Forsíða > Skólinn > Starfsfólk > Prentvænt

Helstu starfssvið við skólann

Rektor
ber ábyrgð á starfsemi skólans, fjárhagslegri sem og faglegri. Rektor ber ábyrgð á eignum og fjárreiðum og öðrum rekstri skólans. Rektor ræður starfsfólk, ber ábyrgð á inn­töku nemenda, hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi. Rektor ber ábyrgð á því að starfsmenn ræki skyldur sínar og njóti þeirra réttinda sem þeim ber. Rektor er framkvæmdastjóri skólanefndar og odd­viti skólaráðs.

Konrektor
er staðgengill rektors og honum til aðstoðar við daglega stjórn skólans. Hann hefur umsjón með faglegu starfi og sjálfsmati. Konrektor hefur umsjón með stundatöflugerð og útgáfu prófskírteina. Konrektor aðstoðar einnig m.a. við starfsmannahald, skipulagningu starfa, fjármál, vinnumat og launamál.

Kennslustjóri
hefur umsjón með nemendabókhaldi, þar á meðal skráningu nemenda, fjarvistarskráningu, mati á námi og útgáfu námsferla. Hann heldur utan um framkvæmd skólareglna. Kennslustjóri annast m.a. prófstjórn og gerð próftöflu. Kennslustjóri situr í skólaráði og er framkvæmdastjóri þess.

Námskrárstjóri

er faglegur stjórnandi sem hefur umsjón með námskrá skólans og heldur utan um þróun og breytingar á námskránni. Hann samhæfir vinnubrögð til að tryggja að skólastarfið sé í samræmi við námskrána. Námskrárstjóri skipuleggur og heldur utan um reglulega fundi með fagstjórum. Námskrárstjóri sér m.a. um skipulag valdaga og úrvinnslu gagna tengdum þeim.

Fagstjórar
hafa umsjón með kennslu og námsefni í einstökum námsgreinum eða námsgreinaflokkum. Þeir stýra vinnu við gerð námsáætlana innan fagsins og velja námsefni og ákveða yfirferð þess í samráði við kennara. Fagstjóri hefur eftirlit með því að námsmat uppfylli kröfur. Fagstjórar vinna með stjórn skólans að faglegri stefnumótun og endurskoðun námskrár. Fagstjórar boða fagfundi og stýra þeim. Fagstjórar gera tillögu um kennsluskiptingu auk þess að vera rektor til ráðuneytis varðandi ráðningamál.

Oddvitar

eru faglegir stjórnendur sem eru skólanum til ráðuneytis um þau mál er skólinn ákveður. Oddvitum ber að hafa frumkvæði að því að taka brýn og aðkallandi mál til umfjöllunar innan skólans.

 

Kennarar

annast, taka þátt í og bera ábyrgð á kennslu, undirbúningi kennslu, námsmati og faglegu samstarfi í kennslugreinum sínum m.a. gerð námsáætlana og prófa. Kennarar sjá um að skrá viðveru nemenda sinna, bjóða upp á viðtalstíma og sinna upplýsingagjöf vegna sjálfsmats og skólanámskrár. Kennarar sitja kennarafundi. Sjá nánar í 7. grein reglugerðar nr. 1100/2007 um starfslið og skipulag framhaldsskóla og um vinnumat í Kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra frá 2014.

Náms- og starfsráðgjafar
veita nemendum leiðsögn í persónulegum málum sem snerta námið og skólann. Náms- og starfsráðgjafi metur hvort unnt sé að leysa úr málum innan skólans eða hvort leita þurfi eftir sérhæfðari meðferð til viðeigandi sérfræðinga eða stofnana. Hann kemur upplýsingum þar um til skólameistara. Náms- og starfsráðgjafi skal m.a. skipuleggja og sjá um framkvæmd náms- og starfsfræðslu í skólanum, og annast ráðgjöf um náms- og starfsval nemenda. Sjá nánar í 9. grein reglugerðar nr. 1100/2007 um starfslið og skipulag framhaldsskóla.

Baðvörður
sér um þrif og hefur umsjón með íþróttasal og búningsklefum.  

Fjármálastjóri
vinnur við áætlanagerð, launamál, tölvubókhald og dagleg fjármál skólans. Hann leiðbeinir nemendafélaginu um fjármál þess.

Forstöðumaður bókasafns
heldur utan um rekstur bókasafns- og upplýsingamiðstöðvar skólans. Hann sér um innkaup og skráningu á bókum og öðrum safn­gögnum, annast útlán og aðstoðar nemendur og kennara við heimilda­leit og upplýsinga­öflun. 

