Íslenska í 4.FN
ÍSL 4F4
Íslenska í 4. bekk, félags- og náttúrufræðibraut
(Samsvarar einkum áfanga ÍSL 503 í Aðalnámskrá)
Lýsing
Nemendur fást við bókmenntir og bókmenntasögu 20. aldar, í samhengi við strauma og stefnur í þjóðfélags- og menningarmálum hérlendis og erlendis. Þeir kynnast helstu höfundum aldarinnar, greina stíl og viðfangsefni ólíkra höfunda og lesa í því skyni valdar bókmenntir frá öldinni. Nemendur fást við ýmiss konar textasmíð, semja heimildaritgerð og kynnast þannig fræðilegum vinnubrögðum. Brýnt er fyrir þeim að taka þátt í umræðum, sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og ástunda gagnrýna og vandaða úrvinnslu verkefna.
Markmið
Nemendur
- geri sér grein fyrir hlutverki bókmennta í samfélaginu og áhrifum þeirra á einstaklinga og samfélag - þekki helstu höfunda og verk í íslenskri bókmenntasögu 1901- 2000 - þekki helstu strauma og stefnur í bókmenntum 20. aldar - hafi rækilega kynnt sér valin ljóð, smásögur og skáldsögur eftir 1900 og fjalli um verkin í ræðu og riti - þekki bragarhætti og kunni að greina myndmál og stílbrögð ljóða - skrifi ritgerðir sem byggjast á greiningu og túlkun texta með aðstoð hugtaka bókmenntafræðinnar - þjálfist í upplestri eigin texta og annarra - hafi lært til verka við að semja fræðilega heimildaritgerð þar sem þeir afli sér m.a. heimilda á Netinu - kynni sér leikbókmenntir með því að sjá eina leiksýningu og fjalla um hana.
Námsmat
Stúdentspróf að vori er skriflegt úr námsefni skólaársins. Námseinkunn byggist á haustannarprófi, skyndiprófum, ritgerðum og öðrum verkefnum og ástundun yfir skólaárið.
|