Forsíða > Námið > Námsgreinar > Enska > Prentvænt

Enska í 2.N

ENS 2N3

Enska í 2. bekk, náttúrufræðibraut

(Samsvarar að hluta  ENS 212 og ENS 303 í Aðalnámskrá)

   Námslýsing

Auk fjölbreytilegs almenns lesefnis eru sérhæfðir textar vandlega lesnir. Unnar eru margvíslegar æfingar á öllum færnisviðum. Skáldsögur og/eða smásögur lesnar til munnlegrar og /eða skriflegrar umfjöllunar. Ennfremur er unnið með undirstöðuatriði enskrar málfræði. Lögð er áhersla á nýtingu hjálpargagna, svo sem orðabóka, Netsins og annarra heimilda. Á þennan hátt er leitast við að styrkja lesskilning nemenda og efla virkan, hagnýtan og sérhæfðan orðaforða.

   Markmið  

Nemendur

-    geti tjáð sig um almenn efni í ræðu og riti

-    geti lesið ýmiss konar fræðitexta, bókmenntir, blaða- og tímaritsgreinar um   margvísleg efni

-    geti aflað sér tiltekinna upplýsinga og gert útdrátt úr texta

-    geti nýtt sér hjálpargögn, svo sem orðabækur og Netið

-    hafi vald á undirstöðuatriðum enskrar málfræði

-    geti gert greinarmun á formlegu og óformlegu málfari

-    geti skrifað skipulagt og rökstutt mál og notað orðaforða úr námsefninu á viðeigandi hátt.

   Námsmat

Haust- og vorannarpróf eru skrifleg og munnleg. Hluti einkunna er auk þess fyrir skil verkefna og aðra ástundun á kennslutíma.


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 23.09.2004