Stærðfræði 1.MF
STÆ 1M6 / STÆ 1F6
Stærðfræði í 1. bekk, mála- og félagsfræðabraut
(Samsvarar STÆ 103 og STÆ 263 í Aðalnámskrá)
Námslýsing
Jöfnur, rúmfræði og hlutföll: Meginviðfangsefnin eru á sviði rúmfræði en jafnframt er talnameðferð rifjuð upp og jöfnur. Fjallað er um nokkur hugtök evklíðskrar rúmfræði og hlutverk hennar í vestrænni menningu, hnitakerfi og jöfnu beinnar línu. Varpað er ljósi á hlutfallshugtakið frá mörgum hliðum.
Algebra, föll og talningarfræði: Lagður er grundvöllur að skilningi á tölum, fallhugtakinu og hagnýtingu þess og færni í algebru. Áhersla er lögð á hvernig nota má föll til að leysa hagnýt verkefni. Fengist er við undirstöðuatriði í mengja- og talningarfræði.
Markmið
Nemendur
- geti beitt fjölbreyttum vinnubrögðum við lausn stærðfræðilegra verkefna
- geti sett upp og leyst verkefni sem fela í sér jöfnur og formúlur
- nái tökum á hlutfallshugtakinu
- öðlist færni í röksemdafærslu
- þekki nokkur undirstöðuhugtök evklíðskrar rúmfræði
- þekki helstu reglur um einslögun, hlutföll og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi
- þekki undirstöðuhugtök hnitarúmfræði í sléttum fleti
- hafi góðan skilning á undirstöðuatriðum talnameðferðar og algebru
- kunni skil á einföldum aðferðum úr talningarfræði
- þekki fallhugtakið og aðgerðir á föllum
- þekki annars stigs margliður og geti leyst annars stigs jöfnur
- geti notað aflestur af gröfum falla til að leysa hagnýt verkefni og þrautir
Kennsluaðferðir
Kennari fer í aðalatriði texta og reiknar eða útskýrir sýnidæmi eftir því sem þurfa þykir og tími vinnst til. Annars er lögð megináhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og að þeir lesi vel texta og skoði eða reikni sýnidæmi.
Námsmat
Á málabraut (STÆ 1M6) er þreytt stúdentspróf að vori úr námsefni vetrarins. Námseinkunn er fyrir próf í lok haustannar og frammistöðu á báðum önnum.
Á félagsfræðabraut (STÆ 1F6) byggjast annareinkunnir á prófum í lok anna og vinnueinkunnum fyrir frammistöðu á hvorri önn.
|