Einkunnir og lágmarkskröfur í eldri námskrá (2. og 3. bekkur).
Útreikningur á einkunnum.
Lokaeinkunní námsgrein er reiknuð á mismunandi vegu eftir því hvort um framhaldsgrein eða stúdentsprófsgrein er að ræða:
· Lokaeinkunn í framhaldsgrein er meðaltal haustannareinkunnar og vorannareinkunnar.
· Lokaeinkunn í stúdentsprófsgrein í er reiknuð þannig að námseinkunn vegur 50% og stúdentsprófseinkunn 50%.
Aðaleinkunní er vegið meðaltal lokaeinkunna miðað við einingafjölda námsgreina á árinu.
Lágmarkskröfur
Nemandi hefur staðist námskröfur bekkjarins og öðlast rétt til að flytjast upp um einn bekk ef hann uppfyllir eftirfarandi lágmarkskröfur:
Vorannareinkunn í hverri framhaldsgrein eða prófseinkunn í hverri stúdentsprófsgrein: |
4,0 |
Lokaeinkunn í hverri grein: |
4,0 |
Aðaleinkunn: |
5,0 |
Nemandi sem hefur náð aðaleinkunn 5,0 eftir vorannarpróf en er hins vegar undir lágmarki í einni eða tveimur námsgreinum, á rétt á að þreyta endurtökupróf í viðkomandi námsgrein(um). Nemandi sem er undir lágmarki í þremur (eða fleiri) námsgreinum á skólaárinu, við uppgjör að loknum vorannarprófum, er fallinn í bekk.
Nemandi sem fellur á endurtökuprófi í einni námsgrein getur fengið leyfi skólaráðs einu sinni á skólaferli sínum til að setjast í næsta bekk ef einkunn hans er ekki lægri en 2 í endurtökuprófinu og námsgreinin er ekki aðalgrein á kjörsviði brautar samkvæmt lýsingu hennar.
Nemandi sem fellur með aðaleinkunn 4,0 eða hærri á rétt á að setjast aftur í sama bekk. Umsókn um slíkt þarf að koma fram strax eftir próflok á vorin.
Nemanda með aðaleinkunn lægri en 4,0 er ekki heimilt að setjast aftur í sama bekk. Sama á við um nemanda sem hættir í skóla eftir 1. mars nema með sérstöku leyfi frá rektor. Ef nemandi stenst ekki bekk í annarri atrennu er honum óheimil frekari skólavist.
Aðalgreinar brauta
Bekkur: |
Málabraut |
Félagsfræðabraut |
Náttúrufræðibraut |
Latínu-kjörsvið |
Hugvísinda-kjörsvið |
Félags-fræði-kjörsvið |
Hag-fræði-kjörsvið |
Líffræði-kjörsvið |
Umhverfis-kjörsvið |
Eðlis-fræði-kjörsvið |
1. bekkur |
Engin |
Engin |
Engin |
Engin |
Engin |
Engin |
Engin |
2. bekkur |
Íslenska |
Íslenska |
Félags-fræði |
Rekstrar-hagfræði |
Efna-fræði |
Efnafræði |
Eðlis-fræði |
Enska |
Enska |
Saga |
Stærð-fræði |
Stærð-fræði |
Stærðfræði |
Stærð-fræði |
3. bekkur |
Íslenska |
Íslenska |
Félags-fræði |
Hagfræði |
Líffræði |
Líffræði |
Eðlis-fræði |
Enska |
Enska |
Saga |
Stærð-fræði |
Eðlis-fræði |
Jarðfræði |
Stærð-fræði |
4. bekkur |
Íslenska |
Íslenska |
Félags-fræði |
Þjóð-hagfræði |
Líffræði |
Umhverfis-fræði |
Eðlis-fræði |
Enska |
Enska |
Saga |
Stærð-fræði |
Stærðfræði |
Stærð-fræði |
Stærð-fræði |
Fall í bekk
1. Nemandi sem nær ekki 5,0 í aðaleinkunn telst fallinn og verður að taka bekkinn aftur.
2. Nemanda sem nær aðaleinkunn, en er undir 4,0 í þremur eða fjórum greinum gefst ekki kostur á endurtökuprófum í MS.
3. Nemandi sem á að fara í endurtökupróf í MS getur ekki komið sér hjá því að taka það. Endurtökupróf er lokatilraun nemenda til að standast bekkinn.
Nemandi sem vill bæta námsstöðu sína og endurtekur námsgreinar, sem eru undir lágmarkseinkunn, í viðurkenndum framhaldsskóla í getur óskað eftir því að fá þær metnar.
|