Fræðslu- og aðalfundur foreldrafélags MS
12. nóvember 2009
Stjórn foreldrafélags Menntaskólans við Sund boðar til fræðslu- og aðalfundar félagsins þriðjudaginn 17. nóvember kl. 20:00 í stofum 13 og 14 í MS.
DAGSKRÁ: Hefðbundin aðalfundarstörf
Forvarnarstarf MS Lóa Steinunn Kristjánsdóttir forvarnarfulltrúi MS kynnir forvarnir í skólanum.
Að þora að stíga skrefið og skapa nýja hefð Arna Einarsdóttir kynnir nýlegt meistaraverkefni sitt þar sem leitast er við að varpa ljósi á þætti í lífsstíl og umhverfi framhaldsskólanema, sem geta stutt þá ákvörðun að þeir drekka ekki áfengi. Verkefnið er byggt upp í kringum þrjá meginþætti; nemendur, foreldra og skóla og hvernig margvíslegir áhrifaþættir leika þar lykilhlutverk í vali ungs fólks og neysluhegðun.
Að erindi loknu er boðið upp á umræður og fyrirspurnir. Gert er ráð fyrir að fundi ljúki um klukkan 21:30.
Stjórn foreldrafélagsins hvetur foreldra til að mæta og eiga saman góða og uppbyggilega stund. Með kveðju, f.h. stjórnar foreldrafélags MS Þröstur Gunnarsson tag@internet.is
Eldri fréttir
|