Fundur með foreldrum/forráðamönnum nýnema 18. september 2007
11. september 2007
Fundur verður haldinn með foreldrum og forráðamönnum nýnema í Menntaskólanum við Sund þriðjudaginn 18. september nk. kl. 19:45. Áætlaður fundartími eru tvær klukkustundir. Tilgangur fundarins er að skapa góð tengsl við foreldra og forráðamenn nýnema, að kynna skólann og starfsemina í vetur og svara fyrirspurnum. Foreldrum/forráðamönnum gefst kostur á að hitta umsjónarkennara barna sinna og ræða við þá en auk þess verða stjórnendur skólans og námsráðgjafar á staðnum.
Dagskrá: 1. Ávarp: Már Vilhjálmsson rektor 2. Að hefja nám í MS: Hjördís Þorgeirsdóttir konrektor 3. Ráðgjöf í skólanum og foreldranet MS: Björk Erlendsdóttir námsráðgjafi 4. Fundur með umsjónarkennara: 1. A Pétur Rasmussen, 1. B Björg Ólínudóttir, 1. C Helgi Jónsson, 1. D Brynhildur Einarsdóttir, 1. E Ásgeir Guðjónsson, 1. H Jóna Torfadóttir, 1. J Þorbjörn Guðjónsson, 1. K. Sjöfn Guðmundsdóttir, 1. L Steinunn Egilsdóttir.
Eldri fréttir
|