Miðannarmatið
4. febrúar 2016
Miðannarmatið eða stöðumat haustannar fyrir nemendur í 1. og 2. bekk er nú aðgengilegt í Innu. Hægt er að sjá miðannarmatið annaðhvort undir einkunnablaði eða miðannarmati vinstra megin á forsíðunni eftir innskráningu í Innu. Mjög mikilvægt er að skoða niðurstöðurnar með foreldrum sínum. Bent er á að námsráðgjafar geta veitt góð ráð um skipulag og vinnubrögð í náminu. Útskýring á einkunnaskalanum G-V-Ó er hér neðar í bréfinu.
Viðmiðun fyrir einkunnagjöf í miðannarmati þar sem tekið er tillit til verkefna, prófa, virkni, ástundunar og raunmætingar:
G
Gott (frammistaða á bilinu 8 - 10) merkir að með sama áframhaldi mun nemanda ganga vel á haustannarprófum.
V
Viðunandi (frammistaða á bilinu 5 - 7) merkir að nemandi stendur sig þokkalega og mun með sama áframhaldi ná haustannarprófum.
Ó
Ófullnægjandi (frammistaða á bi linu 1 - 4) merkir að nemandi stendur sig illa og mun með sama áframhaldi falla á haustannarprófum.
Eldri fréttir
|