Reglur safnsins
Athugið að lánþegi ber ábyrgð á þeim safngögnum sem hann tekur að láni og er bótaskyldur ef þau glatast eða skemmast.
- Öll útlán af safninu skal skrá. Heimlán eru tölvuskráð hjá starfsfólki safnsins en lán innan skólans skráð á þar til gerð eyðublöð.
- Þegar útlánstími safngagna í heimláni er útrunninn skal skila þegar í stað í sérstakan læstan kassa sem er við innganginn að safninu.
- Bækur, tímarit og önnur gögn, sem notuð eru á lestrarsal, skal setja á sinn stað eða á bókavagninn að notkun lokinni.
- Kennslugögn eru aðeins lánuð í kennslustundir og á lestrarsal/innan skólans þegar göt myndast í stundatöflu. Þau lán eru skráð á sérstakt eyðublað.
- Athugið. Óheimilt er að fara með kennslugögn heim. Til að njóta þjónustunnar þarf að virða skilareglur.
- Mikilvægt er að hafa hljótt á bókasafninu og virða vinnufrið annarra!
- Öll meðferð og neysla tóbaks, matar, sælgætis og drykkja er algerlega bönnuð á safninu!
- Algerlega er bannað að láta farsíma hringja og að tala í farsíma á bókasafninu!
-
Athygli er sérstaklega vakin á því að nemendur þurfa að hafa gert full skil við bókasafnið áður en einkunnir eru afhentar haust og vor. - Semja þarf sérstaklega við starfsfólk bókasafnsins um lán í skólafríum.
Bókasafn og upplýsingamiðstöð MS
|