Eineltismál-gátlisti um vinnuferli

Forsíða > Þjónusta > Prentvænt

Námsráðgjöf

Það starfa tveir námsráðgjafar við skólann: Björk Erlendsdóttir er forstöðumaður námsráðgjafar í skólanum og með henni starfar Hildur Halla Gylfadóttir  náms- og starfsráðgjafi. Markmið ráðgjafar í skólanum er að sinna nemendum á faglegan hátt í námi þeirra og einkamálum. Ráðgjöfin er veitt í trúnaði við nemendur. Ráðgjafinn gætir hags­muna ein­staklinga og hópa. Hann leitast við að vinna á fyrir­byggjandi hátt með það fyrir augum að nemendum takist að skapa sér viðunandi vinnuskilyrði heima og í skóla.

Starfsmenn

Tveir ráðgjafar starfa við námsráðgjöfina, Björk Erlendsdóttir og Hildur Halla Gylfadóttir. Viðtals­her­bergi ráðgjafa eru tvö; merkt námsráðgjöf, á þriðju hæð í aðalbyggingu, Loftsteini. 

Tímapantanir
Nem­endur geta pantað tíma hjá námsráðgjafa bæði símleiðis og á netföngunum; bjorke hjá msund.is og hildurhg hjá msund.is Foreldrum og for­ráða­mönnum er ennfremur velkomið að nýta sér ráð­gjöfina.

Vinnuaðferðir

Ráðgjöfin skiptist milli námsráð­gjafar og persónulegrar ráðgjafar en áherslan er á að nemendur eigi kost á góðri námsráðgjöf allan sinn námsferil. Unnið er út frá heildar­­sýn á aðstæður einstaklingsins. Þá getur ráð­gjafinn haft milligöngu um tilvísanir á sérfræði­aðstoð. Ennfremur er veitt hópráðgjöf s.s. í sjálfsstyrkingu og prófkvíða.

Skólakynningar eru hluti af starfi ráðgjafans auk þess sem hann annast upplýsingamiðlun til nemenda, einkum þeirra sem eru að ljúka námi við skólann.

Ráðgjöf við aðra en nemendur

Námsráðgjafar geta veitt foreldrum, forráðamönnum, kennurum, skóla­stjórnendum og öðrum, sem tengjast nem­endum, ráðgjöf.


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 10.09.2014