Rekstrarstjóri húseigna
hefur eftirlit með viðhaldi og viðgerðum á húsnæði skólans og húsmunum og daglegri ræstingu, sem og mörgu fleiru. Hann opnar hús skólans að morgni og lokar þeimað kvöldi. Hann sér að mestu um samskipti við ýmsa iðnaðarmenn og gætir að ýmsum rekstri svo sem nýtingu hita, ljós og loftræstingar.

Skrifstofustjóri
skipuleggur starfsemi skrifstofunnar og stýrir verkefnum sem undir hana falla. Hann veitir allar almennar upplýsingar og þjónustu. Skrifstofustjóri tekur við  tilkynningum um veikindi nemenda og starfsmanna og gefur út vottorð og hefur umsjón með  einkunna- og fjar­vistabókhaldi.

Umsjónarmaður íþróttahúss
hefur umsjón með búnaði og útleigu íþróttahúss og frjálsri íþrótta­starf­semi nemenda.

Þjónustufulltrúi
sinnir almennum skrifstofustörfum undir stjórn skrifstofustjóra og skipuleggur vinnutíma sinn á skrifstofu í samráði við hann.  

Átaksstjóri um heilsueflandi framhaldsskóla
vinnur með vinnuumhverfisstjóra í samvinnu við Lýðheilsustöð að framgangi verkefnisins Heilsueflandi framhaldsskóli. Skólaárið 2016-2017 er höfuðáherslan á hreyfingu. Tengiliður: Rektor

Endurmenntunarstjóri
skipuleggur í samráði við stjórn skólans endurmenntun starfsmanna með áherslu á starfsþróun og nýsköpun í starfi starfsmanna. Tengiliður: Konrektor.

Félagsmálafulltrúar
hafa eftirlit og umsjón með félagslífi og öllum samkomum nemenda, innan skólans og utan, t.d. dansleikjum í samráði við stjórn skólans. Þeir sinna einnig forvörnum og fræðslu á því sviði í samvinnu við nemendafélag, forvarnarfulltrúa, foreldraráð og stjórn skólans. Félagsmálafulltrúar skulu funda að jafnaði tvisvar í mánuði með stjórn nemendafélagsins. Tengiliðir: Rektor og kennslustjóri.

Forvarnarfulltrúi
sinnir skipulagningu forvarna og fræðslu á því sviði í samvinnu við nemendur, foreldraráð, félagsmálafulltrúa og stjórn skólans.Tengiliður: Kennslustjóri

Hirðmeistari útskriftar
skipuleggur æfingar með væntanlegum útskriftarnemum og undirbýr útskriftarhátíð í samráði við stjórn skólans. Tengiliður: Rektor.

Jafnréttisfulltrúi
vinnur að jafnréttisstefnu skólans sem lýtur bæði að starfsfólki og nemendum skólans og stuðlar að framkvæmd aðgerðaáætlunar í jafnréttismálum á hverjum tíma í samvinnu við stjórn skólans. Jafnréttisfulltrúi vinnur með félagsmálafulltrúum og fulltrúum nemenda að gæðamati á útgáfuefni á vegum Skólafélags MS og stuðlar að því að jafnréttis kynjanna sé gætt í félagslífi nemenda. Tengiliður: Konrektor

Mætingastjóri
sér um skólasóknaruppgjör, mætingareinkunnir og mætingareiningar. Mætingastjóri fylgist markvisst með mætingu nemenda undir 18 ára aldri, vinnur með jafningjahópi nemenda með slaka skólasókn, tekur saman tölfræði um mætingu og situr fundi stjórnenda og námsráðgjafa um nemendamál. Tengiliður: Kennslustjóri

Sjálfsmatsstjóri
heldur utan um og skipuleggur sjálfsmatsverkefni í samráði við stjórn skólans og aðstoðar við gerð sjálfsmatsáætlunar og sjálfsmatsskýrslu. Tengiliður: Konrektor.

Verkefnisstjóri Námsnetsins
stýrir notkun og þróun á innra námsneti í skólanum í samstarfi við stjórn skólans. Hann aðstoðar kennara og er tengiliður skólans við rekstraraðila netsins. Tengiliður: Rektor.

Verkefnisstjóri um erlent samstarf
er tengiliður vegna samstarfsverkefna við erlenda aðila og aðstoðar við öflun, framkvæmd og skýrslugerð vegna styrkja fyrir samstarfsverkefni erlendis. Tengiliður: Konrektor
 

(uppfært 11.8.2016)

 


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 11.08.2016