Ráðleggingar um próf og prófreglur
29. apríl 2011
Ráðleggingar til nemenda vegna prófa
Prófundirbúningur
· Gerðu vinnuáætlun til að nýta tímann sem best.
· Skipuleggðu hvernig þú ætlar að vinna hvern dag á prófatímanum.
· Gott er að vinna í um 30 mínútur og taka svo stutt hlé.
· Farðu vel yfir allt sem þú hefur unnið í tengslum við hverja námsgrein, námsefni, glósur, verkefni og gömul próf og hafðu það tiltækt þegar þú undirbýrð þig fyrir prófið.
· Veldu þér stað þar sem þú ert í næði og sittu við borð.
· Slökktu á síma og margmiðlunartækjum á meðan þú lærir.
· Hugurinn þarf að vera virkur þegar þú lærir.
· Upprifjun og endurtekning er virkasta leiðin til að festa atriði í langtímaminni.
· Mundu að það þarf líka að gera ráð fyrir tíma til að slaka á og hvíla sig.
· Gættu þess að fá nægan svefn.
· Mikilvægt er að borð hollan mat og gott að taka inn vítamín og lýsi.
· Einbeiting í námi skilar árangri.
Próftaka
· Mættu tímanlega í prófið.
· Farðu í prófið með jákvæðu hugarfari - ég geri eins vel og ég get.
· Hafðu meðferðis öll nauðsynleg áhöld og skriffæri.
· Hlustaðu vel á allar leiðbeiningar kennara í upphafi prófs.
· Lestu vandlega öll fyrirmæli á prófblaðinu.
· Merktu prófið með fullu nafni og bekk.
· Lestu yfir prófið í upphafi og punktaðu hjá þér minnisatriði.
· Ekki dvelja of lengi við atriði sem þú manst ekki eða skilur ekki strax, geymdu þau þar til síðar í prófinu.
· Einbeittu þér vel að prófinu sjálfu og láttu ekki truflast af umhverfinu.
· Notaðu allan próftímann.
· Ætlaðu þér tíma í lok prófsins til að fara yfir prófið.
· Láttu það ekki hafa áhrif á þig þegar aðrir fara að skila prófinu.
Prófreglur
-
Nemendum ber að koma tímanlega til prófs. Á tilkynningatöflu í anddyri sjá nemendur í hvaða stofu þeir eiga að taka próf.
-
Nemandi má ekki vera í yfirhöfn né hafa hana á baki stólsins og ekki má hafa neitt á borði nema skriffæri og prófgögn. Í hverri stofu er eitt borð ætlað fyrir töskur og yfirhafnir. Pennaveski, farsímar og nesti má vera á gólfinu við hlið borðsins.
-
Fagkennari kemur tvisvar í stofu í tveggja tíma próf eða styttra.
-
Ekki má hafa kveikt á farsíma í prófi.
-
Svindl á prófi hefur alvarlegar afleiðingar.
-
Ekki má skila prófúrlausn fyrr en klukkustund er liðin af próftímanum.
-
Veikindi ber að tilkynna skrifstofu skólans áður en próf á að hefjast. Veikindi verður að staðfesta með vottorði (á sama hátt og önnur veikindi).
Eldri fréttir
|