Spænska í 4.M
SPÆ 3O4
Spænska í 4. bekk, málabraut
(Samsvarar SPÆ 303 (að hluta) og SPÆ 403 í Aðalnámskrá)
Námslýsing
Nemendur þjálfast í að segja frá atburðum í þátíð eða framtíð og að endursegja nokkuð langa texta. Þeir lesa bókmenntir og nytjatexta og vinna m.a. að þýðingum og endursögnum úr þeim. Mikil áhersla er lögð á munnlega tjáningu og að tileinka sér orðaforða með notkun orðabóka, m.a. spænsk-spænskra.
Þjálfuð er notkun viðtengingarháttar nútíðar og þátíðar og skildagatíðar. Fjallað um orðasambönd, sem geta tekið með sér viðtengingarhátt og/eða framsöguhátt. Þjálfuð rétt notkun þátíða í beinni ræðu og óbeinni. Nemendur fá markvissa ritþjálfun þar sem unnið er með málfræði, stíl og orðaforða.
Smásögur, skáldsögur og/eða ljóð eru lesin og verkefni unnin upp úr þeim. Nemendur kynna sér fjölbreyttan menningarheim spænskumælandi þjóða og bera saman við sinn eigin.
Markmið
Nemendur
- öðlist öryggi í framburði
- séu færir um að tala óhikað og lipurlega
- geti rætt um viðfangsefni sem eru tengd námsefninu og tjáð skoðanir sínar
- geti endursagt sögur og tekið þátt í óundirbúnu samtali
- hafi kynnt sér framburð mismunandi landsvæða
- kunni að nota mismunandi tíðir sagna, viðtengingarhátt og skildagatíð
- geti skilið orðasambönd sem snerta hin ýmsu málefni
- nái megininnihaldi í samtali nokkurra einstaklinga
- hafi tileinkað sér orðaforða í kennslubók og nytjatextum og hafi góðan almennan orðaforða
- hafi dýpkað skilning sinn á flóknum textum
- hafi kynnt sér menningarþætti og landshætti ýmissa landa rómönsku Ameríku
Námsmat
Stúdentspróf er munnlegt og skriflegt. Námseinkunn er fyrir vinnu nemenda yfir veturinn.
|