Forsíða > Námið > Námsgreinar > Enska > Prentvænt

Enska í 2.M

ENS 2M5

Enska í 2. bekk, málabraut

(Samsvarar ENS 212 og ENS 303 í Aðalnámskrá)

   Námslýsing

Auk fjölbreytilegs almenns lesefnis eru sérhæfðir textar vandlega lesnir. Unnar eru margvíslegar æfingar á öllum færnisviðum. Skáldsögur og/eða smásögur eru lesnar til munnlegrar og /eða skriflegrar umfjöllunar. Ennfremur er unnið með undirstöðuatriði enskrar málfræði. Lögð er áhersla á notkun hjálpargagna, svo sem orðabóka, Netsins og annarra heimilda. Á þennan hátt er leitast við að styrkja lesskilning nemenda og efla virkan, hagnýtan og sérhæfðan orðaforða.

   Markmið  

 Nemendur

-    geti tjáð sig um almenn efni í ræðu og riti

-    geti lesið ýmiss konar fræðitexta, blaða- og tímaritsgreinar um margvísleg efni

-    þekki grunnhugtök bókmenntarýni

-    geti lesið og krufið skáldverk

-    geti nýtt sér bókmenntahugtök við umfjöllun um skáldverk

-    geti fjallað um skáldverk bæði munnlega og skriflega

-    geti aflað sér upplýsinga og unnið ýmiss konar verkefni úr texta

-    geti nýtt sér hjálpargögn, svo sem orðabækur og Netið

-    hafi vald á undirstöðuatriðum enskrar málfræði

-    geti gert greinarmun á formlegu og óformlegu málfari

-    geti skrifað skipulagt og rökstutt mál og notað orðaforða úr námsefninu á viðeigandi hátt

   Námsmat                                                                                             

Haust- og vorannarpróf eru munnleg og skrifleg. Auk þess er hluti einkunna fyrir ritunarverkefni, próf úr skáldsögum, skil á verkefnum og almenna ástundun.


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 10.02.2005