Efnafræði 2. N(l,u)
EFN 2N6
Efnafræði í 2. bekk, náttúrufræðibraut, líffræði- og umhverfiskjörsviði
(Samsvarar EFN 203 og EFN 303 í Aðalnámskrá)
Námslýsing
Fjallað er um samband hita, þrýstings og rúmmáls fyrir gastegundir. Ennfremur um helstu gerðir efnahvarfa og farið dýpra í magnbundna útreikninga. Fjallað er um ýmsa þætti tengda efnahvörfum, jafnvægishugtakið og leysni salta. Þá er einnig fjallað um oxunar-/afoxunarhvörf og farið inn á svið rafefnafræðinnar. Þetta er tengt dæmum úr umhverfi nemenda og íslenskum aðstæðum, s.s. álframleiðslu og ryði. Fjallað er nokkuð ítarlega um sýrur og basa og helstu þætti sýru-/basahvarfa. Skoðað er hvernig eiginleikar efna og efnaflokka eru háðir staðsetningu þeirra í lotukerfinu. Rækilega er fjallað um valin frumefni úr hópi málma og málmleysingja. Nemendur fást við verklegar æfingar og skýrslugerð. Gerðar eru kröfur um sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
Markmið
Nemendur
- þekki gaslögmálið og hugmyndir um kjörgas og geti í því sambandi útskýrt samband þrýstings, rúmmáls og hita fyrir kjörgas, notað gaslögmálið til að reikna rúmmál, hita og þrýsting, útskýrt hugtakið hlutþrýstingur og þekki samband hlutþrýstings, mólstyrks og heildarþrýstings
- þekki helstu gerðir efnahvarfa en í því felst að þekkja í sundur oxunar-/afoxunarhvörf, sýru-/basahvörf og fellingarhvörf og geta lokið við efnajöfnur sem lýsa efnahvörfum af þessum gerðum
- geti framkvæmt útreikninga tengda massahlutföllum í efnahvörfum, fundið takmarkandi þátt, ofgnótt, afgang og nýtni
- öðlist skilning á varmabreytingum í efnahvörfum en í því felst að geta útskýrt hugtakið hvarfavarmi, notað lögmál Hess til að reikna hvarfavarma og þekkja hugtakið myndunarvarmi
- kunni skil á helstu atriðum varðandi hraða efnahvarfa en í því felst að geta lesið úr hraðajöfnu efnahvarfs, þekkja hugtakið hraðafasti, þekkja tengsl hvarfgangs og hraðajöfnu, geta útskýrt áhrif hita, mólstyrks og hvata á hraða efnahvarfa, þekkja hugtakið virkjunarorka og geta teiknað orkulínurit efnahvarfs
- kunni skil á jafnvægishugtakinu og geti beitt jafnvægislíkingu efnahvarfs við útreikninga en í því felst að geta ritað jafnvægislíkingu efnahvarfs og notað hana til að reikna jafnvægisfasta eða jafnvægisstyrk
- þekki áhrif ytri þátta, svo sem hita, þrýstings og breytinga á mólstyrk, á jafnvægisstöðu og jafnvægisfasta efnahvarfs
- þekki helstu atriði oxunar-/afoxunarhvarfa en í því felst að geta lýst rafeindaflutningi í oxunar-/afoxunarhvarfi, þekkja oxara og afoxara í oxunar-/afoxunarhvarfi, þekkja samhengið milli hálfhvarfa og heildarhvarfs og geta skrifað hálfhvörf oxunar-/afoxunarhvarfs og kunna meginreglur um oxunartölur
- þekki grundvallaratriði rafefnafræði en í því felst að geta lýst galvaníhlöðu, skrifað hlaðskema fyrir galvaníhlöðu, lýst staðalvetnishálfhlöðu, notað staðalspennu hálfhvarfa til að reikna staðalíspennu galvaníhlöðu, þekkt tengsl íspennu galvaníhlöðu og fríorkubreytingar hlöðuhvarfsins, geta notað jöfnu Nernsts, þekkja spennuröð málmanna og hugtakið vetnislosandi málmur
- kunni skil á sýru-/basahugtakinu og helstu atriðum sýru-/basahvarfa en í því felst m.a. að þekkja sjálfsjónun vatns og vatnsfastann, kunna skil á hugtakinu sýrustig, pH, geta reiknað pH fyrir rammar og daufar sýrur og basa út frá sýrufasta/basafasta og formlegum mólstyrk sýrunnar/basans, þekkja virkni pH-litvísa og jafnalausna, geta framkvæmt sýru-/basatítrun og unnið úr niðurstöðum hennar
Námsmat
Stúdentspróf er að vori úr námsefni 1. og 2. bekkjar. Námseinkunn er gefin fyrir skyndipróf, skýrslur, heimadæmi og ástundun á vetrinum.
|