Þjónusta við nemendur í nýrri námskrá
- Boðið er upp á sérstakan valáfanga, námsaðferðir, fyrir nemendur með greiningu um lestrar- eða stærðfræðierfiðleika.
- Boðið er upp á námskeið fyrir nýnema með greiningu um lestrar- eða stærðfræðierfiðleika í upphafi skólaárs.
- Prófkvíðanámskeið á vegum námsráðgjafa.
- Einstaklingsviðtöl hjá námsráðgjöfum við nemendur sem koma með greiningar um lestrar-, stærðfræði- eða skriftarerfiðleika.
- Vakni grunsemdir um að nemandi sé með lestrar- eða stærðfræðierfiðleika hvetja námsráðgjafar hann til að fara í greiningu til sérfræðinga t.d. taugasálfræðinga og lestrarsérfræðinga.
- Námsráðgjafar hvetja nemendur til að sækja sér þjónustu hjá Blindrabókasafni þegar greining liggur fyrir.
- Námsráðgjafar upplýsa kennara um hvaða nemendur þeirra glíma við lestrar- eða aðra sértæka námsörðugleika .
- Ábending til kennara að nota arial letur því það hentar nemendum með lestrarerfiðleika.
- Nemendur sem þurfa próf á lituðum pappír geta óskað eftir því. Einnig geta þeir óskað eftir lengri próftíma.
|