Blóm júlímánaðar er flagahnoðri
5. febrúar 2016
Flagahnoðri: Blóm júlímánaðar
Flagahnoðri (Sedum villosum) er blóm mánaðarins í MS að þessu sinni til að minna á fegurð og gildi hins smáa en blóm flagahnoðrans eru 6-10 mm í þvermál og plantan er aðeins 3-8 sm að hæð.
Samkvæmt vef Náttúrufræðistofnunar Íslands er flagahnoðrinn algengur um allt land, sjá Plöntuvefsjá, og blómgast í júní.
Helstu búsvæði flagahnoðrans eru samkvæmt Íslensku plöntuhandbók Harðar Kristinssonar (3. útg. Rv. 2010) rök flög og blautar, leirkenndar lækjar- og áreyrar. Einmitt þar sem ekki er von á að örsmá fögur blómplanta gleðji augað.
Á annarri hæð aðalbyggingar skólans er bókin Flora Islandica (Rv. 2008) opin á blaðsíðu 184 þar sem sjá má plöntuna en bókin skartar einmitt blómateikningum Eggerts Péturssonar sem upphaflega voru gefnar út sem myndefni í Íslenskri flóru Ágústs H. Bjarnasonar.
Flagahnoðrinn er af helluhnoðraætt. Í bókinni Íslensk flóra (Ágúst H. Bjarnason, 1994) segir meðal annars að plantan sé öll meira eða minna móleit eða rauðleit. Krónublöðin séu í fyrstu mjög ljósrauð en verði smám saman sífellt fjólublárri og að á hverju krónublaði sé djúp miðrák þar sem liturinn sé sterkastur. Flagahnoðri sé einnig þekktur undir nafninu meyjarauga.
Nánari upplýsingar um flagahnoðra má meðal annars finna á vefnum Flóra Íslands og Wikipedia þaðan sem myndin hér að neðan er fengin.
Eldri fréttir
|