Forsíða > Prentvænt

Uppgjör þemadaga

4. mars 2009

Nemendur MS söfnuðu fé fyrir Barnaheill á þemadögum. Nú er komið að því að gera upp söfnunarátakið og munu nemendur skólans afhenda Barnaheillum það sem safnast hefur um miðjan mánuðinn. Þeir nemendur sem eiga enn eftir að ganga frá greiðslum vegna söfnunardagsins geta greitt inn á reikningsnúmer 1154-15-201902. Kennitala reikningseiganda er 570489-1199. Greiðslur þurfa að berast í síðasta lagi mánudaginn 9. mars.

Skólinn færir nemendum bestu þakkir fyrir velvilja og stuðning við Barnaheill. Jafnframt er öllum þeim sem komu að þessu átaki færðar bestu þakkir fyrir stuðinginn.

Eldri fréttir


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 21.03.2004