Undirritun samkomulags um 2800 fermetra viðbyggingu við MS
5. febrúar 2016
Það var stór stund í sögu skólans þegar ráðherra mennta- og menningarmála, Illugi Gunnarsson, og borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, undirrituðu samkomulag um 2800 fermetra viðbyggingu við skólann. Framkvæmdin öll mun kosta rúman milljarð og er gert ráð fyrir að skólinn fái nýja byggingu afhenta vorið 2015. Þá mun áralangur draumur skólans um nauðsynlegar endurbætur og viðbót á húsnæðinu loksins rætast. Með nýrri byggingu verða til fleiri skólapláss í Reykjavík og aðstaða skapast til þess að taka á móti fjölbreyttari hópi nemenda auk þess sem aðgengi um skólann verður stórbætt, fjölnota salur verður tekinn í notkun og aðstaða til náms verður mun betri og svo mætti lengi telja.
Eldri fréttir
|