Fræðslufundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema í MS
9. nóvember 2007
Fræðslufundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema verður haldinn í Menntaskólanum við Sund fimmtudaginn 15. nóvember næstkomandi kl. 18:00 – 19:30 í Bjarmalandi (fyrirlestrarsalur á 1. hæð).
Tilgangurinn er að fræða foreldra og forráðamenn nemenda í 1. bekk almennt um námsaðferðir nemenda og kennsluaðferðir í stærðfræði. Áhersla verður lögð á að kynna hvernig foreldrar og forráðamenn geta stutt við heimanám barna sinna og undirbúning þeirra fyrir próf.
Dagskrá: Kl. 18:00 – 18:30 Námsaðferðir nemenda og stuðningur foreldra á prófatíma: Björk Erlendsdóttir, forstöðumaður námsráðgjafar og Hannes Hilmarsson, námsráðgjafi.
Kl. 18:30 – 19:30 Náms- og kennsluaðferðir í stærðfræði: Ágúst Ásgeirsson fagstjóri í stærðfræði, Halldór Ingi Hannesson og Hannes Hilmarsson kennarar í stærðfræði.
Eldri fréttir
|