Forsíđa > Prentvćnt

Dagur íslenskrar tungu

16. nóvember 2008

Dagur íslenskrar tungu er í dag, 16. nóvember. Í tilefni dagsins verđur hátíđardagskrá í hátíđasal Háskóla Íslands kl. 14:00–15:30 og mun menntamálaráđherra m.a. veita Verđlaun Jónasar Hallgrímssonar en í dag er afmćlisdagur ţessa ţjóđskálds. Í tilefni dagsins opnum viđ ORĐAGALDUR á vef skólans ţar sem fjallađ er um skáldskap í skólanum. Ţá verđa ýmsar uppákomur í skólanum í komandi viku. Sjá einnig vef um Jónas Hallgrímasson [Jónas Hallgrímasson]

Hér ađ neđan er, í tilefni dagsins, eitt ljóđa Jónasar, Alţingi hiđ nýja (1840):

Hörđum höndum 

vinnur hölda kind 

ár og eindaga; 

siglir sćrokinn, 

sólbitinn slćr, 

stjörnuskininn stritar. 

 

Traustir skulu hornsteinar 

hárra sala; 

í kili skal kjörviđur; 

bóndi er bústólpi, 

bú er landstólpi, 

ţví skal hann virđur vel. 

 

Fríđur foringi 

stýri frćknu liđi, 

ţá fylgir sverđi sigur; 

illu heilli 

fer ađ orustu 

sá er rćđur heimskum her. 

 

Sterkur fór um veg, 

ţá var steini ţungum 

lokuđ leiđ fyrir; 

ráđ at hann kunni, 

ţó ríkur sé, 

og hefđu ţrír um ţokađ. 

 

Bera bý 

bagga skoplítinn 

hvert ađ húsi heim; 

en ţađan koma ljós 

hin logaskćru 

á altari hins göfgva guđs. 

 

Vissi ţađ ađ fullu 

vísir hinn stórráđi. 

Stóđ hann upp af stóli, 

studdist viđ gullsprota: 

„Frelsi vil eg sćma 

framgjarnan lýđ, 

ćttstóran kynstaf 

Ísafoldar. 

 

Ríđa skulu rekkar, 

ráđum land byggja, 

fólkdjarfir firđar 

til fundar sćkja, 

snarorđir snillingar 

ađ stefnu sitja; 

ţjóđkjörin prúđmenni 

ţingsteinum á. 

 

Svo skal hinu unga 

alţingi skipađ 

sem ađ sjálfir ţeir 

sér munu kjósa. 

Gjöf hefi eg gefiđ, 

gagni sú lengi 

foldu og firđum 

sem eg fremst ţeim ann.“ 

 

Ţögn varđ á ráđstefnu, 

ţótti ríkur mćla, 

fagureygur konungur 

viđ fólkstjórum horfđi; 

stóđ hann fyrir stóli, 

studdist viđ gullsprota, 

hvergi getur tignarmann 

tíguglegri. 

 

Sól skín á tinda. 

Sofiđ hafa lengi 

dróttir og dvaliđ 

draumţingum á. 

Vaki vaskir menn, 

til vinnu kveđur 

giftusamur konungur 

góđa ţegna

Eldri fréttir


Menntaskólinn viđ Sund | Gnođarvogi 43, 104 R.vík | Sími skrifstofu: 5807300 | msund hjá msund.is
Ábyrgđarmađur: Már Vilhjálmsson | Ţessi síđa var síđast uppfćrđ 21.03.2004