Franska 2
FRA 2O4
(Samsvarar að hluta FRA 203 og FRA 303 í Aðalnámskrá)
Námslýsing
Orðaforði er markvisst byggður upp með lestri, ritun, glósugerð, hlustun og aukinni áherslu á talþjálfun. Við talþjálfun er beitt þannig aðferðum að franskan verði nemendum töm. Flestar æfingar í tímum eru unnar í pörum eða hópum. Þar sem við á er farið í leiki og hlustað á tónlist eða talað mál. Ítarefni er tengt áhugasviði nemenda og/eða frönsku þjóðlífi.
Markmið
Nemendur
- skilji frönsku við daglegar aðstæður, á ferðalögum, opinberum stöðum og í atvinnulífi
- geti tjáð hug sinn, lýst aðstæðum og fólki og aflað sér fróðleiks með lestri nemendablaða, bóka eða efnis á Netinu
- geti talað um franska matarmenningu, kvikmyndir og árlega viðburði af nokkurri þekkingu
- kunni að beita mismunandi lestraraðferðum, t.d. hraðlestri og leitarlestri
- geti notað hjálpargögn svo sem sagnauppflettibók og orðabækur
Námsmat
Annareinkunnir byggjast á skriflegu prófi í lesskilningi, ritfærni og málfræðikunnáttu og á einkunnum fyrir skyndipróf, heimaverkefni, ástundun og virkni í tímum. Munnleg færni, framburður og tjáning er könnuð á kennslutíma.
|