Forsíða > Þjónusta > Bókasafn og upplýsingamiðstöð > Prentvænt

Gagnaskrá safnsins

Viskusteinn – Gagnaskrá bókasafnsins

Gagnaskrá safnsins - Viskusteinn - hefur það hlutverk að auðvelda notendum aðgang að gögnum bóka­safns­ins og er skráin lykillinn að efni þess. Sýnir hún annars vegar hvaða efni safnið á og hins vegar hvar efnið er að finna í hillu. Við uppbyggingu Viskusteins er notað bókasafnsforritið Metrabók sem notað er á um 80 bókasöfnum hér á landi.

Til að auð­velda heimilda­leitir er öllum safngögnum gefin stöðluð efnisorð í samræmi við ritið: Kerfis­bundinn efnisorðalykill fyrir bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar, 3. útg. 2001.

Á bókasafninu eru nettengdar tölvur fyrir almenningsaðgang. Ætlast er til að nem­endur noti þær með eigin notendanafni og lyklilorði.

Viskusteinn er einnig að­gengi­legur á skóla­netinu (t.d. í tölvustofum og vinnuherbergjum kennara) og á Netinu sjálfu (þ.e. Internetinu).

©Þórdís T. Þórarinsdóttir


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 21.09.2017