Forsíða > Námið > Námsgreinar > Jarðfræði > Prentvænt

Jarðfræði 1.N

  JAR 1N6

   Jarðfræði í 1. bekk,

   náttúrufræðibraut

      (Samsvarar NÁT 113 og JAR 103 í Aðalnámskrá)

      Námslýsing

      Nemendur kynnast jarðfræði sem vísindagrein, hugsunarhætti hennar og  

      aðferðum. Fjallað er um almenna jarðfræði og sérstaklega jarðfræði

      Íslands. Um eldvirkni, storkuberg, eldgos, eldstöðvar, hraun og gjósku,

      innskot, jarðhita og jarðskjálfta. Ennfremur um grunnvatn, vatnsföll,

      ströndina og hafsbotninn, jökla, stöðuvötn, frost og þíðu, jarðveg og

      jarðvegseyðingu, vinda, landmótun þeirra, veðrun og setmyndun. Fjallað er

      um innri gerð jarðar, flekaskrið og uppruna Íslands, gosbelti og

      eldstöðvakerfi. Lýst er tilurð sólkerfisins, jarðarinnar og tunglsins. Farið er

      yfir stutt ágrip af jarðsögu Íslands. Þá er fjallað um hagnýti jarðfræðinnar,

      hagnýt jarðefni, erlend og íslensk. Ennfremur um orkugjafa, kol, olíu og

      gas, vatnsorku og jarðvarma. Einnig um grunnatriði korta og sniða og vikið

      er að snúningi jarðar og samspili jarðar, tungls og sólar.

 

      Markmið

      Nemendur

-   kynnist jarðfræði og jarðvísindum sem vísindagreinum, grunnþekkingu þeirra, hagnýti, orðaforða og hugsunarhætti

-   verði læsir á landslag Íslands og smærri jarðfræðifyrirbæri, skilji þau og geti útskýrt fyrir öðrum

-   átti sig á landmótun, grunnvatni, vatnsföllum, ströndinni, jöklum, gróðurlendi, jarðvegseyðingu og frostverkunum

-   þekki til eldvirkni, storkubergs, eldgosa, eldstöðva, hrauna og gjósku, innskota, jarðhita, jarðskjálfta og flekaskriðs

-   átti sig á vatnsöflun, jarðvegsmyndun og hagnýtum jarðefnum, einkum á Íslandi

-   hafi nokkra hugmynd um tengsl jarðfræði og mannvirkjagerðar

-   þekki til orkuöflunar mannkyns og sérstaklega vatnsafls- og jarðvarmavirkjana Íslendinga

-   kannist við helstu íslenskar steindir og storkubergstegundir

-   þekki hugmyndir vísindanna um uppruna jarðar og jarðsögu Íslands

-   séu sér meðvitaðir um jarðrask og mengun sem hlýst af umsvifum manna, kannist við umhverfismat og alþjóðlega samninga þar að lútandi

-   þekki merkustu staði í jarðfræði Íslands og þekki nokkuð til berggrunns einstakra landssvæða.

      Námsmat

      Stúdentspróf er að vori úr námsefni beggja anna. Námseinkunn er gefin

      fyrir skyndipróf, ritgerð, vinnubók og önnur verkefni og ástundun á báðum

      önnum.


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 02.02.2011