Þýska 4
ÞÝS 4M5
(Samsvarar ÞÝS 503 og (að hluta) ÞÝS 703 í Aðalnámskrá)
Námslýsing
Útlistun málfræðiatriða er að mestu lokið og kennslan fer því í ríkara mæli fram á þýsku. Lögð er áhersla á fjölbreytni í textavali. Myndefni, t.d. bíómyndir og landkynningarefni, fær aukið vægi. Megináhersla er nú lögð á sjálfstæða vinnu nemenda við að tileinka sér námsefnið.
Markmið
Nemendur
- skilji daglegt mál um almenn efni
- beiti málnotkunarreglum óhikað
- geti greint frá lífi, högum og menningu fólks og staðháttum í þýskumælandi löndum
- taki þátt í samræðum um þekkt efni, svo sem lesnar sögur og önnur nærtæk atriði úr daglegu lífi, áhugamál, atvinnu, skólann o.fl.
- hraðlesi þýska skáldsögu og geti skýrt frá efni hennar munnlega og skriflega
- skrifi langa ritgerð með hjálp orðabóka
Námsmat
Stúdentspróf að vori eru munnlegt og skriflegt. Námseinkunn byggist á frammistöðu nemenda á haustannarprófi, en aðallega á vinnu þeirra og ástundun á vorönn.
|