Segið ykkar skoðun!
5. febrúar 2016
Vakin skal athygli á tvenns konar hugmyndakössum sem skólinn hefur tekið í notkun til að bæta leiðir nemenda, kennara og annarra starfsmanna til að láta í ljós álit sitt í skólastarfinu. Annars vegar er hugmyndakassi í pósthólfarekka á gangi framan við skrifstofu og hins vegar er hugmyndakassi á Námsnetinu. Ætlunin með þessum hugmyndakössum er að opna öllum einstaklingum skólans greiða leið til að koma hugmyndum um nýjungar í skólastarfinu á framfæri.
MS-ingar eru hvattir til að tjá sig um hvaðeina sem tengist skólastarfinu, koma með ábendingar um það sem betur má fara og hrósa því sem vel er gert.
Eldri fréttir
|