Miðannarmat er nú aðgengilegt í Innu
4. febrúar 2016
Miðannarmat er nú aðgengilegt í Innu fyrir nemendur í 1. og 2. bekk. Miðannarmatið er vinstra megin á forsíðu Innu undir Einkunnablað eða Miðannarmat. Nemendur eru hvattir til að skoða miðannarmatið vel og taka það alvarlega. Vonandi hafa sem flestir náð markmiðum sínum í náminu. En ef ekki þá er ennþá mikill tími til að taka sig á í náminu og gera enn betur en hingað til því önnin er aðeins rúmlega hálfnuð. Ef þið hafið fengið Ó í einhverri námsgrein þurfið þið að breyta námsvenjum ykkar í þeirri námsgrein til að ná ásættanlegum árangri í vor. Námsráðgjafar geta veitt góð ráð t.d. um námsaðferðir, skipulag námsins og tímastjórnun. Gott er að skoða miðannarmatið með foreldrum ykkar og þau geta fengið aðgang að Innu á forsíðu Innu (https://www.inna.is/Nemendur/) með því að setja kennitölu sína undir: Sækja lykilorð.
Eldri fréttir
|