Félagsfræðikjörsvið

Hagfræðikjörsvið

Forsíða > Námið > Námsbrautir eldri námskrá > Prentvænt

Félagsfræðabraut

Félagsfræðabraut er ein tveggja brauta, sem nemendum gefst kostur á að velja, þegar þeir hefja nám við Menntaskólann við Sund. Á fyrsta námsári felst munurinn einkum í því að nemendur á félagsfræðabraut læra landafræði og taka lokapróf í jarðfræði og líffræði.

Á félagsfræðabraut eru 2 kjörsvið, félagsfræðikjörsvið og hagfræðikjörsvið sem nemendur velja á milli að loknu fyrsta námsári. Þá taka strax við ólík viðfangsefni. Á hagfræðikjörsviði er mun meiri stærðfræði og hagfræðigreinar, en á félagsfræðikjörsviði er áherslan á aðrar samfélagsgreinar eins og t.d. félagsfræði.

Á öðru og þriðja námsári hafa kjörsviðin aðalgreinar. Aðalgreinar félagsfræðikjörsviðs eru félagsfræði og saga, en aðalgreinar hagfræðikjörsviðs eru hagfræði og stærðfræði. Þetta merkir það að nemendur verða að standast millibekkjarprófí í aðalgreinum á sínu kjörsviði.

Sjá einnig glærur með kynningu á kjörsviðum félagsfræðabrautar hér að neðan:

KjorsvidfelagsfrbrautII
Acrobat skjal, 216 kB
Sækja...


Menntaskólinn við Sund | Gnoðarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgðarmaður: Már Vilhjálmsson | Þessi síða var síðast uppfærð 28.06.2014