Forsíða > Námið > Námsgreinar > Kjörsviðsverkefni > A6: Námslýsingar > Prentvænt

Námslýsing líffræðikjörsvið náttúrufræðibrautar

Kjörsviðsverkefni á líffræðikjörsviði náttúrufræðibrautar

 

Allir nemendur í 4. bekk skulu velja sér 3 eininga kjörsviðsverkefni sem er lokaverkefni í einni af einkennisgreinum á kjörsviði sínu. Markmið með verkefninu er að dýpka þekkingu og skilning nemenda í aðalgrein á kjörsviði, auka ábyrgð og sjálfstæði þeirra í námi sínu og undirbúa þá enn betur undir  ritgerðasmíð og skýrslugerð í námi á háskólastigi. Verkefnið verður unnið allt skólaárið og gert er ráð fyrir að vinna við það samsvari þremur kennslustundum á viku. Kennari metur bæði vinnuferlið og afurð verkefnisins.

 

Nemendur geta valið um kjörsviðsverkefni á sviði líffræði og efnafræði.

 

Líffræði

 

  1. Nemandi aflar sér heimilda og tekur saman fróðleik um eitthvert tiltekið líffæri eða sjúkdóm. Efnið á að vera skýrt afmarkað og einkum skal reynt eftir föngum að afla upplýsinga er snerta íslenzkar aðstæður. Efninu er síðan skilað í formi ritgerðar, myndspjalda, stuttmyndar eða fyrirlesturs.

 

  1. Nemandi, sem hefur þegar tileinkað sér ákveðinn fróðleik innan líffræðinnar eða hefur einlægan áhuga á einhverju sérstöku viðfangsefni, getur sótt um það sérstaklega til fagstjóra í líffræði að fá að velja sér það. Hann skal gera fagstjóra grein fyrir þeirri ástæðu, að hann velur efnið og leggja fram drög að vinnuferlinu.

 

  1. Flóra og/eða fána. Nemandi skráir og safnar heimildum um tegundir plantna og/eða dýra (t.d. fugla) á einhverju tilteknu landsvæði eins og á sumarbústaðalandi, svo að dæmi sé tekið. Æskilegt er að merkja helztu líffélög (búsvæði) inn á loftmynd og teikna kort af svæðinu. Síðan má fjalla um, hvernig einstakar spildur eru notaðar, til dæmis til skógræktar eða uppgræðslu.

 

  1. Vistfræði. Nemandi aflar sér heimilda og tekur saman fróðleik um eitthvert tiltekið vistkerfi eða líffélag. Efnið á að vera skýrt afmarkað og einkum skal reynt eftir föngum að afla upplýsinga er snerta íslenzkar aðstæður. Efninu er síðan skilað í formi ritgerðar, myndspjalda, stuttmyndar eða fyrirlesturs.

 

 

Efnafræði

 

  1. Nemandi kynni sér stjóriðju á Íslandi (álver og málmblendi). Hann geri sér grein fyrir hvarfagangi við framleiðslu. Sérstaka áherslu mætti leggja á úrgang frá stóriðjuverum svo sem flúor, gjall, ryk, CO2 og annað. Hann skal einnig kynna sér mismunandi hreinsibúnað, kosti þeirra og galla. Nemandinn skal afla sér heimilda hjá fyrirtækjum í stóriðju, af netinu og frá umhverfisráðuneyti. Efninu er síðan skilað í formi ritgerðar, myndspjalda, stuttmyndar eða fyrirlesturs.

 

  1. Fituefni lífvera og notkun þeirra í iðnaði og til eldis. Nemandi kynni sér vel lípíð í lífverum og hlutverk þeirra þar. Síðan má kynna sér notkun þeirra í lýsi, hertu lýsi, olíum, nuddolíum, iðmefni, fóðurbæti, sápugerð og fleira. Efninu er síðan skilað í formi ritgerðar, myndspjalda, stuttmyndar eða fyrirlesturs.

Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 16.04.2007