Þjónusta í eldra kerfi er Menntaskólinn við Sund veitir nemendum með sértæka námsörðugleika m.a. lestrarerfiðleika
- Boðið er upp á sérstakan valáfanga, námsaðferðir, fyrir nemendur með greiningu um lestrar- eða stærðfræðierfiðleika.
- Boðið er upp á námskeið fyrir nýnema með greiningu um lestrar- eða stærðfræðierfiðleika í upphafi skólaárs.
- Prófkvíðanámskeið á vegum námsráðgjafa.
- Einstaklingsviðtöl hjá námsráðgjöfum við nemendur sem koma með greiningar um lestrar-, stærðfræði- eða skriftarerfiðleika.
- Vakni grunsemdir um að nemandi sé með lestrar- eða stærðfræðierfiðleika hvetja námsráðgjafar hann til að fara í greiningu til sérfræðinga t.d. taugasálfræðinga og lestrarsérfræðinga.
- Námsráðgjafar hvetja nemendur til að sækja sér þjónustu hjá Blindrabókasafni þegar greining liggur fyrir.
- Námsráðgjafar upplýsa kennara um hvaða nemendur þeirra glíma við lestrar- eða aðra sértæka námsörðugleika.
- Ábending til kennara að nota arial letur því það hentar nemendum með lestrarerfiðleika.
- Nemendur sem þurfa próf á lituðum pappír geta óskað eftir því.
- Próftaka í sérstofum.
- 30 mínútna lengri próftími.
- Upplestur prófa á MP3 spilara.
- Stækkuð próf.
- Próf á lituðum pappír.
- Próf á tölvum.
|