og myndbandi er gefin flokkstala (marktákn) í samræmi við efni. Flokkstalan ásamt raðorði (fyrstu þrír stafirnir í nafni höfundar eða titils) eru síðan prentuð á kjalmiða (heimilisfang bókarinnar) sem raðað er eftir í hillur. Fyrst er raðað eftir flokkstölu og innan hvers flokks eftir raðorði. Á kjalmiða eru ennfremur þrír fyrstu stafirnir í titli og eru þeir notaðir við röðun ef margar bækur í tilteknum efnisflokki eru eftir sama höfund. Útgáfuár er einnig að finna á kjalmiða.
Tímarit safnsins eru skráð á sérstök spjöld og ennfremur í gagnaskrá safnsins. Nýkomin tímarit eru til skoðunar í sýnihillu á safninu en eldri árgangar tímarita eru í geymslu safnsins og eru sóttir eftir þörfum. Tímaritum er raðað í hillur eftir stafrófsröð titla.
©Þórdís T. Þórarinsdóttir
|