Forsíða > Námið > Námsgreinar > Hagfræði > Prentvænt

Hagfræði í 3 HAG

REF 2H3

Rekstrarhagfræði í 3. bekk, félagsfræðabraut, hagfræðikjörsviði

(Samsvarar  REK 203 í Aðalnámskrá)

   Námslýsing

Fjallað er  m.a. um líkön, mismunandi hagkerfi, skort, val, fórn, fórnarkostnað,  kostnaðarhugtök og kostnaðarföll, tekjuhugtök og tekjuföll, hagnaðarfall, framlegð, framleiðni, hagkvæmasta val framleiðsluþátta, hagkvæmasta val framleiðslusamsetningar, þenslubraut, lögmálið um minnkandi afrakstur, framleiðsluföll, framboð, eftirspurn, kenningar Adam Smith, jafnvægi á frjálsum markaði fyrir vöru og þjónustu, notagildi, teygnihugtök og verðmyndun við mismunandi markaðsform (fullkomin samkeppni, einokun, tvíkeppni, fákeppni, verðleiðsögn, verðmismunun).

   Kennsluaðferðir

Efnið er kennt með fyrirlestrum, umræðum og einstaklings- og hópverkefnum sem krefjast sjálfstæðra vinnubragða. Lögð er áhersla á að nemendur beiti stærðfræðilegri nálgun við lausn verkefna og noti m.a. deildun við hámörkun tekna og hagnaðar og lágmörkun kostnaðar og kynnist línulegri bestun við val á framleiðslukostum.  Hluti kennslu fer fram í tölvustofu. Nemendur eru þjálfaðir í að nýta sér Netið til upplýsingaöflunar.  

   Námsmat

Skriflegt stúdentspróf í rekstrarhagfræði (9 ein. yfirlitspróf úr námsefni 2.-3. bekkjar) er haldið í lok haustannar. Námseinkunn er byggð m.a. á skyndiprófum, verkefnum og virkni.


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 06.08.2005