Forsíða > Námið > Námsgreinar > Jarðfræði > Prentvænt

Jarðfræði 1.MF

JAR 1M3

Jarðfræði í 1. bekk, mála- og félagsfræðabraut

(Samsvarar NÁT 113 í Aðalnámskrá)

   Námslýsing

Í þessum áfanga er fram kynning á jarðfræði sem vísindagrein og notagildi hennar við íslenskar aðstæður. Þá eru teknir til umfjöllunar helstu efnisþættir jarðfræðinnar bæði af útrænum og innrænum toga þar sem megináhersla er lögð á nýtingu náttúrulegra auðlinda þ. á m. til orkuframleiðslu og umhverfismál. Námið er byggt upp sem þemanám og áhersla lögð á verkefnavinnu og sjálfstæð vinnubrögð.

   Markmið

Nemendur

-    fræðist um hlutverk jarðfræðinnar, þ. á m. tengsl hennar við
     aðrar vísindagreinar og notagildi með íslenskar aðstæður í huga
-    geri sér grein fyrir myndun og mótun jarðar bæði af innrænum 
     og útrænum toga
-    kynnist jarðfræðilegri myndun helstu náttúrulegra orkugjafa jarðar
-    kunni skil á nýtanlegum jarðefnum (bæði fyrr og nú) hér á landi
     og átti sig á þeim umhverfisáhrifum sem stafa af nýtingu þeirra
-    fræðist um meginforsendur og uppbyggingu vatnsafls- og
      jarðvarmavirkjana og geri sér grein fyrir umhverfisáhrifum þessara
      mannvirkja, s.s. spillingu náttúruperlna, jarðrask og mengunarhættu

   Námsmat

Greinin er kennd eina önn. Stúdentspróf er í lok annar og gefin er námseinkunn fyrir verkefni, skyndipróf og ástundun á önninni.


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 22.08.2005