Lífsleikni
LKN 1O3
Lífsleikni í 1. bekk
(Samsvarar LKN 103 í Aðalnámskrá.)
Námslýsing
Námið skiptist í eftirfarandi þætti: Kynningu á skólastarfi í Menntaskólanum við Sund almennt, s.s. skólareglur, félagslíf og námstækni. Sjálfskoðun og sjálfstyrkingu. Tjáningu og framkomu. Lífsstíl, ábyrgð og fjölskyldumál. Menningu, listir og umhverfismál. Alþjóðasamfélagið og fordóma.
Markmið
Nemendur - öðlist aukna færni í tjáskiptum, framkomu og gagnrýnni hugsun - verði meðvitaðri um eigin lífsstíl og ábyrgð - fái þjálfun í að ræða siðferðileg álitamál og verði sér meðvitaðri um fordóma og hvernig þeir birtast í samfélaginu - rækti með sér sköpunargáfu og fái innsýn í og kynnist list- og menningarviðburðum
Kennsluaðferð
Í kennslustundum eru umræður, fyrirlestrar, einstaklings- og hópverkefni. Nemendur fá möppur með fjölrituðu efni til að vinna með. Einnig er lögð áhersla á heimildaöflun á veraldarvefnum. Farið er í vettvangsferðir og gestafyrirlesarar koma í heimsókn.
Námsmat
Náminu lýkur á einum vetri - 3 kennslustundir á viku. Ekki eru þreytt próf, en stúdentseinkunn felst í símati á eftirfarandi þáttum: Hegðun, mætingu og þátttöku/virkni í kennslustundum; skilvísi, frágangi og ástundun í verkefnavinnu.
|