Námslýsing hagfræðikjörsvið félagsfræðabrautar
Kjörsviðsverkefni á hagfræðikjörsviði félagsfræðabrautar
Allir nemendur í 4. bekk skulu velja sér 3 eininga kjörsviðsverkefni sem er lokaverkefni í einni af einkennisgreinum á kjörsviði sínu. Markmið með verkefninu er að dýpka þekkingu og skilning nemenda í aðalgrein á kjörsviði, auka ábyrgð og sjálfstæði þeirra í námi sínu og undirbúa þá enn betur undir ritgerðasmíð og skýrslugerð í námi á háskólastigi. Verkefnið verður unnið allt skólaárið og gert er ráð fyrir að vinna við það samsvari þremur kennslustundum á viku. Kennari metur bæði vinnuferlið og afurð verkefnisins.
Nemendur geta valið um kjörsviðsverkefni á sviði hagfræði.
Hagfræði
Námslýsing
Nemendur vinna rannsóknarverkefni þar sem þeir fá þjálfun í að beita rannsóknaraðferðum félagsvísindanna og sýna öguð vinnubrögð með því að fylgja vísindalegu rannsóknarferli. Ýmist getur verið um einstaklings-, para- eða hópverkefni að ræða. Nemendur velja viðfangsefni á sviði rekstrarhagfræði eða þjóðhagfræði í samráði við kennara. Einnig geta nemendur valið viðfangsefni annarra fræðigreina og skoðað það út frá hagfræðilegu sjónarhorni t.d. á sviði landafræði, umhverfisfræði og markaðsfræði.
Meginmarkmið áfangans er að gera nemandann hæfan til að vinna sjálfstætt að rannsóknarverkefni í hagfræði, beita öguðum vinnubrögðum og skrifa um það rannsóknarskýrslu.
Kennsluaðferð
Kennari stýrir og veitir nemendum leiðsögn við rannsóknarvinnuna allt ferlið en nemendur stunda sjálfstætt nám og bera sjálfir ábyrgð á framgangi vinnu við rannsóknina. Nemendur gera rannsóknaráætlun í upphafi, skrifa rannsóknarskýrslu og kynna rannsóknina í lok annarinnar með fjölbreyttum aðferðum, t.d. í formi dreifirits, veggspjalds, vefsíðu, myndbands, glærusýningar, fyrirlestrar eða á öðru formi sem kennari samþykkir.
Námsmat
Vinnuferlið við rannsóknina er metið út frá athugun á þátttöku nemenda í rannsóknarvinnu, dagbók, vinnublöðum og sjálfsmati nemenda. Metin er afurð rannsóknarinnar í formi rannsóknarskýrslu og kynningar nemenda á niðurstöðum rannsóknarinnar.
|