Forsíða > Námið > Námsmat eldri námskrá > Prentvænt

Námskröfur í 4. bekk

Aðaleinkunn á stúdentsprófi

Á stúdentsprófskírteini eru skráðar í hverri námsgrein námseinkunn, stúdentsprófseinkunn og lokaeinkunn. Lokaeinkunn er jafnt vægi námseinkunnar (50%) og stúdentsprófseinkunnar (50%). Aðaleinkunn er vegið meðaltal lokaeinkunna.

Lágmarkskröfur í 4. bekk

Nemandi telst hafa staðist stúdentspróf ef hann uppfyllir eftirfarandi lágmarks­kröfur:

Stúdentsprófseinkunn í hverri námsgrein                      4,0

Aðaleinkunn                                                           5,0

Nemandi getur þó brautskráðst með tvær stúdents­prófseinkunnir undir 4,0 ef engin einkunn er undir 2,0. Ef þrjár stúdentsprófseinkunnir eru undir 4,0 má hann endurtaka einstök próf. Ef fjórar stúdentsprófseinkunnir eru undir 4,0 er nemanda ekki heimilt að endurtaka próf og telst því fallinn.


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 27.04.2016