Þýska 2
ÞÝS 2O4
(Samsvarar að hluta ÞÝS 203 og ÞÝS 303 í Aðalnámskrá)
Námslýsing
Orðaforði og málfræðiatriði, sem nemendur hafa tileinkað sér er rifjaður upp. Síðan er bætt ofan á þann grunn. Ein til tvær léttlestrarbækur eru lesnar, þar sem stuðst er við glósur og orðabækur. Lögð er áhersla á hópvinnu nemenda í tímum. Skipuleg vinna í tölvustofum heldur áfram.
Markmið:
- Nemendur geti skilið öll fyrirmæli kennarans í kennslustofunni
- skilji daglegt talmál með almennum grunnorðaforða
- geti af nokkru öryggi í einföldum setningum tjáð sig munnlega um skoðanir sínar og þau málefni sem fjallað hefur verið um
- beiti málfræðireglum rétt
- geti lesið nokkuð langa texta sjálfstætt og greint aðalatriði þeirra
- geti skrifað útdrátt úr lesnum sögum og persónuleg bréf og lýst myndum skriflega
- geti nýtt sér orðabækur
Námsmat
Annareinkunnir byggjast á skriflegum prófum og einkunnum fyrir skil á verkefnum og aðra almenna ástundun á kennslutíma.
|