Forsíða > Prentvænt

Foreldrafundir í 1. bekk

16. janúar 2007

Forvarnarfulltrúi MS, Valgerður Halldórsdóttir námsráðgjafi og sviðstjóri fundar dagana 15. til 18. janúar með foreldrum einstakra bekkja á fyrsta námsári. Þetta er liður í viðleitni skólans til að efla samstarf skólans við foreldra og forráðamenn nemenda og stuðla að auknu samstarfi og samráði foreldranna innbyrðis í forvarnarskyni. 

Þann 23. janúar kl. 20:00 verður síðan haldinn sameiginlegur fundur með foreldrum og forráðamönnum allra nemenda í 1. bekk. Þar fjallar rektor um skólasamfélagið í MS, sviðstjórar kynna kjörsvið innan námsbrauta og umsjónarkennarar funda með foreldrum hvers bekkjar.

Eldri fréttir


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 21.03.2004