Forsíða > Námið > Námsgreinar > Prentvænt

Landafræði

LAN 1F3

Almenn landafræði í 1. bekk, félagsfræðabraut

(Samsvarar LAN 103 í Aðalnámskrá)

Námslýsing

Fjallað er um landafræði sem fræðigrein, notagildi hennar og tengsl við aðrar fræðigreinar. Kortalestur, kortagerð og túlkun loftljósmynda er stór þáttur í náminu. Fjallað er um landnýtingu, breytingar á notkun lands og afleiðingar þess. Skilgreint er hvað felst í skipulagi lands og á hvaða stoðum slíkt skipulag hvílir. Gerð er grein fyrir undirstöðum efnahagslífs, nýtingu auðlinda og tengslum þessara þátta. Kynnt eru hug­tök lýðfræðinnar, vandamál er tengjast fólksfjölgun og breytingum á búsetumynstri og loks orsakir og afleiðingar fólksflutninga. Áhersla er lögð á að nemendur vinni nokkur sérhæfð en fjölbreytt verkefni sem krefjast upplýsingaöflunar úr fjölbreyttum heimildum.

   Markmið

Nemendur

-    þekki tvískiptingu fræðigreinarinnar og læri að beita vinnuaðferðum hennar við öflun upplýsinga og framsetningu

-    þekki mismunandi tegundir korta og kortvarpana, m.a. kosti þeirra og galla og þjálfist í notkun þeirra

-    kynnist undirstöðuatriðum fjarkönnunar

-    þjálfist í að reikna út mælikvarða og að nota bauganet jarðar

-    þekki helstu hugtök í landnýtingu og skipulagi, hvernig þessum málum er háttað á Íslandi, lagarammann og hvað framtíðin getur borið í skauti sér

-    geri sér grein fyrir á hvaða auðlindum efnahagslíf landsins byggist og hvernig það tengist íslensku búsetumynstri

-    þekki til umræðunnar um nýtingu náttúruauðlinda þar sem iðnaður og ferðaþjónusta takast á

-    þekki dreifingu, samsetningu, þróun og hreyfingu fólksfjölda og mikilvæg vandamál tengd búsetuþróun

-    geti skilgreint og notað helstu hugtök og kenningar lýðfræðinnar og notað tölfræðileg gögn í því samhengi

-    hafi skilning á tengslum milli fólksfjölda og landnýtingar og vandamálum í sambandi við auðlindaþurrð, mengun og eyðileggingu vistkerfa

   Kennsluaðferðir

Helstu hugtök og kenningar eru kynnt í fyrirlestrarformi, með aðstoð myndbanda, skyggna, Internetsins, dagblaða o.fl. Nemendur vinna að styttri og lengri verkefnum, t.d. tengd kortagerð, gerð mannfjöldapýramída, dreifingu fólks á Íslandi, byggðaþróun o.s.frv. Í stærri verkefnunum er gert ráð fyrir að nemendur tvinni saman þætti námsins til að fjalla um málefni sem eru til umfjöllunar í samfélaginu á hverjum. Próf eru haldin reglulega úr afmörkuðu efni hverju sinni.

   Námsmat

Skriflegt stúdentspróf er haldið í annarlok. Námseinkunn byggist á verkefnum, skyndiprófum og ástundun á kennslutímanum.


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 02.05.2011