Forsíða > Þjónusta > Bókasafn og upplýsingamiðstöð > Prentvænt

Reglur safnsins

Athugið að lánþegi ber ábyrgð á þeim safngögnum sem hann tekur að láni og er bótaskyldur ef þau glatast eða skemmast.

  • Öll útlán af safninu skal skrá. Heimlán eru tölvuskráð hjá starfsfólki safnsins en lán innan skólans skráð á þar til gerð eyðublöð.
  • Þegar útlánstími safngagna í heimláni er útrunninn skal skila þegar í stað í sérstakan læstan kassa sem er við innganginn að safninu.
  • Bækur, tímarit og önnur gögn, sem notuð eru á lestrarsal, skal setja á sinn stað eða á bókavagninn að notkun lokinni.
  • Kennslugögn eru aðeins lánuð í kennslustundir og á lestrarsal/innan skólans þegar göt myndast í stundatöflu. Þau lán eru skráð á sérstakt eyðublað.
  • Athugið. Óheimilt er að fara með kennslugögn heim. Til að njóta þjónustunnar þarf að virða skilareglur.
  • Mikilvægt er að hafa hljótt á bókasafninu og virða vinnufrið annarra!
  • Öll meðferð og neysla tóbaks, matar, sælgætis og drykkja er algerlega bönnuð á safn­inu!
  • Algerlega er bannað að láta farsíma hringja og að tala í farsíma á bókasafninu!
  • Athygli er sérstaklega vakin á því að nemendur þurfa að hafa gert full skil við bóka­safnið áður en einkunnir eru afhentar haust og vor. - Semja þarf sérstaklega við starfsfólk bókasafnsins um lán í skólafríum.

Bókasafn og upplýsingamiðstöð MS


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 11.05.2011