Forsíða > Námið > Námsgreinar > Stærðfræði > Prentvænt

Stærðfræði 2.F(h)

STÆ 2H6

Stærðfræði í 2. bekk, félagsfræðabraut, hagfræðikjörsviði

(Samsvarar STÆ 313 og STÆ 363 í Aðalnámskrá)

   Námslýsing

Tölfræði og líkindareikningur I:Meginviðfangsefni eru umfjöllun um töluleg gögn og myndræna framsetningu á þeim með myndritum, einkennistölur fyrir gagnasöfn og dreifingu og undirstöðuatriði líkindareiknings á endanlegu útkomurúmi, þar á meðal frumatriði talningar- og fléttufræði. Ennfremur fjallað um líkindadreifingar og fylgni.

Föll og deildun:Meginviðfangsefni eru deildun algengra falla, línuleg bestun, runur og raðir og hagnýting þessara hugtaka til skýringar á fyrirbærum á sviði náttúru, samfélags og viðskipta.

   Markmið

Nemendur

-   kunni góð skil á undirstöðuhugtökum lýsandi tölfræði

-   hafi tamið sér fjölbreytt vinnubrögð og gagnrýnin viðhorf við vinnslu tölfræðilegra gagna

-   kunni góð skil á líkindahugtakinu

-   geti nýtt einfalda líkindadreifingu sem líkan við útreikning líkinda

-   geti reiknað út fylgni milli tveggja breyta og túlkað fylgnistuðla

-   geti hagnýtt sér þekkingu á vísisföllum

-   þekki jafnmunarunur og jafnhlutfallarumur og hagnýtingu þeirra í vaxtareikningi og greiðslur í viðskiptum

-   kynnist undirstöðuatriðum deildareikning

-   kynni reiknireglur um afleiður falla

-   geti hagnýtt deildareikning til að kanna föll

-   geti komið hagnýtum verkefnum um útgildi í stærðfræðilegan búning og leyst þau

-   geti leyst einföld dæmi um línulega bestun

-   geti komið hagnýtum verkefnum um línulega bestun í stærðfræðilegan búning og leyst þau á grafískan hátt

   Kennsluaðferðir

Kennari fer í aðalatriði texta og reiknar og útskýrir sýnidæmi eftir því sem þurfa þykir og tími vinnst til.  Annars er lögð megináhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda. Að nemendur vinni í hóp með öðrum að lausn verkefni. Áhersla lögð á notkun grafískra reiknivéla við lausn verkefna. Æfingar eiga nemendur að leysa sjálfir eða með aðstoð kennara ef með þarf.

   Námsmat

Annareinkunnir byggjast á prófum í lok anna og vinnueinkunn fyrir frammistöðu á hvorri önn.


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 03.02.2004