Enska í 1. bekk
ENS 1O4
Enska í 1. bekk
(Samsvarar ENS 102 og ENS 202 í Aðalnámskrá)
Námslýsing
Fyrst og fremst eru almennir textar við hæfi nemenda vandlega lesnir og sérstakar æfingar styrkja orðaforða, hlustun og meðferð máls. Skáldsögur og/eða smásögur við hæfi nemenda eru hraðlesnar. Mörg undirstöðuatriði enskrar málfræði eru rifjuð upp með verkefnum í málfræðibók. Nemendum er leiðbeint við notkun hjálpargagna, svo sem orðabóka og Netsins. Leitast er við að fá nemendur til að tjá sig á ensku, bæði í tali og með fjölbreyttum skriflegum æfingum. Á þennan hátt er stuðlað að auknum málskilningi og hagnýtum orðaforða með mismunandi lestrarlagi, hlustun og verkefnum af ýmsu tagi.
Markmið
Nemendur
- geti lesið margvíslega texta og skilið almennt talmál
- séu færir um að nýta í tali og riti orðaforða í samræmi við námsefni vetrarins
- geti skrifað skipulegan texta
- kunni flest undirstöðuatriði enskrar málfræði
- kunni að nýta sér hjálpargögn
Námsmat
Haust- og vorannarpróf eru skrifleg og munnleg. Auk þess er gefin einkunn fyrir skil verkefna og aðra almenna ástundun nemenda.
|