Forsíða > Prentvænt

Þjófnaður í MS

1. desember 2010

Undanfarnar vikur hefur verið mikið um þjófnað í MS. Nemendur og starfsfólk er hvatt til að gæta mjög vel að eigum sínum. Vinsamlegast tilkynnið þjófnað strax á skrifstofu skólans og ykkur er jafnframt ráðlagt að kæra stuldinn til lögreglu.

Skólinn hefur brugðist við þessu ástandi með auknu eftirliti í skólanum og nú er verið að setja upp læstar hirslur hjá baðverði þar sem nemendur geta fengið að geyma verðmæta smáhluti á meðan þeir eru í íþróttum. Einnig er hægt að leigja læsta skápa fyrir 1.500 kr. á ári og er áhugasömum bent á að hafa samband við skrifstofuna.

Eldri fréttir


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 21.03.2004