Forsíða > Námið > Námsgreinar > Þýska > Prentvænt

Þýska 3

ÞÝS 3O4 / ÞÝS 3M5 

(ÞÝS 3O4 samsvarar í Aðalnámskrá ÞÝS 303 (að hluta) og ÞÝS 403; í ÞÝS 3M5 bætist við sem svarar ein eining úr ÞÝS 503 í Aðalnámskrá)

   Námslýsing

Hlustun og tal er þjálfað markvisst. Nemendur öðlast meiri þjálfun í para- eða hópvinnu til þess að standa skil á ákveðnu efni frammi fyrir bekknum. Jafnframt er aukin áhersla lögð á sjálfstæðan lestur nemenda og sjálfstæð vinnubrögð við lausn verkefna sem lestrinum tengjast. Markviss vinna í tölvustofum heldur áfram.

   Markmið

Nemendur

-    skilji talað mál um daglegt líf, umhverfi og eigin líðan

-    taki þátt í stuttu samtali um undirbúið efni

-    beiti málnotkunarreglum rétt

-    geti lesið og skilið meginefni fjölbreyttra texta, t.d. unglingabækur og greinar í blöðum og tímaritum um valið efni

-    geti greint í stuttri ritgerð frá meginefni lesins texta

   Námsmat

Framhaldseinkunnir:Annareinkunnir byggjast á skriflegum prófum og einkunnum fyrir skil á verkefnum og aðra almenna ástundun á kennslutíma.

Stúdentseinkunnir:Stúdentspróf að vori eru munnleg og skrifleg. Námseinkunn byggist á frammistöðu nemenda á haustannarprófi, en aðallega á vinnu þeirra og ástundun á vorönn.


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 01.12.2004