Forsíða > Námið > Námsgreinar > Íslenska > Prentvænt

Íslenska i 1. bekk

ÍSL 1O4

Íslenska í 1. bekk

(Samsvarar ÍSL 102 og ÍSL 202 í Aðalnámskrá)

Námslýsing

Lestur bókmennta, greining þeirra og túlkun, er þungamiðja námsins. Lesin er fornsaga og nútímaskáldsögur. Beygingafræði er rifjuð upp og farið er yfir grunnhugtök í setningafræði. Nemendur fá þjálfun í stafsetningu, byggingu ritgerða, mismunandi málsniði, stílbrögðum og frágangi með margvíslegum skrifum. Nemendur eru þjálfaðir í munnlegri tjáningu og í aðferðum til að auka leshraða sinn.

Markmið

Nemendur

-    auki lestrarfærni sína og bókmenntaskilning
-    geti beitt hugtökum í bókmenntafræði við umfjöllun um 
      bókmenntir og dróttkvæði
-    öðlist öryggi í upplestri og framsögn
-    þjálfist í margs konar textagerð
-    læri uppbyggingu málsgreina, efnisgreina og ritgerða
-    þekki grunnhugtök í setningafræði og beygingafræði
-    öðlist öryggi og færni í réttritun
-    temji sér notkun orðabóka, handbóka og leiðréttingarforrita við
      frágang á texta
-    temji sér notkun tölva og margmiðlunarefnis við verkefnavinnu

Kennsluaðferðir

Kennsla er í samræmi við ofangreinda lýsingu. Ritunarkennsla fer m.a. fram í tölvustofu þar sem nemendur vinna ýmis verkefni undir leiðsögn kennara.

Námsmat

Haustannareinkunn byggist á símati, þ.e. einkunnum fyrir öll verkefni annarinnar, munnleg og skrifleg. Vorannareinkunn er fyrir próf í lok annar og að hluta til vinnueinkunn fyrir skrifleg og munnleg verkefni og ástundun.


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 26.01.2007