Umhverfismál - náttúruvernd
Friðlýst svæði við Sund
Háubakkar við Elliðaárvog í Reykjavík
Háubakkar eru við innanverðan Elliðaárvog að vestan. Þetta eru þykk setlög, sennilega um 200 þúsund ára gömul. Í þeim má sjá áhrif mikilla loftslagsbreytinga. Setlögin eru um 8 m á þykkt og er þar m.a. að finna undir grágrýtislagi um 20 sm þykkt surtarbrandslag og í því fræ, aldin og frjókorn ýmissa jurtategunda.
Friðlýstir 1983 sem náttúruvætti – mörk og reglur - kort
Laugarás í Reykjavík Jökulrispaðar klappir frá síðasta kuldaskeiði.
Friðlýstur1982 sem náttúruvætti - mörk og reglur - kort
Brot úr jarðsögu Reykjavíkur
Aldur |
Tímaskeið |
Helstu atburðir |
10 000 ár |
Nútími |
Sjávarmál fellur úr +40m í –5m (a.m.k.). Land sígur eftir það. Leitahraun og Búrfellshraun renna. |
120 000 ár |
Síðasta kuldaskeið |
Jökull er jafnan í 400-500 m hæð í hlíðum Esju. Jökuljaðar yst á Reykjanesi og úti í Faxaflóa. Móbergsfjöllin á Reykjanesi myndast. Sveiflukennd hlýnun í lokin og sjór flæðir á land. |
130 000 ár |
Síðasta hlýskeið |
Dyngjugos á Mosfellsheiði og í Heiðmörk myndar grágrýti í Mosfellsbæ, Breiðholti, Garðabæ, Kópavogi og víðar. |
200 000 ár |
Næst síðasta
kuldaskeið |
Móbergsfjöll sem nú eru utan gosbeltisins myndast (t.d. Lyklafell) ásamt jökulbergi (t.d. undir Höfðabakkabrú í Elliðaárdal). |
210 000 ár |
Næst síðasta
hlýskeið |
Í upphafi tímabilsins myndast setlög í Elliðavogi og víðar. Nokkur dyngjugos (e.t.v. á Valhúsahæð, Engey, Skólavörðuholti og Öskjuhlíð) mynda Reykjavíkurgrágrýtið ofan á setinu. |
Svæði á náttúruminjaskrá í nágrenni MS.
Vesturhorn Laugarness, Reykjavík.
(1) Mörk svæðisins eru að sunnan frá Kleppsvegi á móts við Suðurkotsvör meðfram Kleppsvegi að Laugarnesvegi og þaðan meðfram húsum Tollvörugeymslunnar og Kletts í sjó.
(2) Fjörur og strandbelti á vesturströnd Laugarness, sem að mestu er óröskuð strandlengja með sérkennilegum sjávarrofnum klettum. Vinsæll útivistar- og útsýnisstaður, ásamt menningarsögulegum minjum.
Elliðaárdalur, Reykjavík, Kópavogi.
(1) Vatnasvið Elliðaár í Elliðaárdal, frá upptökum í Elliðavatni allt til ósa.
(2) Fjölbreytt náttúrufar, kjörið útivistarsvæði í þéttbýli.
Grafarvogur, Reykjavík.
(1) Leirur í Grafarvogi.
(2) Einn mikilvægasti viðkomustaður farfugla, einkum vaðfugla, á höfuðborgarsvæðinu.
Gufuneshöfði, Reykjavík.
(1) Ströndin vestur frá Gullinbrú og Gufuneshöfði fyrir vestan og norðan byggð, ásamt fjöru og grunnsævi.
(2) Stórgrýttur höfði með jökulminjum og brattri strönd. Kjörið útivistarsvæði, gott útsýni.
Viðey, Reykjavík.
(1) Öll Viðey. (2)
Lítt snortin og vel gróin eyja með fjölbreyttu landslagi í nánd við þéttbýli. Söguminjar. Vinsælt útivistarsvæði.
Eyjar á Kollafirði, Reykjavík, Kjalarneshreppi, Kjósarsýslu.
(1) Þerney, Lundey, Engey og Akurey.
(2) Lágar, grónar eyjar í næsta nágrenni við þéttbýli. Varpstöðvar allmargra fuglategunda.
|